Archive for the 'Vínarborgarinn' Category

1. Diplom

Föstudagur, júní 22nd, 2007

Þá er það yfirstaðið, prófið fór vel fram snemma á þriðjudagsmorguninn eða réttara sagt kl 10. Þetta var alveg svolítið erfitt, var svo stressuð daginn áður, mikið til útaf því að ég var búin að ákveða að vakna kl 6 til að ég yrði almennilega vöknuð í röddinni. Til að vakna svona snemma varð ég náttúrulega að fara snemma að sofa. Var komin upp í rúm um 9 - hálf 10 en gat engann veginn róað mig niður. Hjartað hamaðist og sama hvað ég gerði þá varð ég ekki einu sinni syfjuð. Ég hlustaði á hugleiðslu, ég hlustaði á slökun með Guðjóni Bergmann og ég hlustaði á Harry Potter bók Audiobook nr. 6. Lalli sagði mér sögu um litlu bláu flugvélina, en ekkert gerðist. Hann meira að segja las fyrir mig úr Harry Potter sem hann er að lesa en ég náði ekki að sofna. Seinast þegar ég man var kl orðin hálf 1 og ég orðin ennþá meira stressuð því núna fengi ég svo stuttan svefn. En þetta hafðist einhvernveginn, ég náði að sofna og vaknaði eldhress kl 6 um morguninn.

Ég gleymdi krananum á þegar við fórum út og við vorum komin út á lestarstöð þegar ég fattaði það og Lalli greyið þurfti að hlaupa heim til að slökkva á honum. Sem betur fer fór ekkert uppúr en það munaði litlu.

Ég var svo númer 4 í röðinni. Söngurinn gekk vel, veit samt alveg vitleysurnar mínar og var ekkert rosalega ánægð með dýptina mína, svona snemma á morgnana er dýptin mín ekki sú besta, oftast meira loft einhvernveginn. En allavegana gekk þetta alltsaman, ég söng 1 aríu og 2 ljóð. Úff var alveg rosalega fegin þegar þetta var búið en upptakan klikkaði, batteríið var búið þrátt fyrir að ég hafi skipt um batterí um morguninn,hef tekið ónýtt batterí í staðin fyrir nýtt…arg! :)

Við vorum 7 sem tókum þetta próf í ár, þannig að þetta var ekki svo langt. Eftir prófið ráðfæra prófessorarnir sig saman, en allir söngprófessorarnir eru að dæma í prófinu. Hver og einn gefur hverjum nemanda einkunn sem er svo sett saman í eina einkunn. Svo fær maður bara að vita strax hvað maður fékk í einkunn.

Ég fékk 1 eða Sehr gut eða hæstu mögulegu einkunn á 1. diplómaprófinu mínu.

Ég er auðvitað alveg rosalega ánægð með það og ég er að gera mér meira og meira grein fyrir því með tímanum sem líður. Það er alltaf gaman að vera að standa sig vel í því sem maður tekur sér fyrir hendur.

Við vorum tvö sem fengum 1, ég og Pauli sem er tenór frá Tirol og er mjög hress. Hann og Jóni eru miklir vinir og Jóni er alltaf að kenna honum skemmtilega íslensku og hann hefur mikinn áhuga á því að læra. Hann segir til dæmis alltaf við mig þegar við hittumst eða þegar hann hefur samband við mig í gegnum sms eða síma: Heyrðu gamla. Og í smsinu var það skrifað herdö gamla sem var krúttlegt og ekki fjarri lagi. En hann átti einkunnina vel skilið. Hinir fengu á bilinu 2 - 3 held ég og allir náðu sem var mjög gott og ánægjulegt.

Svo er hún Lára besta komin til okkar í heimsókn og við erum búin að reyna að hafa það gott miðað við hrikalega hitann sem er hérna. Það er klárlega ekki íslenskt veðurfar hér á meginlandinu og við íslendingar erum ekki hannaðir fyrir svona mollu. En við látum það nú ekki aftra okkur…verðum þá bara í sundi eða að flatmaga í grasinu.

Annars eru það bara tæpar 2 vikur í lendingu á Akureyrinni góðu.

Veriði hress, ekkert stress, bless.

Eyrún

 

Listin

Föstudagur, júní 15th, 2007

Langt síðan ég skrifaði síðast, langar oft að vera miklu duglegri að skrifa, fyrir mig. Ég held að ég hafi ofboðslega gott af því að skrifa það sem ég er að hugsa, þá næ ég að komast meira í samband við sjálfa mig, þó að það sem ég skrifa er oftast daglegir hlutir eða eitthvað sem ég er að pæla í á þeim tíma. Það er samt ekki þar með sagt að það sé ekki merkilegt.

