David Archuleta mitt Idol og 20 vikna skoðun
Fimmtudagur, maí 22nd, 2008Hann var uppáhaldið mitt, og mér finnst þetta geggjað flott hjá honum. Hann er bara með svo geggjaða rödd. Mmmm ég fæ alveg gæsahúð. En hinn David var líka góður.
Annars er 20 vikna skoðun á morgun alveg eldsnemma. Það verður gaman að fá að sjá Bumbus aftur. Sjá hvað hann er búinn að stækka mikið. Ég vona bara að allt verði eins og það eigi að vera. Mér finnst bumban samt ekkert stækka, og ég er ekki búin að taka neina alvöru bumbumynd fyrir utan eina sem við tókum þegar ég var gengin ca. 12 vikur og þá var engin “alvöru” bumba. Við förum nú vonandi að bæta úr því og þá skelli ég einni hérna inn. Mér finnst samt ótrúlegt að ég sé hálfnuð, þetta líður rosalega fljótt og áður en við vitum af verðum við orðin þrjú. Úff ég get eiginlega ekki beðið, það á eftir að vera svo notalegt.
En ég er hins vegar að verða eitthvað smá lasin, með illt í hálsinum og þreytt. Ég er samt heppin því að það er frídagur í dag og ég ætla þess vegna að leggjast upp í sófa núna og klára teppið handa bumbusi og horfa á eitthvað skemmtilegt. Kannski að maður leggji sig svo bara á framhaldi af því:) Mmmm bara lúxus. Svo er auðvitað Júrópartý í kvöld og maður mætir auðvitað eins og sannur íslendingur til að styðja sitt fólk. Áfram Júróbandið!!!
Bið að heilsa og takk fyrir allar kveðjurnar,
Eyrún
