Pizza ala Kupkagasse
Rosalega góð pizzuuppskrift fengin úr heilsubók eftir Ágústu Johnsson en betrumbætt af Lalla Johnsson.
Uppskrift fyrir 1 pizzu
Deig:
2 dl volgt vatn
50 gr þurrger
7 dl hveiti
1 dl heilhveiti
skvetta af ólífuolíu
slatti af salti
gusa af bjór
Leysið þurrgerið upp í vatninu og bætið svo hveitinu, ólífuolíunni og saltinu við. Setjið svo bjórinn útí. Hnoðað saman og leyft að hefast í um 40 mín.
Pizzusósa:
1 dl tómatsósa
1 1/2 msk tómatpur
3 tsk grænt pestó
2 hvítlauksrif
salt og pipar
oreganó
Hvílauksrifin eru pressuð og öllu blandað svo saman í skál. Kryddað eftir smekk.
Á meðan degið hefast er bjórinn kláraður og áleggið gert klárt. Hægt er að setja allt á milli himins og jarðar á pizzuna en það sem okkur finnst best er:
laukur
sveppir
paprika
ólífur
skinka
gott pepperoni
mozzarella ferskur
rjómaostur
rifinn ostur
oreganó
pipar
Þá eruð þið komin með dýrindis pizzu. Gott er að setja aðeins hveiti á plötuna og engann bökunarpappír. Pizzan festist síður við. Bakist við 220 -250° í 15 mínútur. Gott er að setja á undirhita til að ná stökkum botni.
Verði ykkur að góðu.