Ísland, fagra Ísland.
Miðvikudagur, ágúst 6th, 2008Þá er helmingurinn af Íslandsdvölinni okkar þetta sumar liðinn. Ég og Bumbulína erum búnar að vera duglegar að vinna á Lyfjadeildinni með Mömmu/Ömmu. Núna erum við að reyna eftir bestu getu að vera sem rólegastar svo við fáum alveg örugglega ferðaleyfi heim í september. Ég hef nú samt alveg nóg af verkefnum, þarf að vera dugleg að prjóna heimferðarfötin fyrir Bumbulínu, lesa allar íslensku jólabækurnar sem ég get ekki tekið með mér út, blogga, sofa því ég býst ekki við því að sofa mikið á næstunni og njóta lífsins. Lalli er búinn að vera rosalega duglegur að vinna og er eiginlega alltaf í vinnunni eða að hjálpa í Klettaborginni eða Eyrarlandsveginum.
Við erum búin að hafa það gott í júlí, Lára, Hrafnkell, Margrét og Daníel komu öll norður helgina sem við komum og við höfðum það gott saman fjölskyldan. Svo var ættarmót í fjölskyldunni hans Lalla eina helgina í júlí, þar voru allir afkomendur Ömmu Hönnu samankomnir. Það var alveg æðislega gaman að hitta alla og vera saman þá helgi. Helga og Ragnar komu eitt kvöldið til okkar í kaffiboð og við bumburnar fengum að blaðra og blaðra um allt og ekkert sem tengist því að vera með bumbuskott í bumbunni, úff hvað það var notalegt. Svo er Þórný komin til landsins og það er búið að vera yndislegast í heimi að dandalast með henni, fara í flottasta kaffiboð sem ég veit um til hennar og blaðra um allt sem við höfum verið að gera seinustu árin. Svo gott að koma aftur í Eikarlundinn sem var nú hálfgert annað heimili mitt þegar ég var yngri.
Planið fyrir ágúst er að hvíla mig og klára öll verkefnin mín, fara svo suður 23. ágúst með mömmu og eyða seinustu vikunni í ágúst á Eyrarbakka með Mömmu og Pabba og vonandi einhverjum fleirum úr fjölskyldunni, svo koma allir allavegana á föstudeginum og við ætlum að vera saman aftur fjölskyldan helgina áður en við fljúgum út. Svo er brottför heim 2. september.
Nú er ég búin að brjóta ísinn aftur og á þá vonandi auðveldara með að blogga meira. Þarf að setja eina góða bumbulínumynd hérna inn fljótlega.
Til hamingju með afmælið besta besta stóra systir, vonandi hefuru það gott í dag bestasta. Hlakka til að sjá þig næst.
Kv, Eyrún og Bumbulína