Gúllash

Kraftmikið ungverskt Nautagúllash sem kemur manni i gott skap

Uppskrift fyrir 2-3

400 gr. Nautakjöt skorið niður í bita
1-3 laukar (eftir smekk og stærð)
2 hvítlauksrif
2 dl vatn
nautakraftur
salt og pipar
paprikukrydd
gúllashkrydd (ef það er ekki til þá bara vel af paprikukryddi)

Setjið smá slettu af olíu í pott. Steikið kjötið (brúnað), bætið svo lauknum og hvítlauknum útí. Látið krauma. Bætið svo vatni og kryddum útí, kryddað eftir smekk. Þessu er svo leyft að sjóða í 3 kortér, en muna að fylgjast með og bæta vatni í soðið ef þarf.

2 paprikur
4 gulrætur
5 sveppir

Grænmetið skorið niður og bætt útí, ásamt vatni ef þarf. Þetta er látið sjóða í um 15 mínútur og þá á að smakka kjötið. Ef það er meirt og gott þá má borða gúllashið.

Svo má betrumbæta uppskriftina eftir eigin smekk, til dæmis má nota lárviðarlauf, majoran eða eitthvað annað gott krydd. Svo er rosalega gott að setja smá slettu af rjóma í lokinn. Borið fram með góðu rauðvíni eftir smekk, kartöflum og brauði.

Verði ykkur að góðu