Myndaalbúm
Núna er ég búin að vera að tölvunördast aðeins, sá hvað Helga og Humi voru með flottar græjur í kringum myndirnar sínar af Snæfríði Eddu og varð öfundsjúk. Náði að mastera þessa tækni hjá þeim og er núna búin að herma. Vonandi verðið þið jafn ánægð og moi. En nú þarf ég að fara að sofa í hausinn á mér.
desember 9th, 2008 at 11:38 am
Hæ.
Maja spurði okkur um daginn hvað orðið nörd þýðir, ég panikkaði strax og sagði henni að það væri nú ljótt orð og mætti aldrei nota um fólk því það gæti sært það. Þá sagðist hún hafa haldið að það væri flott orð yfir þá sem væru rosalega góðir í einhverju, eins og þeir sem væru tölvunörd, þeir væru svaka góðir í tölvum. Svo kannski breytist merkingin á orðinu með nýrri kynslóð
Ég er allavega öfundsjúk út í Eyrúnu tölvunörd, þetta er mjög flott hjá þér og miklu skemmtilegra að skoða myndirnar svona
Bestu kveðjur, knús og kossar,
Hanna Lára.
desember 9th, 2008 at 11:40 pm
Ég var að skoða nýju myndirnar svona í fimmta sinn, og ekki skemmdi þetta fyrir. Rosa dugleg, þetta hefði ég ekki ráðið við að gera!