Archive for the 'Húsmóðirin' Category

Hvunndagurinn wieder

Miðvikudagur, nóvember 12th, 2008

Loksins er ég búin að koma mér í að skrifa smá inn hérna. Við erum búin að vera alveg á fullu með seinustu daga en mest bara í því að hafa það gott. Mamma og Margrét eru komnar og farnar en það var alveg yndislegt að hafa þær hjá okkur. Amman tók sig vel út með fyrsta barnabarnið og fannst Ásthildi alveg ofsalega gott að kúra hjá henni, eins og öllum hinum.

Ég vona að þið séuð ekki búin að gefast upp á okkur en ég tafðist líka svo því við erum búin að taka svo margar myndir af krúsinni að það var svo erfitt að velja og vinna myndirnar. Við fjölskyldan fengum nefninlega snemmbúna jólagjöf sem var Canon 1000D myndavél eins og þessa

bild tcm83 528923 1

Þegar við sáum hvað Geiri tók flottar myndir af Ásthildi og hversu mikill munur var á myndunum þá fundum við þá lausn á “vandamálinu” og settum bara saman jólagjafapeningana okkar og afmælispeningana mína. Svo var akkúrat þessi myndavél á tilboði þannig að þetta smellpassaði í böddjettið. Okkur fannst nú hálf erfitt samt að kaupa okkur svona dýrann hlut í miðri kreppu en gátum huggað okkur við að vera búin með jólagjafapakkann handa okkur. Svo við vorum í rauninni að spara….hmm…eða hvað?

En ég er búin að ná að setja nokkrar myndir inn frá viku fjögur sem eru teknar á nýju vélina. Það eiga enn eftir að koma fleiri myndir inn í viku þrjú því þar setti ég svo fáar inn í flýti. Svo eru fullt af myndum enn í vélinni sem ég er ekki byrjuð að skoða einu sinni þannig að þið eigið gott í vændum í sárabót fyrir þessa löngu bið. Ég ætla ekki að lofa að láta ykkur ekki bíða svona lengi aftur því ég er ekki viss um að ég geti staðið við það en ég skal reyna mitt besta.

Við erum búin að panta flug heim og lendum í Keflavík kl 4 þann 16. des. Víhhí, ég kemst semsagt heim fyrir afmælið mitt. Við erum að pæla að fara ekki með hana í 3 flug sama daginn. Hanna frænka var búin að lofa okkur að gista hjá sér og erum við að pæla í að þiggja það góða boð. Fara svo norður fyrir 19. Jeijj ég er farin að hlakka til. Við eigum svo flug aftur til Vínar 12. jan þannig að við verðum alveg í góðann tíma heima og náum að knúsa alla mikið og fast.

 

29 Okt 2008 0777 edited 1Annars segjum við bara ofsalega gott, Ásthildur litla er alltaf jafn dugleg og góð. Hún gaf mömmu sinni stórt bros áðan sem bræddi hana alveg. Úff hvernig á maður eftir að geta verið “vond góður” við hana og sagt nei? Sem betur fer þarf ekki að láta reyna á það alveg strax. Svo er kreppan búin að hafa þau góðu áhrif á mig að ég bakaði tvöfalda uppskrift af pabbasnúðum í gær og gerði rice krispies kökur svo ekki þurfi að eyða peningum í bakaríið. Svo keyptum við líka um 2,5 kíló af hakki á tilboði í búðarferðinni okkar á mánudaginn og húsmóðirin tók sig til og gerði kjötfars úr helmingnum og frysti. Nú þarf ég bara að finna rabbabara og gera sultu og þá get ég eldað kjötbollur með brúnni sósu með rabbabarasultu og kartöflumús, mmmm ég fæ alveg vatn í munninn við tilhugsunina.

Jæja ég ætla ekki að hafa þetta lengra núna, takk allir fyrir innlitin og kommentin. Gaman að sjá að þið fylgist með okkur.