En margt er búið að gerast síðan síðast, ég er ekki viss um að ég muni allt, en ég á allavegana eftir að muna það mikilvægasta. Þetta hefur verið skemmtilegur tími en líka erfiður. Eftir tónleikana tvo í apríl var ég úrvinda, hafði þá síðan í febrúar verið á fullu í Fledermaus, og að æfa mig fyrir tónleikana. Svo komu páskarnir sem voru alveg yndislegir en mikið í gangi, og stress fyrir tónleikana. Þannig að eftir þessa törn var ég þreytt. Ég leyfði mér líka algjörlega að hvíla mig, en ég hélt einhvernveginn að ég myndi sjálfkrafa eftir smá tíma ná mér upp aftur, orkunni og drifkraftinum sem ég var svo full af fyrir tónleikana. En svo var ekki, allann maí var ég löt, þreytt og áhugalaus, sem var mjög leiðinlegt og erfitt. Það er svo erfitt að gera hluti með hangandi haus. Svo styttist og styttist í prófin og ennþá var ég þreytt. Meira að segja alveg fram á þriðjudaginn í þessari viku. En þetta hófst. Ég kláraði öll undirfögin og má þess vegna taka fyrsta diplómaprófið mitt næsta þriðjudag eða þann 19. júní sem er kvennadagurinn ef ég man rétt? Ekki amalegt að taka prófið á svo flottum degi. Og þá á hún Lilý Erla líka afmæli:) Við þessa góðu reddingu og annað sem ég var svo heppin að fá að verða vitni að þá er ég orðin hress, jákvæð og glöð. Hlakka barasta til að taka prófið, þó að ég sé auðvitað aðeins stressuð, og sýna þessum prófessorum hvað ég kann nú orðið askoti margt.

Við vorum svo heppin sunnudaginn 3. júní að Júlíus söngnemandi hér í borg átti miða fyrir 4 á Thomas Quasthoff barítón þar sem hann söng Die Winterreise eftir Schubert í Konzerthaus. Úff, ekki er hægt að lýsa þeirri upplifun, bæði er þetta verk náttúrulega algjört meistaraverk, hvert ljóð sínu fegurra, en þessi ljóðaflokkur eru samtals 24 ljóð. Ljóðin skrifaði Wilhelm Müller og Schubert samdi svo tónlistina við ljóðin á dánarári Müllers eða 1827. Fyrst samdi hann tónlist við fyrstu 12 ljóðin eða í febrúar 1827 og voru þau gefin út í 24. janúar 1828. Talið er að seint um sumarið árið 1927 samdi hann tónlistina við seinni 12 ljóðin. Þau voru svo gefin út sex vikum eftir að Schubert lést eða þann 21. desember 1828 en dánardagur Schuberts er 19. nóvember 1828. Ekki er vitað hvort Müller náði að heyra tónsmíðar Schuberts við ljóðin hans en hann hafði þó óskað sér að einhver myndi semja tónlist við þau. 

Ljóðaflokkurinn fjallar um Persónu sem leggur upp í ferð, vegna þess að ástarsamband hans er á enda. Án áfangastaðar og vonar heldur persónan út í vetrarnóttina. Hlustandinn fær að fylgja persónunni í gegnum þessa lífsreynslu, sem er markeruð af sorg og vonleysi.

Thomas Quasthoff er ótrúlegur söngvari, meðal annars vegna þess að hann er líkamlega fatlaður. En það hefur hann alls ekki látið aftra sér sem er ofboðslega fallegt og hefur hann sungið á sviði og heldur marga tónleika árlega. Röddin og hæfileikarnir eru gríðarlegir, forréttindi að fá að hlusta á hann syngja þetta fallega verk. Svo má líka bæta því við að Die Winterreise er u.þ.b. einn og hálfur klukkutími í flutningi og söng hann það allt í gegn án hlés.

 

 

Annað fékk ég að upplifa seinasta föstudag sem hefur haft ofboðsleg áhrif á mig síðustu viku. Ég nefninlega fyrir rælni uppgötvaði að uppáhaldið mitt hún Tori Amos yrði með tónleika hérna í Vín og var ekki lengi að panta miða fyrir mig og Lalla. Ég er ekki alveg viss hvenær ég byrjaði að hlusta á Tori, man allavegana að það var fyrir útkomu From the Choirgirl Hotel  en sá diskur kom út árið 1998. Þannig að mig hefur allavegana dreymt um þetta kvöld í meira en 10 ár. Og ég varð sko ekki fyrir vonbrigðum.

Hún er núna að túra um heiminn vegna nýju plötunnar American Doll Posse.  Mér finnst þessi plata vera algjörlega frábær, fór mikið að hlusta á hana eftir tónleikana og þá opnaðist hún alveg fyrir mér. Tori  er gríðarlegur listamaður og hefur hún hingað til aldrei gefið út plötu sem er ekki með einhverju consepti og þessi plata er byggð á 5 konum sem hún segir að lifi allar í henni og heldur því fram að þessar konur séu til í öllum konum. Hver kona hefur sinn eiginn stíl og sín lög á disknum. Þær heita Isabel (histTORIcal), Clyde (cliTORIdes), Pip (ExpiraTORIcal), Santa (sanaTORIum) og Tori (terraTORIes). Allar þessar persónur eru byggðar á grískum gyðjum.
Isabel er byggð á grísku gyðjunni Artemis og er ljósmyndari og mjög pólitísk.
Clyde er byggð á gyðju undirheimanna Persefónu. Hún mjög óörugg, á erfitt með að finna út hver hún er og á hvað hún trúir, og er að vinna úr því að hafa orðið fyrir vonbrigðum í lífinu.
Pip er byggð á gyðju stíðs, visku og kænsku eða Aþenu. Hún er hörkukvendi og tekur á málunum.
Santa er byggð á grísku gyðjunni Afródítu og er ástríðufull og tilfinningarík.
Tori er byggð á grísku gyðjunum Demeter og Díonýsos. Hún táknar listakonuna í henni (okkur).

