Archive for the 'Jafnaðarmaðurinn' Category

Varúð! Lalli er að klofna

Fimmtudagur, nóvember 20th, 2008

Sá sem les þennan pistil gerir það á eigin ábyrgð, hann inniheldur lýsingar sem gætu fara fyrir brjóstið á fólk sem heldur að hagkerfi (hér eftir nefnt kerfið) sé skapað af mönnum vildu samfélaginu vel, það er skapa af mönnum sem með því vildu koma sínum hagsmunum að.

—–

Ég á eitthvað erfitt með að einbeita mér þessa dagana, það versta er að það er ekki bara litla pabbarósin sem að stelur athygli pabba síns, heldur hugsa ég of mikið um kreppuna, kapitalisma, úrlausnir, vandamál, ómálefnalegt tuð, gróusögur, ónýt bankakerfi, ónýt myntkerfi - því miður þá skiljið þið hvert ég er að fara. Það er svo sem ekkert nýtt að ég hugsi um það sem er í gangi í heiminum, stjórnmál, mannlegt samfélag - heimsmálin. Það væri nú óeðlilegt að vera í stjórnmálafræðinámi án þess að hafa áhuga á umhverfinu sínu.

Umræðan á Íslandi finnst mér oft vera á svolítið lágu plani, fáir koma með hugmyndir og þeir sem koma með hugmyndir eru í raun og veru bara búnir að laga sínar hugmyndir um úrlausn kreppunnar að þeim hugmyndum sem þeir áttu fyrir krepppu. Sjálfstæðisfokkurinn vill starta kerfinu upp á nýtt, þessu sama sem kom okkur um koll, VG leggur til að við einangrum okkur og varar sérstaklega ESB og gjaldmiðilinum Evru, Framsókn reynir að eyðileggja sig og gengur bara nokkuð vel - enda er það ágætis lausn við ýmsum vanda þ.e. losna við Framsókn, Frjálslyndir þaga enda flytja útlendingar umvörpum úr landi og kreppan er ekki í sjávarútveginum. Hvað gerir Samfylkingin? Reynir að gera málamiðlanir, fara bil beggja og svo fara í ESB. Þar liggur klofningurinn í mér, sem situr í vegi fyrir því að ég vinni ritgerðir og nái fókus. Eigum við litla Ísland annað val en að gera málamiðlun, fá lán og reyna bara að gera betur í þetta skiptið? Vonandi hafa sem flestir sem þetta lesa séð Zeitgeist bæði fyrri og seinni myndina, kerfið sem að stjórnar þessu heimi er meingallað, ósanngjarnt og ósiðlegt. Ein besta og frumlegasta lausnin á vandamálinu væri án vafa að gerast tilraunasamfélag fyrir “The Venus Project”, en það er varla raunhæfur möguleiki, af ýmsum ástæðum eins og t.d. þeirri að ég ræð ekki einn og svo því að þeir sem ráða og eiga mikla peninga og þar af leiðandi hagsmuni að gæta í því samfélagi sem við nú búum í væru varla til í að fórna því bara til að leyfa hinum að líða betur - ef þeir vildu öllum vel væru þeir ekki svona valdamiklir og ríkir og fyrir löngu búnir að koma til móts við aðra. Samkeppni var lykilorðið og ef við pössum okkur ekki þá verður það ásamt græðgi aftur leiðarljós íslensk samfélags.

Ég er sem sagt að klofna, í mér eru tveir helmingar, þið ráðið hvorn þeirra þið teljið betri helminginn. Annar helmingur minn, þetta er líklega hvatvísi hluti minn, vill henda öllu því sem áður hefur verið, taka upp kerfi þar sem samvinna er leiðarljósið og raunverulegt jafnrétti, frelsi og systkinalag ræður ríkjum. Þessi helmingur vill róttæka breytingu, ekki bara lán eða einangrun í sama kerfi. Heldur umpólun, burtu með kerfið eins og það leggur sig. Hinn helmingurinn, e.t.v. sá leiðinlegri og jafnvel skynsamari, vill vegna þess að við erum bara peð stödd mitt í kerfi sem við ein getum ekki umturnað þó við myndum dissa það og búa til samfélag án gjaldmiðils þar sem fólk gerir hlutina vegna þess það vill gera þá en ekki þarf að gera þá. Vegna þess að við getum ekki ein og sér breytt lífi allra þeirra sem lifa í heiminum er skynsamlegra að vinna með þeim í að bæta þetta meingallaða kerfi sem sumir virðast halda að sé náttúrulögmál. Við vinnum í þessu meingallaðakerfi en breytum því innan frá, og vinnum saman með þeim sem þar eru og eru okkur sammála - þeir eru fleiri en margir vilja halda. Það er nefnilega svo sorglegt að meirihluti fólks fellur undir skilgreininguna sem almúgi: eignalaus og valdalaus vegna þess að fjármálakerfið endar alltaf þannig að örfáir græða meðan allir hinir aumingarnir tapa. Hversu margar kreppur það tekur fyrir fólk að skilja þetta er óvíst, en sem hluti af Evrópu erum við betur varin fyrir innlendum siðspilltum eiginhagsmunaseggjum og í fjöldanum er betra að vinna saman gegn kerfinu sem að kom okkur í þessa stöðu.