Þangað til næst,

Eyrún

Þetta er allt að koma…..vonandi

Sunnudagur, september 28th, 2008

Ekkert skeð enn, Bumbulína hefur það greinilega rosalega gott í bumbunni þrátt fyrir plássleysi. Henni langar að fá að stækka og bolla sig upp aðeins lengur og ekki get ég gert neitt nema bara sætt mig við það. Þannig að við bíðum bara, allt orðið tilbúið fyrir prinsessuna, góð IKEA ferð afstaðin þar sem rúmið, skiptiborðið og fleira nytsamlegt barnadót og annað dót var keypt. Mín er búin að fara í gegnum hreingerningargeðveikina, búin að snúa öllu á hvolf hér í Bandgasse og breyta og gera meira kósý og þrífa. Fann þessa gríðarlegu þörf hjá mér á meðan ég var að baka skonsur í gær að sjóða og þrífa allar kryddkrukkurnar okkar og skipuleggjað þær betur. Þannig að á milli þess sem skonsurnar voru í ofninum var ég að kroppa límmiða af soðnum krukkum, solltið beluð :-) En það er best að reyna bara að sjá skoplegu hliðina á þessu því þegar ég hugsa til þess að ég gæti þuft að bíða í meira en 20 daga í viðbót þá er mér eiginlega ekki hlátur í huga. Langar óstjórnlega að ljúka þessu af og fá að knúsa þá stuttu og loka þessu millibilsástandi.

Í dag á Þórný Linda afmæli, innilega til hamingju með það bestasta, vona að þú hafir það sem allra best í dag. Knús og kossar frá mér og Bumbulínu. Þetta væri nú góður dagur fyrir hana til að velja sér en hún er greinilega svolítil prímadonna og vill hafa sinn prívat dag…ef hann er þá til?

Austurríkismenn eru líka að kjósa nýja ríkisstjórn í dag. Allt í rugli, seinast var eins stjórn eins og við höfum á Íslandi í dag, stóri sósíalflokkurinn og stóri hægriflokkurinn voru saman í stjórn en gátu ómögulega komið sér saman um eitt né neitt þannig að seinustu 2 ár er ekkert búið að gerast í landinu og svo sprakk þetta allt saman í sumar og ákveðið var að kjósa aftur. Svo eru tveir öfga hægriflokkar hérna sem eru stórhættulegir en fá samt um 30% samanlagt og svo grænir sem fá í kringum 10%. Stóru flokkarnir fá svo sitt hvor ca. 30%. Þannig að eins og ég sé þetta, en ég er náttúrulega ekki sérfræðingurinn í þessu á heimilinu, þá er þetta erfið staða fyrir okkur vinsti fólk hér í Austurríki. SPÖ eða sósíalflokkurinn getur ekki farið í stjórn aftur með hægri flokknum ÖVP því það gekk svo hörmulega seinast, þeir leggjast ekki svo lágt að fara í stjórn með fasistum og græni flokkurinn nær ekki nógu góðu kjöri til að nægja í meirihluta. Þannig að þetta lítur alls ekki vel út. En mahl sehen, hvað gerist.

Við Lalli erum ekki búin að vera alveg þau duglegustu í því að taka myndir af Bumbulínu en við tókum okkur til í seinustu viku og smelltum nokkrum myndum af henni…

24 Sep 2008 mynd 0055 edited 1 copy

24 Sep 2008 mynd 0114 edited 1 copy

24 Sep 2008 mynd 0120 copy

mynd 30   g  . 2008 0089 edited 1

Eins og glögg augu hafa tekið eftir erum við búin að fjárfesta í einum Benjamín, húsmóðirin ætlar að gera sitt allra besta til að halda lífi í kornabarni og 2 plöntum í vetur….ég er alveg viss um að kornabarnið fær nóg af ást og umhyggju en ég er hrædd um að mínir ógrænu fingur eigi ekki eftir að vera nóg fyrir plönturnar….en það má alltaf reyna.

Vonandi verður Bumbulína ekki lengur Bumbulína þegar ég skrifa næst, ég er ekki búin að ákveða alveg hvernig þetta verður með síðuna og myndir þegar þær koma, en væntanlega verður myndasíðan læst, ekkert mál að fá lykilorðið þegar þar að kemur, bara senda emil á mig eða Lalla eða kommenta á síðuna.

