Prufa

Hiphop hljómsveitin forgotten lores hefur verið starfandi u.þ.b. frá árinu 2000, í henni eru fimm strákar, rappararnir Byrkir (birkir bróðir heimirs), Diddi fel(mr. Slim), Class Bje(baddi) og svo er það (Addi) Intro sem gerir flest lögin og skratsar ásamt, B-ruff en einnig gerir diddifel nokkur lög.
Þeir hafa gefið út eina plötu, en auk þess hafa þeim sent frá nokkur lög á safnplötum og sem gestir á plötum annarra og í upphafi komu þeir sér á framfæri með hjálp internetsins, með því að gefa út nokkur lög á netinu.
FL eru ein vinsælasta rapphljómsveit Íslands. Ár hvert er kosning á hugi.is/hiphop um bestu hiphoplistamennina og síðustu tvö ár hafa forgotten lores haft töluverða yfirburði yfir aðrar sveitir.

Textar sveitarinnar eru um margvísleg málefni, en þó er greinilegt að málefni friðar og réttlætis fyrir þá sem minna meiga sín eru þeim ofarlega í huga. Eins og greinilega kemur í ljós í laginu sem við ætlum að spila fyrir ykkur tala þeir máli palestínumanna. Og í fleiri lögum tala þeir um vandamál heimsins, stríð og aðgerðir stjórnvalda á vesturlöndum. Þeir gagnrýna einnig íslensk nútímagildi, s.s. það að allir eigi að vinna baki brotnu fyrir peninga en gleyma skemmtun og ánægju.

Þeir eru á móti þeim sem nota ofbeldi til að ná sínu fram og þar eru fremstir Bush og svo ísraelsríki.
0 Comments