Ég skrifaði lítið í sumar. Var mest að vinna en náði líka að hafa það gott. Það var notalegt að vera innan um alla sem við höfðum saknað svo mikið. Við þurftum heldur ekki að sjá um margt. Alltaf var eldað dýrindis mat ofan í okkur og algjörlega stjanað við okkur. Skuggi var alltaf hress þegar við vorum með honum eins og allir hinir. En það er líka voðalega gott að vera kominn aftur í sitt eigið húsnæði, verst að það þarf að vera svona rosalega langt í burtu frá öllu fólkinu okkar.
Þetta er mjög skrítið að lifa svona skiptu lífi. Umskiptin sjálf eru oft erfið fyrir mig. Enda er ég að ég held nokkuð vanaföst manneskja. Tók ekki annað í mál frá 5. til 7. bekkjar en að fá samloku með hnetusmjöri með mér í nesti á hverjum einasta degi, og aldrei fékk mín leið á því. Og ég borðaði næstum aldrei skorpuna á fína heimabakaða brauðinu frá Pabba. Það er frekar erfitt að vera búin að venjast einhverju og þurfa svo að skipta yfir í eitthvað allt annað. Þegar maður er búinn að stilla sig inn á það er það alveg frábært en meðan á stillingunni stendur finnst mér þetta nokkuð flókið. Svo finnst mér þetta heldur erfiðara því hvorugur kosturinn er alveg eins og ég vil hafa hann, eins og flestir hlutir eru nú í lífinu. Ef við erum hér í Vín þá erum við allt of langt frá fjölskyldu og vinum á Íslandi, en þegar við erum á Íslandi þá eigum við heima í ferðatöskum. En svona er lífið.
Við brölluðum margt í sumar, ég var að vinna á FSA á lyfjadeild 1 og Slysó. Var samtals í um 150% vinnu helminginn af sumrinu sem kom sér vel peningalega séð. Lalli minn var í byggingavinnu hjá SS byggi og klifraði flótt upp metorðastigann hjá verkamönnunum og var fljótt farinn að setja upp gifsveggi í staðinn fyrir að sópa.
Fjölskyldan mín hittist tvisvar öll saman og var það mjög notalegar stundir. Fyrri helgina fórum við saman í Mývatnssveit í Dimmuborgir og svo í Jarðböðin. Svo á sunnudeginum út á Gáseyri með Skuggaling. Hann gerði Kríurnar algjörlega óðar og fylgdu þær honum hvert sem hann fór. Við vorum nokkuð hress með þetta því meðan þær voru að vesenast í honum voru þær ekki að vesenast í okkur. Seinni helgin var síðasta helgin okkar á Akureyri og vorum við þá mest að pakka og í rólegheitum.
Við fórum til Flateyrar eina helgi á Kambsmótið með mömmu og pabba. Það var rosalega skemmtilegt og langt síðan ég hef farið Vestur. Við gistum yfir helgina hjá Imbu frænku og Hinna. Þau voru gestrisnari en allt og okkur leið mjög vel. Skuggi var með í för og hitti kærustuna sína hana Týru sem Jana og Atli eiga. Hún er svartur Labbi eins og Skuggi og urðu þau rosa góðir vinir. Ég er hér með búin að panta einn hvolp frá því goti:)
Við vorum nú bara frekar róleg um Verslunarmannahelgina og vorum bara kyrr á Akureyri. Kíktum vísu út í Vaglaskóg til Ninnu, Birgis og Lárusar Arnar á sunnudagskvöldinu og við grilluðum saman með mömmu, pabba og Margréti.
Ég fékk nokkuð gott frí í ágúst og ákváðum við Lalli þá að fara saman í smá ferðalag. Við lögðum af stað á Miðvikudagskvöldi og keyrðum austur á Egilsstaði. Gistum þar eina nótt og héldum svo áfram austurfyrir. Stoppuðum á Neskaupsstað og Lalli sýndi mér þar sem hann ólst upp. Næst stoppuðum við á Djúpavogi og fengum okkur kaffibolla í Löngubúð.
Við keyrðum svo áfram og sáum Jökulsárlón og gistum svo í Skaftafelli. Því miður urðum við rafmagnslaus í Skaftafelli en það fór allt vel þegar við fundum loksins rafgeyminn sem er undir aftursætinu í Bimmanum. Ég var orðin nokkuð fúl útí þjóðverjann þá að ganga svona vel frá öllu og hafa allt svo skipulagt að maður finnur ekki neitt þegar maður þarf á því að halda. En allt fór vel að lokum og við komumst af stað. Ég hafði ekki keyrt þessa leið síðan ég var pínu lítil og ég mundi eiginlega ekkert eftir þessum stöðum. Við skoðuðum okkur vel um og stoppuðum þar sem okkur langaði. Enduðum svo í Sundi á Selfossi og keyrðum svo upp í Selvík í bústað sem Landsbankinn á. Ásta og Geiri komu svo um kvöldið á föstudeginum til okkar. Við skoðuðum svo hinn “gullna hring” á laugardeginum og fleira, Gullfoss, Geysi, Þingvelli, Skálholt, Flúðir og margt fleira. Það var alveg æðislegt og svo gaman að sjá þetta aftur með eigin augum en ekki bara alltaf á mynd. Svo keyrðum við heim aftur á Sunnudeginum.
Margrét systir byrjaði svo í Menntaskólanum í haust og á eftir að standa sig alveg ofboðslega vel. Ég efast sko ekkert um það, hún er svo dugleg og skynsöm og þroskuð að hún á eftir að plumma sig vel.
Við kíktum til Essen áður en við komum heim, og var það auðvitað yndislegt eins og alltaf. Torfi og Maja eru alltaf að stækka og þroskast og það verður gaman að fylgjast með þeim í vetur eins og við fengum að gera seinasta vetur. ddddddDANKE schön !
En stærstu og nýjustu fréttirnar eru þær að við Lalli trúlofuðum okkur 21.september 2006 og erum alveg ofboðslega hamingjusöm saman.
Núna er ég búin að skrifa jafn mikið í eina færslu og ég hef skrifað í heild inn á þessa síðu þannig að ég læt þetta gott heita í bili. Við látum heyra meira í okkur núna en í sumar og setjum alltaf inn myndir á síðuna okkar.
p.s ég var að setja inn myndir frá öllu sumrinu inn á síðuna.