Spratt þessi hugmynd mikið til vegna þess að pabbi hennar er prestur og er hún alin upp í mjög afturhaldsamri trú á Guð og Jesú Krist. Hún hefur aldrei verið sammála kristinni trú með það hversu konurnar eru klipptar út úr sögunni eða skipt niður í aðeins tvo flokka, móðir eða hóra. Hún segist trúa því að það sé ekki svo einfalt eða ekki svo svart á hvítu. Ég er að mörgu leiti mjög sammála henni og að við þurfum að leita inni í okkur að því kvenlega og berjast fyrir því kvenlega í heiminum. Því konur eiga ekki að þurfa að verða að körlum eða taka upp karlasiði til að komast áfram í heiminum. Heimurinn þarf líka meira af kvenlegum styrk og orku.

Tónleikarinir voru með því sniði að fyrst kom út einhver af þessum 5 persónum og sungu sín lög, í sínum fötum og með sitt hár og allt saman. Svo voru smá búningaskipti og kom þá Tori út, söng lög bæði af nýju plötunni og líka gömul lög með hljómsveitinni sem hún spilar með á plötunni. Svo spilaði hún líka ein á píanóið sem var gríðarlegt. (ég er orðin uppiskroppa með lýsingarorð). En hérna kemur Set listinn

Fyrsti þáttur – Santa
Body & Soul
My Posse Can Do
Programmable Soda
Secret Spell
Dragon
You Can Bring Your Dog
Millispil
Professional Widow
Annar þáttur – Tori
Big Wheel
Caught A Lite Sneeze
Liquid Diamonds
Cornflake Girl
Doughnut Song
Glory Of The 80s
Solo
Spuni 
Upside Down
Mother
Með Bandi 
Father’s Son
God
Code Red
Fyrsta Uppklapp
Precious Things
Pancake
Annað Uppklapp
Bouncing Off Clouds
Hey Jupiter

Eftir þessa stórkoslegu upplifun þá hef ég algjörlega dottið ofaní tónlistina hennar og hana sem listamann. Það er ekki lítið sem hún hefur upplifað, hún varð fyrir kynferðislegri áreitni, og missti 3 sinnum fóstur og hefur hún tekist á við þetta allt saman í gegnum tónlistina sína. Svo er hún svo áhugaverur persónuleiki því hún ólst upp á afturhaldssömu kristnu heimili þar sem pabbi hennar er preacher eða prestur og mamma hennar er að hluta til indjáni eða native american cherokee og þar eru skemmtilegar andstæður sem koma þar saman. Hún var undrabarn því hún var farin að spila á píanóið fyrir 3 ára aldur. Hún varð svo yngsti nemandi sem hefur verið tekinn inn í Peabody Konservatorium en þá var hún 5 ára. Hún var svo rekin út úr honum því hún hafði ekki á því að halda áfram á þessari braut, henni langaði að verða female composer en þá sögðu þeir bara: nei, þú getur það ekki. Þú verður að verða concert pianist. En hún hefur svo mikla sköpunargáfu að það er skiljanlegt að hún vildi ekki vera njörvuð niður í eins þröngri grein eins og klassíkin er.

Fyndið er að ég fattaði líka á tónleikunum að hún spilar núna aðeins á Bösendorfer flygla. Hún á tvo, ein sem er í Ameríku og getur lítið ferðast, hún er orðinn þreytt (hún talar um þá sem persónur og þá sem kvenpersónu eða “her”) og svo er ein í Evrópu eða sem hún túrar um með. Bösendorfer fyrirtækið er Austurrískt og er hérna í Vínarborg, hún minntist einmitt á það á tónleikunum hvað það væri gott að vera komin hingað og að “hún” væri komin heim. Hún tengist píanóunum sínum persónulegum böndum og talar um að þau eru virkilega framlenging af henni, en þessi píanó eru búin til hér í Vín og það tekur um 5 ár að búa til einn flygil. Það er reynt að láta ferlið verða eins ómekanískt eins og hægt er, þau eru handsmíðuð. En mér finnst þetta mjög skemmtilegt og áhugavert fyrirtæki, en líka því að allir flyglarnir í skólanum mínum niðrí Penzing (og það eru flyglar í hverju einasta herbergi) eru Bösendorfer. Þannig að það eru forréttindi að fá að glamra á svona góð píanó.

Úff ég gæti haldið endalaust áfram, en þetta er orðið nokkuð langt núna. Enda svo langt síðan ég skrifaði að það var svo margt sem þurfti að komast frá mér. Allavegana er yndislegt að fá að fylgjast með svona gríðarlega hæfileikaríku fólki, það snertir við manni og maður er ekki sama manneskjan eftir svona kvöldstund. Það er að mínu mati merki um góða/nn listakonu/mann.

Allavegana vona ég að ég nái að skapa list á þriðjudaginn, ekki bara syngja á prófi.

Eyrún

 

Tilkynningar

Fimmtudagur, maí 17th, 2007

Til að byrja með langar mig að tilkynna það hér að ég hef fengið inngöngu í Listasumar 2007 á Akureyri og mun halda ljóðatónleika, í hádeginu, 27. júlí og verða þeir í Ketilhúsinu. Á dagskrá verða ljóð eftir Schubert, Brahms og Wolf auk valinna íslenskra ljóða. Það myndi gleðja mig mjög ef sem flestir gætu séð sér fært um að koma.

