Archive for the 'Fiktarinn' Category

Prófin, hitinn og allt sem því fylgir

Fimmtudagur, júní 26th, 2008

Nú er sko orðið almennilega heitt, ég var búin að gleyma hvað það er óþægilegt. Hér sit ég varla í fötum með viftuna á fullu og er að kafna. Ég ætti líka að vera að læra en ég bara get ekki hugsað í þessum hita. Prófin eru samt búin að ganga ágætlega, Stilkunde eða Stílfræðin er tæp en ég get tekið prófið bara aftur eftir ár ef ég fell. Lalli er búinn að standa sig frábærlega eins og við er að búast af honum. Fullt að gera, hiti, EM en tekur 4 próf á 2 dögum eins og að drekka vatn…hehe vá tók mig rosalega langann tíma að finna þessa asnalegu líkingu. Það er gott að við förum heim eftir viku, íslenskan er orðin frekar einhæf.

 

nokia e65Ég tók upp á því að skoða nýtt símafyrirtæki um helgina því samningurinn minn var útrunnin hjá því gamla og það var ekki alveg að gera sig með nýjustu tækni og flotta síma. Svo finnur maður sér alltaf eitthvað annað til að gera þegar maður á að vera að læra (t.d. að blogga). En ég semsagt skipti yfir til drei og fékk nýjann síma sem er gríðarlega tæknivæddur. Það á mjög vel við tæknisjúku Eyrúnu:) En númerið mitt er alveg það sama þannig að þið þurfið ekkert að hafa áhyggjur af því að ná ekki á mér. Ég er í rosalega góðu sambandi núna.

En nú verð ég að fara að taka mig á og læra.

Bið að heilsa ykkur í bili

Eyrún

Myndir og EM

Mánudagur, júní 16th, 2008

Ég fattaði loksins hvernig ég kem nýjustu myndunum okkar inn á netið, gamla myndasíðan er ekki að virka eftir að við fengum okkur nýja tölvu. En núna er ég bara búin að setja upp nýja undirsíðu þar sem þið getið skoðað myndirnar okkar. Hanna og Dóri voru hjá okkur seinustu viku og við tókum að sjálfsögðu myndir. Þið getið séð þær hér.

Svo er mikilvægasti leikur EM í kvöld, Austurríki - Þýskaland. Við styðjum okkar menn að sjálfsögðu fram í rauðann dauðann, ætlum að hitta Kristínu og kannski einhverja fleiri og horfa á leikinn saman. Held að við treystum okkur ekki inn á FanZone því það verður örugglega pakkað og kannski ekki svo sniðug stemming hvernig sem leikurinn fer. Það er líka oft svo erfitt að komast inn fyrir svona bumbulínu eins og mig. Allir að troðast og ýta. Lalli var alveg að drepast í fótunum að halda öllum brjálæðingunum frá bumbulínu seinast þegar við fórum inn. Að vísu nýtti ég mér kerfið í eitt skipti og fékk að fara inn um fatlaða innganginn :) Kallinn spurði mig að vísu hvort maður væri nokkuð fatlaður þegar maður væri ófrískur og ég neitaði því auðvitað en hann hleypti mér í gegn. En það verður allavegana stemming hjá okkur hvar sem við verðum.

Wien wird Cordoba lalalalala……immer wiiiieder immer wiiiiieder immer wiiiieder österreich…..jetzt gehts los:)

Eyrún

Ný www.eunnarsdottir.net/blog

Mánudagur, júní 2nd, 2008

Eins og þið kannski sjáið höfum við fengið liðsauka hingað til okkar á síðuna, en núna verðum við fjölskyldan saman með þessa síðu. Hér getið þið þá lesið hvað á daga okkar drífur og allskonar þankaganga. Víhhí við Bumbulína erum rosalega ánægðar að Lalli hefur ákveðið að vera með okkur í bloggheimum. En ég er búin að vera rosa dugleg að bæta öllu við fyrir Lalla og setti líka nokkar af gömlu færslunum hans hingað inn. Svo verður hann að hanna þetta betur fyrir sig, setja inn tengla og svoleiðis. Svo gerði ég undirsíður fyrir okkur öll sem þið sjáið uppi, og þar eru nokkar myndir af Bumbulínu sem við eigum á hennar síðu.

Svo hef ég verið að reyna að klippa niður upptökuna af 3. Jahrgangskonzert sem var að vísu í apríl….(soldið sein) en það er ekki alveg að virka hjá mér, ætla að athuga eitt annað forrit sem kannski hjálpar mér.

Við fórum aftur í gær í Volksgarten en fengum til okkar liðsauka því hún Anna Bryndís kom og var hjá okkur í smá tíma meðan mamma hennar og pabbi fóru á dansnámskeið. Það var alveg ofboðslega notalegt enda er hún með eindæmum yndislegt barn.

IMG 1024

Anna Bryndís og Lalli

IMG 1057

Við öll saman

Held að ég sé búin að ná að klippa upptökurnar svo að hér koma þær:

Eyrún Unnarsdóttir - Vergiftet sind meine Lieder

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Eyrún Unnarsdóttir - Erbarme dich

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Fyrra ljóðið er eftir Franz Liszt og seinni arían er eftir J. S. Bach. Þetta er tekið upp á 3. Jahrgangskonzert sem voru haldnir þann 15. apríl 2008.

Svo fórum við aftur í dag í Volksgarten, alveg að njóta þesss að vera úti í sólinni og niðrí bæ þangað til að allur skríllin kemur hingað á Evrópumótið. Voksgarten verður lokaður að því ég best veit þannig að við verðum að finna okkur einhvern annan garð til að flatmaga í og lesa, við vorum nefninlga ekki bara að hafa það notalegt, vorum líka að læra..:) Mjög duglegir krakkar. Við skulum nú fá eina mynd til að staðfesta það.

IMG 1077

Annars óska ég ykkur góðrar viku og ég þarf að drífa mig í bólið svo ég verði ekki þreytt á morgun.

Eyrún

Nýjar græjur

Þriðjudagur, mars 27th, 2007

Ég fékk að kaupa mér rosalega flottar græjur fyrir helgi. Það er glænýr sony hljóðnemi sem tekur upp í yndislegum gæðum og svo keypti ég mér líka olympus digital upptökutæki. víhhí…kostaði alveg solltinn pening en einhverntímann þurfti ég að kaupa svona dót og afhverju þá ekki bara fyrr en seinna. Þá er líka svo auðvelt að taka upp tónleika og svoleiðis og senda heim þeim sem komast ekki að hlusta. En svona lýta græjurnar út:

En í tilefni af kaupunum þá settumst við Lalli inn á kaffihús á föstudaginn og hann samdi smá ljóð á staðnum til að prófa græjuna. Og í tilefni af því að ég er búin að græja það að ég get sett tónlist inn á síðuna þá ætla ég að leyfa ykkur að heyra ljóðið.

Lalli - Kermit froskur

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Svo er aldrei að vita að ég setji eitthvað af mér hérna inn ef ég næ einhverntímann einhverju góðu á band :)

Tónlistarprufa

Sunnudagur, mars 25th, 2007

Damien Rice - Amie

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.