Það að umbylta Íslandi í flýti núna breytir heiminum að svo litlu leyti að það hefði ekki áhrif á heildarmyndina, en æ fleiri sjá nú hvernig veruleikinn er; lýðræðislega kjörnir fulltrúar fólksins reyna nú að bjarga risafyrirtækjum eins og bílaframleiðendum Þýskalands eða Simens hér í Austurríki. Bankar fá milljarða styrki í samfélögum þar sem ríkið hefur undanfarin ár dregið sig úr mörgum af sínum höfuðskyldum.

 Á meðan þurfum við að undirbúa okkur, vita hvað við viljum og vita að sama í hvaða dilkum sem við erum, hvort þeir heiti karl eða kona, Samfylking eða VG eða í þjóðernis og þjóðlanda dilka eins og Ísland, Austuríki eða Indland. Þá höfum við öll sömu vandamál og viljum öll það sama, réttlátt samfélag.

Af kreppu

Miðvikudagur, september 17th, 2008

“It’s the end of the world as we know it” þessi lína sönglaði aftur og aftur í hausnum mínum á mánudaginn þegar “Lehman Brothers” fór á hausinn, síðast þegar að ég bloggaði var ég mjög nálægt því að skrifa um Kreppu-kapitalista sem að hlaupa undir pilsfald ríkisins þegar það kólnar á mörkuðunum. En svo fannst mér það ekki passa inní bloggfærsluna um bumbulínu, sem dansaði fyrir pabba sinn í gær þegar hann lofaði að segja henni frá indíánum og fleiri merkilegum hlutum í þessum heimi.

En svo er það varla viðeigandi að skjóta á Kapitalista á þessum síðustu og verstu tímum, markaðarnir virðast að hruni komnir og allskonar merkilegir peningamenn vita ekkert hvað þeir eiga að gera, að ráðast að þeim núna er svipað og að kæra ljósmæður, kvelja dýr og yfirleitt koma illa fram við þá sem að geta ekki varið sig. Ég efast reyndar ekki um að Kapitalistar myndu sparka í ketti og nýta sér bága stöðu annara til að græða, það er svona nokkur vegnin í þeirra stefnu - þeir hæfustu lifa af og allt það. En það væri ekki í mínum anda að taka upp þeirra aðferðir og sparka í þá, nú þegar þeir liggja ótrúlega vel við höggi. Það er munurinn á okkur og þeim, fyrir þeim er gróðinn höfðumarkmið og það skiptir litlu máli hvernig hann kemur til. Reyndar tók ég eftir því að þau línurit sem sett eru upp þessa dagana ná flest ekki lengra aftur en 2005 og sína uppganginn til 2007 og svo ná línurnar aftur niður að því sem þær voru 2005 - var 2005 svo hræðilegt ár? Eða hversu langt sem menn reyna að fara aftur, hjálpar það okkur ekki bara við að komast með lappirnar niður á jörðina. Ná ágætistaki á raunveruleikanum og halda fastar í það núna heldur en við höfum áður gert. Satt best að segja held ég að vesturlönd hafi gott af “kreppu”, sem ýmsir segja að sé reyndar aðeins hjá sérstökum gerðum af bönkum. Kanski fær þessi kreppa okkur til þess að hætta að einblína á gróða á hinum og þessum mörkuðum og flytja fókusinn yfir á alvöru gæði - gera okkar umhverfi betra þ.e. koma börnunum okkar á betri stað en við erum á. Ísland fór ekki úr því að vera eitt fátækasta land Evrópu yfir í að vera eitt það ríkasta á ca. 90 árum vegna þess að bankarnir okkar skiluðu svo gríðarlegum arði eða vegna þess að forstjóri Eimskips fékki milljarða í laun. Skólakerfið varð betra, börnin vissu meira ergó fullorðið fólk framtíðarinnar vissi meira og þannig stóð samfélagið sig betur. Við gætum öll vitað svo miklu meira, sem sýnir sig einna helst í því hvernig við rekum samfélagið okkar. Dæmi: Í staðin fyrir að prenta ljóð eftir skáld er sett fram hugmynd um að reisa styttu af því, með hvoru er skáldi sýnd meiri virðing - að lesa ljóð þess eða gera eftirmynd af útliti þess?