Þangað til næst

Eyrún

Vaglaskógur

Föstudagur, ágúst 15th, 2008

Við Lalli skelltum okkur í Vaglaskóg á mánudaginn á fína húsbílnum þeirra Ástu og Geira. Það var rosalega notalegt, við vorum bara í rólegheitum, þetta var lúxus útilega, við í hlýjunni inní húsbíl eða í hlýjunni og sólinni rétt fyrir utan húsbílinn en við gerðum ekki mikið meira. Ég prjónaði og prjónaði og Lalli las og svo spiluðum við scrabbl á kvöldin. Seinna kvöldið vorum við mjög góð í Scrabblinu og gerðum mörg fyndin orð. Svo þurfti Lalli að fara að vinna seinnipartinn á miðvikudaginn þannig að þá lulluðum við í bæinn aftur.

Það er svo notalegt að vera í útilegu, vakna þegar maður vill, kveikja á rás 2 og fá sér góðann morgunbita. Mest fannst mér samt notalegt að hafa Lalla með mér allann daginn. Ég var farin að sakna hans svo mikið því hann var búinn að vera að vinna svo mikið og líka allann daginn, farinn áður en ég vakna og kemur svo um 8, við borðum kvöldmat og náum um 2 tímum saman áður en hann lognast útaf. Ég er svo vön því að deila mestan partinn af deginum með honum og hafa hann hjá mér að þetta er hálf skrítið og erfitt að vera svona mikið í burtu frá honum. Hann er líka svo duglegur fyrir Bumbulínurnar sínar og vinnur og vinnur. Ég hlakka bara til þegar við förum aftur út og höfum september saman í fríi og undirbúningi.

En við hlustuðum mikið á útvarpið í útilegunni, eitthvað sem ég hef ekki gert mikið af seinasta ár. Ég hlusta eiginlega bara á útvarpið hér á Íslandi. En ég heyrði þá 2 ný lög sem eru svo flott, þau eru alveg á repeat hjá mér núna. Það er nýja lagið með Hjaltalín - Þú komst við hjartað á mér og nýja lagið með Coldplay - Viva la vida. Snilldar lög. Þarf eiginlega að hlusta meira á útvarpið úti til að heyra meira af nýrri tónlist, eða hafa kveikt á Gotv.

Við Lalli skráðum okkur í sambúð í gær, núna á ég ekki lengur heima heima hjá mér, heldur í Klettaborginni. En það er nú næstumþví heima. Við erum rosa glöð og sæl með það að vera offissíallí saman, en ég veit ekki alveg hversu mikið þetta breytir okkar tilvistí pappísheimum. Allavegana þarf Lalli þá ekki að borga mér meðlag þegar Bumbulína kemur í heiminn.

Ég kláraði samfestinginn sem ég var að prjóna fyrir Bumbulínu í gærkvöldi og keypti í næstu prjónaverkefni í gær. Núna er ég byrjuð á bleikri, sætri peysu:-). Það er verkefnið í dag, prjóna, horfa á Will og Grace og kíkja svo á tónleika í kvöld. Hljómar bara nokkuð vel.

Nú ætla ég að halda áfram með peysuna, en ég ætla að skella nokkrum myndum inn í lokinn. Versegú.

IMG 1437
Lalli Grillmeistari

IMG 1439
Eyrún, Bumbulína og Húsbíllinn

IMG 1440
Eyrún og Bumbulina með sólina í augunum

IMG 1447
Skötuhjúin

IMG 1466
Scrabblið góða

IMG 1470
Við offissíallí saman í sambúð :-)

Skvísufréttir

Laugardagur, ágúst 9th, 2008

Það er búið að vera margt í gangi hjá okkur Bumbulínu þessa dagana. Við fórum fjölskyldan saman í mæðraskoðun á fimmtudaginn og ljósmóðirin varð rosalega skotin í Bumbulínu, sagði að hún væri fyrirmyndarbarn og passleg í alla staði. Við vissum það nú áður en við fórum í skoðunina en það er alltaf gott að fá staðfestingu á því frá “fagmanni” í svoleiðis málum :-) Við fórum svo seinna um daginn í sónar og Ragnheiður læknir var líka rosalega ánægð með Bumbuskottið okkar, sagði að hún væri alveg eins og hún á að vera á þessum tíma. Hún var líka alveg viss um að Bumbulína er stelpa þannig að ég þori nokkurnveginn að prjóna bleika peysu fyrir hana. En auðvitað er okkur alveg sama um hvort þetta er Bumbulína eða Bumbus, bara að það komi heilbrigt út úr bumbunni, það er fyrir öllu.