Það næsta á dagskrá er það að mig langar að auglýsa íbúðina okkar Lalla til leigu í sumar gegn sanngjörnu verði. Íbúðin okkar er 2. herbergja, ca. 70 fermetrar með svefnaðstöðu fyrir 4-6 (hjónarúm í svefnherbergi, tvíbreiður svefnsófi í stofu og 2 dýnur). Sjónvarp og internet innifalið einnig 2 hjól og 2 hjálmar, bækur um Vínarborg á ensku, flygill og þvottavél. Íbúðin er í 8. hverfi í Vínarborg sem liggur upp að 1. hverfi eða miðborginni þannig að göngutími niður í miðbæ er um 15 mínútur og um 10 mínútur að aðalverslunargötunni. 8. hverfi er besta hverfið í borginni, minnsta líka, og forsetinn á heima í því. Hann neitaði að flytja úr hverfinu í forsetavilluna svo gott er hverfið. Íbúðin er laus frá 5. júlí til lok september. Áhugasamir endilega hafið samband, msn: eyrunamer@hotmail.com, email: eyrunamer@gmail.com.

Páskafrí og tónleikar

Miðvikudagur, apríl 18th, 2007

Þá er páskafríið búið og var það alveg yndislegt, fyrst vorum við bara í rólegheitum hér í Vín og gerðum mest lítið annað en að hafa það gott. Svo vorum við frá föstudeginum langa í Essen og Ásta og Geiri komu þangað. Þar eyddum við nokkrum dögum eða fram á miðvikudag í rólegheitum og yfirlæti hjá Hönnu, Dóra og krökkunum. Svo komu allir til okkar nema Dóri og við vorum hér í brjálæðislega góðu veðri, heiðskýrt og um 20°-25°C. Við fórum saman í tívolí, uppá Kahlenberg og löbbuðum niður í kringum allar vínekrurnar og stoppuðum svo og smökkuðum vín frá vínbóndunum úr hlíðinni, fórum á Naschmarkt, slöppuðum af í sólinni og fórum svo í óperuna á laugardagskvöldið í frábær sæti og fengum að hlusta á Thomas Hampson syngja Simon Boccanegra. Alveg frábær tími og rosalega gaman.

Í gær var ég svo að syngja á mínum öðrum Jahrgangskonzert. Þá koma allir söngprófessorarnir að hlusta og tala svo um hvernig maður stóð sig eftir tónleikana, þetta er svona nokkurskonar lokapróf fyrir hvert ár, nema í ár tek ég að auki alvöru diplómapróf þar sem ég fæ einkunn fyrir sönginn. En allavegana í gær söng ég Aríu úr Requiem for those we love eftir Hindemith sem heitir In the swamp, og ljóð eftir Hugo Wolf við texta sem Joseph von Eichendorff samdi og heitir Unfall. Lalli sat með upptökugræjurnar í fanginu og tók sönginn samviskusamlega upp fyrir mig. Hér getið þið hlustað ef þið hafið áhuga.
Eyrún Unnarsdóttir - In the swamp

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Eyrún Unnarsdóttir - Unfall

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Ég náði svo aðeins á Spitzer í dag og spurði hann útí tónleikana og hvernig ég hefði staðið mig, og hann var mjög ánægður með mig, og hinir prófessorarnir líka. Sagði að ég hafi verið með þeim bestu, og ég hafi verið að syngja alveg jafn vel á tónleikunum og ég geri afslöppuð í tímum sem ég er mjög ánægð með. Já ég held bara að þetta hafi gengið nokkuð vel. Ég var líka dálítið stressuð en Lalli og Kristín sögðu að það hafi ekkert sést, bara smá fyrst kannski.

En svo eru það aftur tónleikar á morgun og ég þyrfti eiginlega að fara að koma mér í bólið. Við Lalli gleymdum alveg myndavélinni í gær en vonandi ekki á morgun. Fyndið samt í gær hitti ég Spitzer aðeins fyrir tónleikana og við fórum rétt yfir lögin var það fyrsta sem hann sagði við mig var hvað ég væri hübsch eða liti vel út :) Það var krúttlegt af honum og mér leið líka vel í gær, var í kjólnum sem Jónína saumaði á mig fyrir MA árshátíðina í 2. bekk. En ég á því miður enga mynd. En ég verð vonandi nokkuð eins á morgun og þá tek ég mynd.

En annars bið ég bara að heilsa öllum nær og fær.

Ykkar Eyrún

I

Föstudagur, mars 30th, 2007

Ég veit að ég er stundum svolítið sein en var að fatta aftur að þetta lag með Emiliönu er á japönsku. Og ég fattaði það vegna þess að Yoko (sem er japönsk stelpa sem er með mér í skólanum) var að kenna Levente (sem er ungverskur strákur sem er með mér í skólanum) að segja eitthvað á japönsku. Þar á meðal var watashi no….haha…þá þuldi ég textann í laginu upp og hún fór bara að hlægja..hihi. Ég vissi náttúrulega ekkert hvað ég var að segja. En til fróðleiks þá er þetta lag víst um stelpu sem er að segja frá því að einhver misskildi hvernig hún er og þessi aðili heldur að hún sé mjög leiðinleg og ömurleg manneskja sem hún er ekki….jahhá..skemmtilegt ekki satt..en Yoko og Mamie (sem er líka frá Japan og er með mér í skólanum) voru rosalega stoltar af mér en voru samt alltaf líka að hlægja að því sem ég var að segja..trallala það var fyndið. En hérna er allavegana lagið.