Mig vantar að komast í skóla, fá nýjar hugmyndir og rifja upp gamlar, sem betur fer er stutt þar til skólinn byrjar og ég ætti í rauninni að vera að vinna að verkefni en ekki blogga.

Kreppa er bara hugarástand og tækifæri til að breyta því sem miður fór. Endilega nýtið það.

Lalli 

Skvísufréttir

Laugardagur, ágúst 9th, 2008

Það er búið að vera margt í gangi hjá okkur Bumbulínu þessa dagana. Við fórum fjölskyldan saman í mæðraskoðun á fimmtudaginn og ljósmóðirin varð rosalega skotin í Bumbulínu, sagði að hún væri fyrirmyndarbarn og passleg í alla staði. Við vissum það nú áður en við fórum í skoðunina en það er alltaf gott að fá staðfestingu á því frá “fagmanni” í svoleiðis málum :-) Við fórum svo seinna um daginn í sónar og Ragnheiður læknir var líka rosalega ánægð með Bumbuskottið okkar, sagði að hún væri alveg eins og hún á að vera á þessum tíma. Hún var líka alveg viss um að Bumbulína er stelpa þannig að ég þori nokkurnveginn að prjóna bleika peysu fyrir hana. En auðvitað er okkur alveg sama um hvort þetta er Bumbulína eða Bumbus, bara að það komi heilbrigt út úr bumbunni, það er fyrir öllu.

Svo er ég búin að vera að reyna að skrá mig á atvinnuleysisbætur því það eru ekki til neinar bætur fyrir konur sem eru óléttar/ófrískar/þungaðar/barnshafandi/vanfærar (við íslendingar eigum svo frábær orð yfir þetta ástand) og eru orðnar þreyttar en ekki veikar, geta svosem alveg unnið en það er ekki alveg optimal. Þannig að svo við færum ekki alveg á kúpuna þá ætla ég að reyna að fá smá pening frá ríkinu til að hjálpa okkur að brúa þessa 2 mánuði þangað til að ég fæ fæðingarorlof. Það er bara að reynast flóknara og erfiðara en mér hefði órað, vegna þessa að ég er námsmaður þá á ég eiginlega bara ekki rétt á neinu og má bara lifa á loftinu ef ég fæ ekki vinnu á sumrin. Reglurnar eru semsagt þannig að til að fá 100% bætur þá þarftu að vera búinn að vera í 100% í 1 ár. En þar sem ég er námsmaður og búin að vera það frá því að ég varð 6 ára þá á ég hvergi á lífsleiðinni ár þar sem ég var í 100% vinnu og hvað þá á seinustu 36 mánuðum. Maður má semsagt geyma “bótaréttinn” í 36 mánuði ef maður er námsmaður. Þannig að ég réttsvo næ að skrapa saman 12 vikum á seinustu 3 árum þar sem ég var samfellt nota bene í 100% vinnu, maður má ekki nota nokkar vikur þetta ár og setja saman við vikurnar sem maður vann árið á undan. Þessar 12 vikur gefa mér 25% bótarétt sem er eitthvað í kringum 1000 kall á dag. Víhhí. Ef ég ætti ekki heima hjá mömmu og pabba og ætti ekki svona duglegann mann þá yrði ég held ég að læra að ljóstillífa.

Ég held að það sé alveg ljóst að það er ekki hægt að lifa á sósíalnum á Íslandi. Þetta er ekki alveg hræðilegt fyrir mig því að ég á góða að en hugsa sér fyrir þá sem hafa það ekki svo gott og nú þegar bankarnir eru búinir að loka búðinni hjá sér þá get ég vel skilið að fólk nái ekki endum saman. Hmm erum við ein af ríkustu þjóðum í heimi og förum svona með námsmennina okkar og litla mannin?

Jæja áfram með smjörið, ég er nefninlega búin að brasa margt meira á seinustu 2 dögum. Ég fór loksins í sjónmælingu og komst að því að ég er komin með - 0,75 og -1. Það hlaut að koma að þessu, hélt kannski að ég yrði svarti sauðurinn eða gyllta svínið forever í þessari fjölskyldu og fengi aldrei gleraugu. En ég er búin að velja mér þessi fínu gleraugu með glimmeri á hliðunum :-) Það fer að styttast í myndastund hér á vefnum þannig að ég skelli þá kannski nokkrum myndum inn af gripnum.

Það er nú ekki margt fleira sem við vorum að brasa við stelpurnar, ég var aðeins að ýkja hérna áðan, ég fór bara í klippingu í gær og er orðin rosalega fín.

Nú er bara málið að hvíla sig í dag og prjóna, kannski hlusta aðeins á Fritz Wunderlich syngja Im wunderschönen monat mai e. Schumann. Ég mæli með því á svona fallegum degi.