Svo er ég búin að vera að reyna að skrá mig á atvinnuleysisbætur því það eru ekki til neinar bætur fyrir konur sem eru óléttar/ófrískar/þungaðar/barnshafandi/vanfærar (við íslendingar eigum svo frábær orð yfir þetta ástand) og eru orðnar þreyttar en ekki veikar, geta svosem alveg unnið en það er ekki alveg optimal. Þannig að svo við færum ekki alveg á kúpuna þá ætla ég að reyna að fá smá pening frá ríkinu til að hjálpa okkur að brúa þessa 2 mánuði þangað til að ég fæ fæðingarorlof. Það er bara að reynast flóknara og erfiðara en mér hefði órað, vegna þessa að ég er námsmaður þá á ég eiginlega bara ekki rétt á neinu og má bara lifa á loftinu ef ég fæ ekki vinnu á sumrin. Reglurnar eru semsagt þannig að til að fá 100% bætur þá þarftu að vera búinn að vera í 100% í 1 ár. En þar sem ég er námsmaður og búin að vera það frá því að ég varð 6 ára þá á ég hvergi á lífsleiðinni ár þar sem ég var í 100% vinnu og hvað þá á seinustu 36 mánuðum. Maður má semsagt geyma “bótaréttinn” í 36 mánuði ef maður er námsmaður. Þannig að ég réttsvo næ að skrapa saman 12 vikum á seinustu 3 árum þar sem ég var samfellt nota bene í 100% vinnu, maður má ekki nota nokkar vikur þetta ár og setja saman við vikurnar sem maður vann árið á undan. Þessar 12 vikur gefa mér 25% bótarétt sem er eitthvað í kringum 1000 kall á dag. Víhhí. Ef ég ætti ekki heima hjá mömmu og pabba og ætti ekki svona duglegann mann þá yrði ég held ég að læra að ljóstillífa.

Ég held að það sé alveg ljóst að það er ekki hægt að lifa á sósíalnum á Íslandi. Þetta er ekki alveg hræðilegt fyrir mig því að ég á góða að en hugsa sér fyrir þá sem hafa það ekki svo gott og nú þegar bankarnir eru búinir að loka búðinni hjá sér þá get ég vel skilið að fólk nái ekki endum saman. Hmm erum við ein af ríkustu þjóðum í heimi og förum svona með námsmennina okkar og litla mannin?

Jæja áfram með smjörið, ég er nefninlega búin að brasa margt meira á seinustu 2 dögum. Ég fór loksins í sjónmælingu og komst að því að ég er komin með - 0,75 og -1. Það hlaut að koma að þessu, hélt kannski að ég yrði svarti sauðurinn eða gyllta svínið forever í þessari fjölskyldu og fengi aldrei gleraugu. En ég er búin að velja mér þessi fínu gleraugu með glimmeri á hliðunum :-) Það fer að styttast í myndastund hér á vefnum þannig að ég skelli þá kannski nokkrum myndum inn af gripnum.

Það er nú ekki margt fleira sem við vorum að brasa við stelpurnar, ég var aðeins að ýkja hérna áðan, ég fór bara í klippingu í gær og er orðin rosalega fín.

Nú er bara málið að hvíla sig í dag og prjóna, kannski hlusta aðeins á Fritz Wunderlich syngja Im wunderschönen monat mai e. Schumann. Ég mæli með því á svona fallegum degi.

