2.mánaða stelpa
Já stelpan okkar er sko orðin stór, varð 2. mánaða á fimmtudaginn og svo fæddist gíraffastelpan vinkona mín hún Snæfríður Edda bara daginn eftir þannig að það er næstum því upp á dag 2 mánuðir á milli okkar. Við hlökkum alveg ofsalega mikið til þess að fá að knúsa hana.
Við fórum á “afmælisdaginn” minn til læknisins í mjaðmasónar, þeir hérna eru voðalega stressaðir á mjöðmunum, eitthvað sem báðar ömmurnar kannast ekki við að heiman. En eins og við var að búast þá var allt í lagi með mjaðmirnar hennar Ásthildar. Svo var hún mæld og vigtuð og er orðin 57,5 cm og 4,67 kg. Rosalega dugleg stelpa.
Núna er hún líka orðin dugleg í að hreyfa sig, farin að sparka útí loftið og hreyfa hendurnar upp og niður, rosa hratt. Það virðirst líka vera mjög gaman og hjalar hún út í eitt á meðan, algjört krútt. Við Lalli getum ekki hætt að horfa á hana á meðan og fá að fylgjast með hvað hún þroskast hratt. Við fórum saman í bað í vikunni og það var sérstaklega gaman að sprikla í vatninu, hún gusaði og gusaði þannig að Lalli varð bara hálfblautur að reyna að taka upp myndband af herlegheitunum
Svo er stelpan orðin tilbúin í ferðalagið, komin með Neyðarpassa og allt svo að Bretarnir hleypi okkur nú heim til Íslands. Við þurftum að fara með hana í passamyndatöku og allt, kallinn var ekki alveg nógu ánægður með það að þurfa að taka mynd af svona lítilli stelpu, því hendurnar mega víst ekki sjást á myndinni af þeim sem heldur höfðinu uppi á svona litlu kríli, það er nú alveg sjálfsagt að þau geti nú bara haldið hausnum uppi sjálf…er það ekki? Solltið bilað.
Bara 10 dagar í heimkomu…
desember 6th, 2008 at 8:26 pm
En sæt mynd af litlu vinkonu minni:) Hún er orðin svo stór, og búin að fá passa og allt. Það munar ekki um það! Mér finnst ótrúlegt að hún sé orðin 2. mánaða, en enn ótrúlegra finnst mér að ég fái að sjá ykkur eftir 10 daga! jii hvað ég hlakka til.
Ég var að gera ungbarnaskoðun á nýfæddum krílum á sjúkrahúsinu á fimmtudaginn og þá var hluti af skoðuninni að skoða vel mjaðmirnar og hvort að hreyfigetan var eðlileg. Og ef það var grunur á einhverju afbrigðilegu átti að fylgjast náið með því…ooo þau voru svo sæt öll þessi litlu kríli.
Njótið síðustu daganna í Bandagasse.
Stórt knús frá mér
desember 6th, 2008 at 9:26 pm
úff já hvað við hlökkum líka til…mér finnst samt tíminn ekki haggast…hann líður svo hægt…
Ég ætti bara að hlusta á Svölu Björgvins vinkonu mína….Ég hlakka svo til…ég hlakka alltaf svo til…
Ok…já mér datt þetta í hug með mjaðmirnar…veistu hvað það er sem á að vera óeðlilegt? Eða hvað það er sem hefur áhrif á hreyfigetuna? Svo væri gaman að vita hvort þetta sé gert svona heima á íslandi..við erum nefninlega búin að fara tvisvar með hana í mjaðmasónar…það er bara standard hér úti…
æji voru krílin alveg nýfædd..ohh þau eru svo krumpuð og sæt. Þú heppin Þórný.
Knús bestabesta frá okkur
desember 7th, 2008 at 11:37 am
jisúss.. þessi litla stelpa verður fallegri með hverjum deginum sem líður..
ég get ekki beðið eftir að fá ykkur til mín og soffíu í brunch og kósí þegar þið komið heim.. það verður svo gott að fá ykkur öll..
ég er búin að vera að ræða rosalega við mömmu útaf svona fæðingum og þannig, soffía sagði mér nefnilega að oft væri fæðing svipuð hjá mæðgum, þannig að auðvitað yfirheyrði ég mömmu.. held að mamma sé farin að draga óþarfa ályktanir en það er allt í lagi
en það sem ég fékk að vita var að ég var 11merkur þannig að ég vona innilega að ég muni bara eignast svona nett og lítið barn líka..
æji.. rosalega verður gott að fá ykkur, ég fæ alveg fiðrildi í magann.. það var líka yndislegt að heyra í þér um daginn eyrún þó að tíðindin sem ég var að bera þér hafi ekki verið eins yndisleg.. samt gott að heyra röddina þína..
innilegar ástarkveðjur til ykkar allra í bandgasse og ég vona að þið eigið góða ferð fyrir höndum heim til íslands.. ykkur verður tekið með hlýu knúsi..
svala
desember 7th, 2008 at 12:36 pm
Hehe….er eitthvað farið að klingja Svala mín:) en við hlökkum rosalega til að fá að knúsa ykkur þegar við komum…það er náttúrulega skandall að ég sé aldrei búin að hitta Emilíu þannig að það er eins gott að við bætum úr því eftir 10 daga…:)
Já það var gott að heyra í þér besta og gott að þú náðir að segja mér þetta áður en þetta var komið útum allt á netinu…ég er ofsalega þakklát fyrir það elskan mín. Svo verður gott að geta talað saman svona feis tú feis þegar við komum heim…ég þarf rosalega á því að halda.
Ástarkveðjur til baka heim til þín…get ekki beðið eftir knúsinu
Eyrún
desember 8th, 2008 at 12:23 am
Eyrún.. SÆLL!
Við Humi liggjum hérna í hláturskrampa.
Barnið er 2 mánaða og 4.67 kg.
Snæfríður er 2 daga og við seinustu mælingu 4.46 kg.
Hahahahah.. ahahaha.. Hlunk the funk.
Ég get svo sem sjálfri mér um kennt að ná mér í tveggja metra risamann.
Og vá, mjaðmasónar.. djí.. þeir eru alveg frekar hressir á
sónurum þarna úti yfirleitt virðist vera - annað en hér heima.
Enginn hress á sónar hér heima.. nema vandræðalegi þvagfæraskurðlæknirinn.
Segir þér frá honum þegar þú kemur heim.
Hlakka svo til að hitta ykkur.
Knús og ást og allt og allt
H + H + Snæ
desember 8th, 2008 at 1:05 am
Hehe…þið eruð fyndin..Snæfríður Edda var bara svo dugleg að hafa það gott hjá þér Helga mín…og vonandi heldur hún bara áfram að vera svona dugleg og drekkur vel
Ohh ég ég hlakka til að heyra söguna um þvagfæraskurðlækninn…hlakka bara til að heyra allt…andsk***** hvað tíminn líður hægt. Ég bara get ekki beðið meir…
desember 8th, 2008 at 1:29 pm
Jeij, það styttist í að við fáum að sjást
Við Emilía Snærós bíðum spenntar eftir að fá að sjá ykkur
desember 8th, 2008 at 6:57 pm
Æji hvað hún er sæt og fín alltaf, ótrúlega fín mynd. Get ekki beðið eftir að fá að sjá þennan gullmola og að knúsa þig elsku Eyrún. Mér finnst hún alltaf líkjast þér meira og meira, hún er alveg með Eyrarlandsvegssvipinn á þessari mynd t.d.
Styttist og styttist.. vona að ferðalagið ykkar gangi vel og hlakka svo til að sjá ykkur á Akureyri :*