Emiliana Torrini - I

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Watashi no koto
Anata wa mada
Gokai shite iru
Ka mo shirenai wa ne

Watashi no koto
Anata wa ima
Iya na onna datte
Omotteru n deshoo

Soo yo watashi wa
Detarame de
Kimagure de
Namaiki de
Wagamama de
Zeitaku de
Kidoriya de
Usotsuki de
Ayafuya de
iikagen

Da kedo watashi wa
Yurusarechau
Sore wa watashi ga
Kawaii kara

Soo yo watashi wa
Detarame de
Kimagure de
Namaiki de
Wagamama de
Zeitaku de
Kidoriya de
Usotsuki de
Ayafuya de
iikagen

Da kedo watashi wa
Aisareteru
Sore wa watashi ga
Kawaii kara

Leðurblakan í mars frá Mars

Miðvikudagur, mars 21st, 2007

Nú er skólinn byrjaður aftur og bráðum að koma frí. Það er alveg ótrúlegt hvað sumarönnin er miklu fljótari að líða. Núna er ég á fullu á æfingum fyrir Leðurblökuna eða Die Fledermaus sem verður frumsýnd á föstudaginn. Það er búið að vera mjög skemmtilegt og mjög erfitt. Það skemmtilega er auðvitað að fá að vinna á sviði og vera að setja upp óperu, svo er líka mjög fróðlegt að vinna með mismunandi leikstjórum/tónlistarstjórnöndum því að í skólanum eru 3 óperubekkir hver með einn leikstjóra og einn tónlistarstjórnanda (Nikler/Parik, Orlowsky/Theimer og Temme/Plettner). Það hjálpar mér að vera búin að vinna einu sinni í uppfærslu með hverjum bekk því þá veit ég betur hvernig hlutirnir eru unnir hjá hverjum bekk fyrir sig. Svo kynnist maður auðvitað krökkunum betur sem eru að setja sýninguna upp og þeim sem eru í kórnum með mér.

En það er alveg ofboðslega erfitt að vera endalaust á æfingum og æfa alltaf það sama en þetta er alls ekki mikið sem við gerum. En ef einhverjir mæta ekki á æfinguna þá þarf að endurtaka það á næstu æfingu fyrir þá sem vantaði og þá vantar einhverja aðra sem ná þá ekki því sem við gerum á þessari æfingu. Úff. Svo er bara svo erfitt að vera svona mikið í kringum fólk sem er síblaðrandi, þegar við þurfum að bíða þá bíður það uppi á hliðarsviðunum og blaðrar þar og segir brandara þannig að þeir sem eiga að vera á sviðinu og eru að leika og syngja heyra ekkert í sér né hljómsveitinni. Meira að segja er fólk í kórnum sem er að grínast og hlægja þegar við erum á sviðinu og eigum að vera að leika eða fylgjast með eða hvað þá syngja. Mér finnst svo leiðinlegt að vera leiðinlega manneskjan sem er alltaf að sussa og biðja fólk um að einbeita sér svo að við þurfum ekki að vera þarna langt fram eftir degi til að endurtaka eitthvað smáræði vegna þess að við vorum ekki að fylgjast með. Æjæjæjjjj….ég er alltaf algjörlega búin á því andlega þegar ég kem heim af þessum æfingum. Ég hlakka til og vona að ég nái að verða sólóisti og að ég endi ekki í kór því þá ber ég bara ábyrgð á mér og engum öðrum og ef ég klúðra eða stend mig ekki þá get ég lagað það hjá mér og þá verður það í lagi. En þó svo að ég lagi það sem ég geri vitlaust í kór en hinir ekki (og það þarf ekki að vera nema einn sem gerir hlutinn/hlutina vitlaust) þá klúðrast allt. En ég er algjörlega ekki fullkomin í þessari uppfærslu og langt því frá. Ég syng oft einhverja bölvaða vitleysu og í vitlausu tempói því að ég sé ekki oft ekki stjórnandann eða á mónitorana útaf völsunum sem við erum sífellt að dansa og stundum líka útaf því að ég er svo lítil og einhver stærri er fyrir framan mig.

En það er eitt fyndið, dansfélaginn minn er Florian Spiess sem er bassi, sem kemur málinu ekki mikið við, nema að hann er hátt í 2 metrar á hæð. Hihi. Það var alveg týpískt að þau myndu para okkur saman. Ég sé allavegana ekki stjórnandann þegar við erum að dansa saman

En þetta var nú algjört volæðistal og þið afsakið ef þið nenntuð að lesa þetta tuð, ég varð bara aðeins að fá að pústa. Það eru nú bara 1 og hálf vika eftir og þá þarf ég aldrei að vera aftur með í kórnum nema að ég vilji það. Því þetta er annað skiptið mitt og við þurfum bara að hafa 2 Chorschein.

Kannski er þetta volæði líka í mér því að við vorum búin að hafa svo gott veður hér í Vín seinust daga en nú er aftur kominn vetur eins og annars staðar í Evrópu. Maður missir algjörlega dampinn með svona veðurbreytingu. Ég var farin að hlakka svo til í sumar, við vorum byrjuð að plana alskonar ferðir og hluti sem við ætluðum að gera með Kristínu og Jóni. Allavegana erum við Kristín búnar að ákveða að fara allavegana annað hvort til Búdapest eða Prag og kannski bara bæði, svo ætlum við að labba upp á Kahlenberg einhvern laugardaginn og koma svo við á heurigen og smakka vínin hjá vínbóndanum. Svo verður farið í sund, á Prater, sólað sig við Dóná, sólað sig í Burggarten og margt, margt fleira. Svo var ég líka farin að hlakka til ef einhverjir íslendingar koma svo í júní til að taka prófin inn í skólann.

Þetta er orðin rosalega löng færsla en ég ætla samt að lengja hana aðeins.

