Fiskisúpa

Til eru margar uppskriftir af fiskisúpu eins og þessari. Þetta er okkar útgáfa.

Uppskrift fyrir 2 í 3 daga eða fyrir 6.

2 l vatn
2 laukar
5 sveppir
3 hvítlauksrif
1 paprika
2-3 gulrætur
vorlaukur
ferskjur í dós
epli
ef til vill engifer
250 gr laxabitar
rækjur
tómatpur
grænmetiskraftur
1 tsk karrímauk
karríkrydd
tikkamasala krydd
salt og hvítur pipar
sletta af rjóma

Laukur og sveppir svissaðir í smá olíu. Öðru grænmeti bætt útí og steikt saman ásamt karrímauki. Svo er vatninu og grænmetiskraftinum bætt útí ásamt karríkryddi og tikkamasala eftir smekk. Þetta er látið sjóða í ca. 15 mínútur og þá má setja laxinn og ferskjurnar útí. Munið að setja allann safann af ferskjunum með útí. Það tekur laxinn 10 mínútur að sjóða og má þá setja rækjurnar útí. Kryddið svo með salt og pipar eftir smekk og skellið rjómanum útí. Eftir að rækjurnar eru komnar útí má ekki vera með súpuna lengi á suðu því annars verða þær seigar.

Ef ekki er til ferskjur og fiskur þá er auðveldlega hægt að nota sömu uppskrift í góða grænmetisnúðlusúpu.

Verði ykkur að góðu.