Kanilsnúðar
Þetta eru snúðarnir sem Pabbi besti var svo góður að gera oft fyrir okkur systurnar, ég fékk líka oft að borða endana:)
10 dl hveiti
5 tsk ger
1 dl sykur
100 gr smjör
3 1/2 dl mjólk
Hveitið er mælt og sett útí skálina, smjörið er brætt og mjólkin sett útí. Sykurinn og gerið er leyst upp í blöndunni og sett svo saman við hveitið.Deigið er svo hnoðað saman og látið hefast að minnsta kosti í 30-40 mínútur. Pabbi segir samt að til að þeir verði rosalega góðir verði deigið að hefast í allavegana 1 klukkutíma.
2 msk smjör
kanilsykur
Svo er deigið flatt út, smjörið brætt og sett með kanilsykri á milli, svo á að rúlla deiginu upp í eina langa rúllulengju og svo sker maður rúlluna niður í hæfilega bita. Snúðarnir eru svo settir á plötu og bakaðir í ca. 10 mín við 225°C.
Jón og Lalli sögðust hafa lært eitthvað með band í heimilisfræði í Síðuskóla en það var til að gera snúðana meira að snúðum..þá með miðjuna svona mest uppi og svo allaf minna og minna en ég skildi það ekki…en ef þið kunni það þá er það örugglega rosalega flott. En þeir bragðast alveg jafn vel þó að maður geri það ekki.