Skvísufréttir
Laugardagur, ágúst 9th, 2008Það er búið að vera margt í gangi hjá okkur Bumbulínu þessa dagana. Við fórum fjölskyldan saman í mæðraskoðun á fimmtudaginn og ljósmóðirin varð rosalega skotin í Bumbulínu, sagði að hún væri fyrirmyndarbarn og passleg í alla staði. Við vissum það nú áður en við fórum í skoðunina en það er alltaf gott að fá staðfestingu á því frá “fagmanni” í svoleiðis málum
Við fórum svo seinna um daginn í sónar og Ragnheiður læknir var líka rosalega ánægð með Bumbuskottið okkar, sagði að hún væri alveg eins og hún á að vera á þessum tíma. Hún var líka alveg viss um að Bumbulína er stelpa þannig að ég þori nokkurnveginn að prjóna bleika peysu fyrir hana. En auðvitað er okkur alveg sama um hvort þetta er Bumbulína eða Bumbus, bara að það komi heilbrigt út úr bumbunni, það er fyrir öllu.
Svo er ég búin að vera að reyna að skrá mig á atvinnuleysisbætur því það eru ekki til neinar bætur fyrir konur sem eru óléttar/ófrískar/þungaðar/barnshafandi/vanfærar (við íslendingar eigum svo frábær orð yfir þetta ástand) og eru orðnar þreyttar en ekki veikar, geta svosem alveg unnið en það er ekki alveg optimal. Þannig að svo við færum ekki alveg á kúpuna þá ætla ég að reyna að fá smá pening frá ríkinu til að hjálpa okkur að brúa þessa 2 mánuði þangað til að ég fæ fæðingarorlof. Það er bara að reynast flóknara og erfiðara en mér hefði órað, vegna þessa að ég er námsmaður þá á ég eiginlega bara ekki rétt á neinu og má bara lifa á loftinu ef ég fæ ekki vinnu á sumrin. Reglurnar eru semsagt þannig að til að fá 100% bætur þá þarftu að vera búinn að vera í 100% í 1 ár. En þar sem ég er námsmaður og búin að vera það frá því að ég varð 6 ára þá á ég hvergi á lífsleiðinni ár þar sem ég var í 100% vinnu og hvað þá á seinustu 36 mánuðum. Maður má semsagt geyma “bótaréttinn” í 36 mánuði ef maður er námsmaður. Þannig að ég réttsvo næ að skrapa saman 12 vikum á seinustu 3 árum þar sem ég var samfellt nota bene í 100% vinnu, maður má ekki nota nokkar vikur þetta ár og setja saman við vikurnar sem maður vann árið á undan. Þessar 12 vikur gefa mér 25% bótarétt sem er eitthvað í kringum 1000 kall á dag. Víhhí. Ef ég ætti ekki heima hjá mömmu og pabba og ætti ekki svona duglegann mann þá yrði ég held ég að læra að ljóstillífa.
Ég held að það sé alveg ljóst að það er ekki hægt að lifa á sósíalnum á Íslandi. Þetta er ekki alveg hræðilegt fyrir mig því að ég á góða að en hugsa sér fyrir þá sem hafa það ekki svo gott og nú þegar bankarnir eru búinir að loka búðinni hjá sér þá get ég vel skilið að fólk nái ekki endum saman. Hmm erum við ein af ríkustu þjóðum í heimi og förum svona með námsmennina okkar og litla mannin?
Jæja áfram með smjörið, ég er nefninlega búin að brasa margt meira á seinustu 2 dögum. Ég fór loksins í sjónmælingu og komst að því að ég er komin með - 0,75 og -1. Það hlaut að koma að þessu, hélt kannski að ég yrði svarti sauðurinn eða gyllta svínið forever í þessari fjölskyldu og fengi aldrei gleraugu. En ég er búin að velja mér þessi fínu gleraugu með glimmeri á hliðunum
Það fer að styttast í myndastund hér á vefnum þannig að ég skelli þá kannski nokkrum myndum inn af gripnum.
Það er nú ekki margt fleira sem við vorum að brasa við stelpurnar, ég var aðeins að ýkja hérna áðan, ég fór bara í klippingu í gær og er orðin rosalega fín.
Nú er bara málið að hvíla sig í dag og prjóna, kannski hlusta aðeins á Fritz Wunderlich syngja Im wunderschönen monat mai e. Schumann. Ég mæli með því á svona fallegum degi.