Svo það sem er á döfinni er:

Sýningar á Fledermaus í þessari og næstu viku
Páskafrí í Þýskalandi með Essengenginu og Ástu og Geira
Vínarfrí með Hönnu og krökkunum og Ástu og Geira
2. Jahrgangskonzert 17. apríl (árgangurinn minn syngur og allir prófessorarnir í skólanum hlusta og kommentera á sönginn manns)
Klassenabend 19. apríl (Nemendur söngkennarans míns syngja saman á tónleikum)

Þarf líka að taka upp nokkur lög í tonstudioinu í skólanum mínum til að eiga og svo þarf ég líka að kaupa mér góðann hljóðnema.

Þannig lagað séð alveg nóg að gera og líka tími til að vera hress og njóta lífsins.

Vona að allir (sem ég veit eiginlega ekki hvort að séu eitthvað margir) sem kíkja hingað inn séu líka hressir og séu að njóta lífsins. Til þess er maður nú hérna. Note to self: Það er bannað að hafa áhyggjur sem eiga ekki rétt á sér og bannað að pirra sig yfir einhverju sem maður getur sjálfur ekkert gert í.

Eyrarún

P.s ég þori aldrei að segja svona “allir að kommenta” því að ég fer sjálf aldrei eftir því og þá er svo vandræðalegt ef enginn kommentar þannig að ég segji það ekki en samt eiginlega… en bara sagt til að svala forvitninni minni um það hverjir eru eiginlega að skoða þessa síðu..en núna ætla ég að segja bless…og hætta þessu bulli…úff..er samt í betra skapi núna en þegar ég byrjaði…takmarkinu með þessu bloggi er þess vegna náð..víhhí

Próf og fleira

Sunnudagur, janúar 14th, 2007

Þá erum við komin aftur út til Vínar og ég er ennþá lasin. Er núna búin að vera lasin í um 4 vikur og er farin að hafa áhyggjur af þessu. Þetta tekur allt of langann tíma að jafna sig og þess vegna ætla ég að kíkja til læknis á morgun. Vonandi er til einhver undralausn við þessu því að ekki getur maður beint verið söngkona ef það tekur mann meira en mánuð að jafna sig á flugferðum.

Annars er maður kominn í rútínuna aftur, prófin eru að koma og þess vegna erum við Lalli voðalega stillt og dugleg. Ég fer í próf í rússnesku á þriðjudaginn, ítölsku á miðvikudaginn í næstu viku og svo tónfræði, tónheyrn og tónlistarsögu á mánudag og þriðjudag í vikunni á eftir næstu. Svo erum við komin í frí;) í heilann mánuð. Þá ætlum við fyrst og fremst að hafa það gott í Vín, skreppa til íslands í útskrift hjá Láru stórusys og til Essen í heimsókn. Víhhí það verður gaman. Sérstaklega verður gaman að vera hér í Vín ef veðrið heldur áfram að vera svona gott. Úff það er yfir 10 gráðu hiti á hverjum degi hérna sem er alveg fáránlegt miðað við sama tíma í fyrra. Þá var algjörlega skítakuldi og snjór um allt.

Svo erum við Lalli byrjuð í ræktinni, enda var það Áramótaheitið okkar að hreyfa okkur meira og verða betur á okkur komin líkamlega. Æfa okkur fyrir allar fjallgöngurnar sem við ætlum að fara í sumar á nýju fjallaskónum mínum sem ég fékk í afmælisgjöf. Ræktin sem við erum í er rosalega flott, hrein og með nýjustu tækjunum. Hlaupabrettin og hjólin eru hver með sér sjónvarpi og getur maður þá bara valið hvað maður vill horfa á sem er mjög kúl. En ég er alveg ofboðslega ánægð með þessa rækt og líður vel þar. Víhhí.

Annars gengur mataræðið bara ágætlega, nokkurnveginn búin að snúa við aftur í heilsusamlegheitin eftir Jólaátið og líður miklu betur. Svo þarf maður bara að vera nokkuð duglegur til að ná af sér þessu smáræði sem kom um jólin:)

Við erum bara rosalega hress og finnst gaman að vera komin aftur “heim”

Heyrumst fljótt

Eyrún

2006

Fimmtudagur, janúar 4th, 2007

Núna eru Jólin alveg að líða og nýtt ár gengið í garð. Jólin eru búin að vera yndisleg þrátt fyrir smá hálshæsi og kvef, en eins og alltaf er maður orðinn tilbúinn á þessum tíma til að takast á við nýja árið af krafti. Orðinn dálítið þreyttur á öllu átinu, sleninu fríinu og svefninum og langar aðfara að taka á því. Að vísu er stuðið ekki svoleiðis hjá mér í augnablikinu því að ég er með þvílíkann hausverk núna en á eftir að klára yndislega fyrirlesturinn minn svo ég geti farið í helgarfrí. Því ætlum við að eyða hjá henni Láru systur í höfuðborginni og hitta eitthvað af vinum og ættingjum. Svo er það bara langt ferðalag á mánudaginn og svo þarf ég að flytja fyrirlesturinn á þriðjudaginn. Svo tekur við lærdómstími því prófin eru í endanum á janúar.

Árið 2006 var gott ár. Það sem stóð uppúr var að ég og Lalli trúlofuðum okkur. En aðrir góðir hlutir sem gerðust líka voru að ég náði eitt skipti fyrir öll að komast í kjörþyngd og þar ætla ég að vera. Svo er tíminn í Vínarborg auðvitað búinn að vera alveg yndislegur og það var gaman að koma aftur í haust og vita algjörlega við hverju var að búast. Lalli komst inn í háskólann og er að standa sig þar með eindæmum vel sem er alveg frábært og mér líkar alltaf betur og betur í skólanum mínum, fékk bara góð komment á seinustu árgangstónleikum. Svo söng ég í fyrsta skipti hér heima eftir að ég fór út um jólin og get ekki sagt annað en að það hafi gengið vel þrátt fyrir smá kvefskít. Datt ekki í hug hversu góðar undirtektir ég fékk og hlakka til að halda tónleika heima í sumar. Sumarið hér heima var gott og vorum við dugleg að vinna, ég var í fínni vinnu á sjúkrahúsinu og leið vel þar. En það besta við sumarið var tíminn hja Láru í Reykjavík í enda sumarsins og svo ferðalagið okkar Lalla hringinn í kringum landið.

