Ásthildur

18 Okt 2008_0260 edited-2.jpg

Ég heiti Ásthildur Lárusdóttir og fæddist kl 14:27 á
Semmelweis Klinik í Vínarborg þann 04. Október 2008. 
Ég var 3,36 kg þegar ég fæddist og 52 cm.

Það er ekki enn búið að skíra mig en ég er nefnd í höfuðið
á ömmu minni og erum við alnöfnur.  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

MYNDIR   FÆÐINGIN   DAGBÓK


Þarna er ég enn í bumbunni hennar mömmu

IMG

IMG 1

Ég er Vog

Börn í vogarmerkinu eru oft glaðleg og broshýr og eru oftar en ekki börnin sem fá bros frá hinum sem bíða á biðstofu læknisins. Þau eru sjarmerandi og heilla aðra upp úr skónum. Félagslyndi einkennir vogina frá fyrstu tíð og litla vogin elskar að hafa margt fólk í kringum sig. Vogarbarn sem þarf að búa við einangrun getur orðið geðstirt, innhverft og óöruggt en þegar allt leikur í lyndi er það opið og hresst. Vogin á mjög erfitt með að gera upp hug sinn og virðist oft hafa lítinn viljastyrk. Þess vegna er mikilvægt að foreldrar hjálpi voginni að rækta með sér sjálfstæði og ákveðni meðal annars með því að fela henni ákveðin verkefni sem reyna á ákvarðanatöku. Líklegt er að Vogin spyrji álits og því er hægt að svara með því að spyrja: “Hvað finnst þér?” Síðan þarf að gefa henni næði til að vega og meta hlutina áður en hún tekur ákvörðun. Vogin er listræn í eðli sínu og mikilvægt að hlúa að þeim eiginleikum og skapa henni aðstöðu til að þroska listræna hæfileika sína.