immer wiieeder immer wiieeder immer wiieeder österreich!
Sunnudagur, júní 8th, 2008Fyrstu leikirnir í EM 2008(TM) búnir, Portúgalar sýndu hvað í þeim býr, en það er auðvitað ekki hægt að dæma alveg um hvernig liðin eru fyrr en í næstu umferð. Þegar að varnarliðin Sviss og Tékkland mæta sókndjarfari Tykjum og Portúgölum, þá sér maður þetta betur.
Í dag leika Austurríkismenn sinn fyrsta leik á móti Króötum, miðað við hvað maður les heima trúa því fæstir að Austurríki nái að gera nokkurn skapaðan hlut. En lið sem kemst 3:0 yfir gegn Hollandi getur ekki verið alslæmt, ég trú því að mínir menn stríði hinum liðunum og geti jafnvel komist í átta liða úrslit. Það er samt fyndið að lesa hvað íslenskir fjölmiðlamenn skrifa um austurríska liðið, á visir.is stóð að liðið treysti á Rene Aufhauser og Joacim Standfest. Ok, Aufhauser er “tudda”-miðjumaðurinn þeirra og öflugur í loftinu, en það er langt því frá að liði treysti sérstaklega á Standfest, í vörninni eru það frekar Stanzl hjá Spartak Moskau, Emanuel Pogatetz hjá Middlebrough og svo 20 ára gamli Sebastian Prödl. En fyrst og fremst treystir liðið á Andreas Ivanschitz sem er fyrirliðinn þeirra 25 ára “Spielmacher” þ.e. sá sem liðið treystir til að byggja upp skyndisóknir og taka föst leikatriði. Svo vona ég að Ümit Korkmaz og Erwin Hoffer sýni hvað í þeim býr, ungir og snöggir gaurar sem gætu strítt gömlum varnarmönnum eins og t.d. hjá Króatíu.
Við skellum okkur niður á Fan Zone í miðborg Vínar á eftir og fylgjumst með leiknum, íklædd rauðu og hvítu.
Ciao,
Lalli