Ég vona að árið 2007 verð jafn gott og árið 2006, þá mun ég vera ánægð

innilegar jóla og nýárskveðjur

Eyrún

Flyglar og Furðufréttir

Miðvikudagur, október 18th, 2006

Skólinn er byrjaður aftur og er það bara hið besta mál, hins vera er aðeins meiri alvara núna þar sem ég þarf að taka fyrsta diplómaprófið mitt í júní á næsta ári. Ég verð að vera búin með ákveðna kúrsa og má ég því ekki falla í neinu á þessari önn og næstu. Þá má ég ekki taka prófið og seinkast um eitt ár. Því nenni ég ekki því þetta er nú nógu langt nám og ætla ég þess vegna ekki að falla í neinu.

Ég er í mörgum nýjum og skemmtilegum fögum eins og skylmingum, rússnesku, ítölsku, og eróbik:) En svo er ég líka í Tónlistarsögu 1 og 2 á þessari önn. nr 1 eru fyrirlestratímar en nr 2 eru umræðu tímar um fyrirlestrana, og ég þarf að flytja fyrirlestur um Haydn í nr 2. úff, ég kvíði solltið fyrir, því ég þarf auðvitað að flytja hann á þýsku og svo fyrir fólk sem ég þekki ekkert, það finnst mér alltaf solltið erfitt. En hann á ekki að vera fyrr en í Janúar þannig að ég þarf ekki að hafa áhyggjur alveg strax.

Annars varð ég lasin eftir flugið okkar hingað út og var lasin í rúmar 3 vikur. Það var ekki skemmtilegt og gat ég lítið sem ekkert sungið á meðan að því stóð. En núna er ég aftur orðin frísk og syng því eins mikið og ég get.

Lalli er alltaf jafn duglegur og var að klára að gera fyrsta verkefnið sitt í skólanum í kvöld. Hann er í fullt af áhugaverðum tímum og á eftir að standa sig mjög vel.

Við erum búin að fá fullt af köllum í heimsókn til okkar til að reyna að laga eitthvað í þessu hitakerfi okkar. Því miður erum við ekki eins og Róbert bangsi sem hefur sitt eigið hitakerfi og þess vegna þurfum við ofna sem hitna almennilega. Afhverju er ekki bara til heitt vatn útum allan heim eins og á Íslandi, eða erum við bara svona sniðug? Ísland best í heimi. En vonandi er þetta orðið í lagi núna, annars þurfum við kannski að kaupa nýjan gashitara sem kostar margamarga peninga.

En bestustu fréttirnar eru þær að við erum búin að fá Flygil. Víhhí, hann er rosalega flottur, fundum hann í tónlistarbúð sem er bara hérna rétt hjá okkur. Hann er u.þ.b 100 ára gamall, svartur með Vínarískum mekkanisma, merki J Czapka und Sohn og kostaði um 90.000 íslenskar krónur með flutningi. Ég er súperdúper ánægð með hann og ég þarf aldrei aftur að reiða mig á að það sé laust herbergi í skólanum, núna tölti ég bara heim og æfi mig í mínu eigins íbúð í rólegheitum.

Annars var ég á röltinu í dag í hverfinu okkar þegar stelpa stoppaði mig út á götu og spurði hvort ég væri íslensk, á íslensku. Mér brá solltið því maður er ekkert vanur að fólk stoppi mann úti á götu og hvað þá kannist við mann. En þessi stelpa, Angela sem er frá Vín, mundi þá eftir mér úr MA frá því að hún var þar sem skiptinemi fyrir um 2 árum. Samt var einhver kona sem ég veit ekkert hver er búin að segja henni frá því að ég byggi hérna í Vín og að hún ætti nú að hringja í mig. Úff þetta er svo skrítið, þvílík tilviljun. Svo á hún heima rétt hjá okkur á Studentenheim og er í Uni Wien eins og Lalli að vísu að læra jarðeðlisfræði en samt.

Lífið kemur nú stundum svolítið á óvart.

Ég læt heyra aftur fljótt í mér, bis bald

Eyrún

p.s nýjar myndir á vefnum

Sumarið 2006

Miðvikudagur, september 27th, 2006

Ég skrifaði lítið í sumar. Var mest að vinna en náði líka að hafa það gott. Það var notalegt að vera innan um alla sem við höfðum saknað svo mikið. Við þurftum heldur ekki að sjá um margt. Alltaf var eldað dýrindis mat ofan í okkur og algjörlega stjanað við okkur. Skuggi var alltaf hress þegar við vorum með honum eins og allir hinir. En það er líka voðalega gott að vera kominn aftur í sitt eigið húsnæði, verst að það þarf að vera svona rosalega langt í burtu frá öllu fólkinu okkar.