Júróvisjón

Sunnudagur, maí 25th, 2008

Það var náttúrulega æðislegt að við komumst loksins í úrslitin og rosalega gaman að geta haft smá stemmingu á úrslitakvöldinu. Við buðum íslensku krökkunum til okkar og það var rosa stuð hjá okkur. Leiðinlegt bara hvað það var sjaldan sem við fengum stig, en við stóðum okkur samt rosalega vel, það er bara erfitt að keppa við austrið. En það er kannski allt í lagi, afhverju mega þau ekki standa sig vel? Uppáhaldslagið mitt fyrir utan íslenska var lagið frá Úkraínu, var frekar fúl að það hefði ekki bara unnið. Mér fannst lagið frá Rússunum ekki svo fínt. Úff ég er að hlusta á rússalagið núna á youtube frá undanúrslitunum og metrókallinn er nú bara nokkuð vel falskur. En jæja það er nú ekki hægt að gráta þetta meira, við verðum bara að halda áfram að taka þátt og vera með stemmarann á lofti. ÁFRAM ÍSLAND.

Annars er ég ennþá kvefuð og fór þess vegna ekki með í vorferðina hjá Íslendingafélaginu í dag. Mega fúlt, en ég fæ að fara í kvöld og hitta Önnu Bryndísi vinkonu mína og knúsa hana aðeins í staðinn. Ég ætla bara að hafa það notalegt í dag og prjóna. Ég er orðin alveg handavinnu óð, kláraði húfuna í gær og nú er það bara að byrja á treflinum. Ég ætla svo að taka myndir af þessu og setja hérna inn. Þetta er bara svo gaman, líka í fyrsta skipti sem ég er að gera eitthvað sem ég get svo hugsað mér að nota.

Ég hugsa að það stefni samt allt í það að ég geti ekki farið í skólann á morgun:( ég get lítið sungið með svona stíflað nef. Þó svo að það sé nú voðalega lítið á röddinni.

En við fórum á föstudaginn í 20.vikna skoðunina og þá leit allt svona glimrandi vel út. Sónarkallinn var bara rosa skotinn í krúttinu okkar sem við vorum líka, við brostum alveg hringinn allann daginn eftir skoðunina. Ohh þetta er svo góð tilfinning, ég get bara varla beðið eftir því að fá barnið í hendurnar. En tíminn er nú búinn að vera fljótur að líða hingað til og hann verður örugglega áfram fljótur að líða, Hanna og Dóri fara að koma til okkar, svo eru bara prófin og svo förum við heim. Svo verður tíminn örugglega ekki lengi að líða heima, alltaf svo margt að gera og gott fólk til að vera í kringum. Svo kemur september og þá er bara mánuður til stefnu og við höfum fullt að gera þá að undirbúa komu erfingjans. Víhhí.

En ég ætla að koma mér vel fyrir uppí sófa og horfá Gilmore og prjóna.

Bestu kveðjur frá Vínarborg

Eyrún og Bumbulína

Kanilsnúðabakstur

Miðvikudagur, mars 21st, 2007

Ég er tvisvar búin að vera dugleg og baka kanilsnúða í nesti fyrir hjólatúrana sem við Lalli erum búin að fara í seinustu tvær helgar. Þann síðari getið þið lesið um hjá Lallanum en ég nenni ekki að skrifa um hann núna. En hinsvegar er ég búin að fatta aftur hvað það er gott að fá sér kanilsnúða, og hvað það er auðvelt að baka þá. Pabbi var svo góður við okkur systurnar og gerði oft svona kanilsnúða handa okkur..mmm…en allavegana ákvað ég þess vegna að setja uppskriftina hérna inn…versegú

Afmæli og uppskriftir

Sunnudagur, apríl 30th, 2006

Mamma og PabbiÍ dag á hann pabbi besti afmæli, hipp hipp húrra. Til lukku og hafðu það sem allra best í dag og njóttu afmælisgjafarinnar vel í sumar.

Við hjónaleysin erum búin að taka saman nokkrar af uppskriftunum hans Lalla og setja þær hér inn á vefinn. Í kvöld gerði Lalli alveg dýrindis gúllash sem smakkaðist alveg ofboðslega vel. Ég mæli eindregið með því. En frá kokkinum fylgja þau skilaboð að uppskriftirnar eigi aðeins að nota til hliðsjónar því að hver fylgir eiginlega alltaf alveg uppskriftinni ég bara spyr?

Segið okkur endilega frá ef þið prófið, hvað ykkur fannst og hvað má bæta.

En njótið vel og lengi.