Þetta er mjög skrítið að lifa svona skiptu lífi. Umskiptin sjálf eru oft erfið fyrir mig. Enda er ég að ég held nokkuð vanaföst manneskja. Tók ekki annað í mál frá 5. til 7. bekkjar en að fá samloku með hnetusmjöri með mér í nesti á hverjum einasta degi, og aldrei fékk mín leið á því. Og ég borðaði næstum aldrei skorpuna á fína heimabakaða brauðinu frá Pabba. Það er frekar erfitt að vera búin að venjast einhverju og þurfa svo að skipta yfir í eitthvað allt annað. Þegar maður er búinn að stilla sig inn á það er það alveg frábært en meðan á stillingunni stendur finnst mér þetta nokkuð flókið. Svo finnst mér þetta heldur erfiðara því hvorugur kosturinn er alveg eins og ég vil hafa hann, eins og flestir hlutir eru nú í lífinu. Ef við erum hér í Vín þá erum við allt of langt frá fjölskyldu og vinum á Íslandi, en þegar við erum á Íslandi þá eigum við heima í ferðatöskum. En svona er lífið.

Við brölluðum margt í sumar, ég var að vinna á FSA á lyfjadeild 1 og Slysó. Var samtals í um 150% vinnu helminginn af sumrinu sem kom sér vel peningalega séð. Lalli minn var í byggingavinnu hjá SS byggi og klifraði flótt upp metorðastigann hjá verkamönnunum og var fljótt farinn að setja upp gifsveggi í staðinn fyrir að sópa.

Fjölskyldan mín hittist tvisvar öll saman og var það mjög notalegar stundir. Fyrri helgina fórum við saman í Mývatnssveit í Dimmuborgir og svo í Jarðböðin. Svo á sunnudeginum út á Gáseyri með Skuggaling. Hann gerði Kríurnar algjörlega óðar og fylgdu þær honum hvert sem hann fór. Við vorum nokkuð hress með þetta því meðan þær voru að vesenast í honum voru þær ekki að vesenast í okkur. Seinni helgin var síðasta helgin okkar á Akureyri og vorum við þá mest að pakka og í rólegheitum.

Við fórum til Flateyrar eina helgi á Kambsmótið með mömmu og pabba. Það var rosalega skemmtilegt og langt síðan ég hef farið Vestur. Við gistum yfir helgina hjá Imbu frænku og Hinna. Þau voru gestrisnari en allt og okkur leið mjög vel. Skuggi var með í för og hitti kærustuna sína hana Týru sem Jana og Atli eiga. Hún er svartur Labbi eins og Skuggi og urðu þau rosa góðir vinir. Ég er hér með búin að panta einn hvolp frá því goti:)

Við vorum nú bara frekar róleg um Verslunarmannahelgina og vorum bara kyrr á Akureyri. Kíktum vísu út í Vaglaskóg til Ninnu, Birgis og Lárusar Arnar á sunnudagskvöldinu og við grilluðum saman með mömmu, pabba og Margréti.

Ég fékk nokkuð gott frí í ágúst og ákváðum við Lalli þá að fara saman í smá ferðalag. Við lögðum af stað á Miðvikudagskvöldi og keyrðum austur á Egilsstaði. Gistum þar eina nótt og héldum svo áfram austurfyrir. Stoppuðum á Neskaupsstað og Lalli sýndi mér þar sem hann ólst upp. Næst stoppuðum við á Djúpavogi og fengum okkur kaffibolla í Löngubúð.
Við keyrðum svo áfram og sáum Jökulsárlón og gistum svo í Skaftafelli. Því miður urðum við rafmagnslaus í Skaftafelli en það fór allt vel þegar við fundum loksins rafgeyminn sem er undir aftursætinu í Bimmanum. Ég var orðin nokkuð fúl útí þjóðverjann þá að ganga svona vel frá öllu og hafa allt svo skipulagt að maður finnur ekki neitt þegar maður þarf á því að halda. En allt fór vel að lokum og við komumst af stað. Ég hafði ekki keyrt þessa leið síðan ég var pínu lítil og ég mundi eiginlega ekkert eftir þessum stöðum. Við skoðuðum okkur vel um og stoppuðum þar sem okkur langaði. Enduðum svo í Sundi á Selfossi og keyrðum svo upp í Selvík í bústað sem Landsbankinn á. Ásta og Geiri komu svo um kvöldið á föstudeginum til okkar. Við skoðuðum svo hinn “gullna hring” á laugardeginum og fleira, Gullfoss, Geysi, Þingvelli, Skálholt, Flúðir og margt fleira. Það var alveg æðislegt og svo gaman að sjá þetta aftur með eigin augum en ekki bara alltaf á mynd. Svo keyrðum við heim aftur á Sunnudeginum.

Margrét systir byrjaði svo í Menntaskólanum í haust og á eftir að standa sig alveg ofboðslega vel. Ég efast sko ekkert um það, hún er svo dugleg og skynsöm og þroskuð að hún á eftir að plumma sig vel.

Við kíktum til Essen áður en við komum heim, og var það auðvitað yndislegt eins og alltaf. Torfi og Maja eru alltaf að stækka og þroskast og það verður gaman að fylgjast með þeim í vetur eins og við fengum að gera seinasta vetur. ddddddDANKE schön !
En stærstu og nýjustu fréttirnar eru þær að við Lalli trúlofuðum okkur 21.september 2006 og erum alveg ofboðslega hamingjusöm saman.

Núna er ég búin að skrifa jafn mikið í eina færslu og ég hef skrifað í heild inn á þessa síðu þannig að ég læt þetta gott heita í bili. Við látum heyra meira í okkur núna en í sumar og setjum alltaf inn myndir á síðuna okkar.

p.s ég var að setja inn myndir frá öllu sumrinu inn á síðuna.