Varúð! Lalli er að klofna
Sá sem les þennan pistil gerir það á eigin ábyrgð, hann inniheldur lýsingar sem gætu fara fyrir brjóstið á fólk sem heldur að hagkerfi (hér eftir nefnt kerfið) sé skapað af mönnum vildu samfélaginu vel, það er skapa af mönnum sem með því vildu koma sínum hagsmunum að.
—–
Ég á eitthvað erfitt með að einbeita mér þessa dagana, það versta er að það er ekki bara litla pabbarósin sem að stelur athygli pabba síns, heldur hugsa ég of mikið um kreppuna, kapitalisma, úrlausnir, vandamál, ómálefnalegt tuð, gróusögur, ónýt bankakerfi, ónýt myntkerfi - því miður þá skiljið þið hvert ég er að fara. Það er svo sem ekkert nýtt að ég hugsi um það sem er í gangi í heiminum, stjórnmál, mannlegt samfélag - heimsmálin. Það væri nú óeðlilegt að vera í stjórnmálafræðinámi án þess að hafa áhuga á umhverfinu sínu.
Umræðan á Íslandi finnst mér oft vera á svolítið lágu plani, fáir koma með hugmyndir og þeir sem koma með hugmyndir eru í raun og veru bara búnir að laga sínar hugmyndir um úrlausn kreppunnar að þeim hugmyndum sem þeir áttu fyrir krepppu. Sjálfstæðisfokkurinn vill starta kerfinu upp á nýtt, þessu sama sem kom okkur um koll, VG leggur til að við einangrum okkur og varar sérstaklega ESB og gjaldmiðilinum Evru, Framsókn reynir að eyðileggja sig og gengur bara nokkuð vel - enda er það ágætis lausn við ýmsum vanda þ.e. losna við Framsókn, Frjálslyndir þaga enda flytja útlendingar umvörpum úr landi og kreppan er ekki í sjávarútveginum. Hvað gerir Samfylkingin? Reynir að gera málamiðlanir, fara bil beggja og svo fara í ESB. Þar liggur klofningurinn í mér, sem situr í vegi fyrir því að ég vinni ritgerðir og nái fókus. Eigum við litla Ísland annað val en að gera málamiðlun, fá lán og reyna bara að gera betur í þetta skiptið? Vonandi hafa sem flestir sem þetta lesa séð Zeitgeist bæði fyrri og seinni myndina, kerfið sem að stjórnar þessu heimi er meingallað, ósanngjarnt og ósiðlegt. Ein besta og frumlegasta lausnin á vandamálinu væri án vafa að gerast tilraunasamfélag fyrir “The Venus Project”, en það er varla raunhæfur möguleiki, af ýmsum ástæðum eins og t.d. þeirri að ég ræð ekki einn og svo því að þeir sem ráða og eiga mikla peninga og þar af leiðandi hagsmuni að gæta í því samfélagi sem við nú búum í væru varla til í að fórna því bara til að leyfa hinum að líða betur - ef þeir vildu öllum vel væru þeir ekki svona valdamiklir og ríkir og fyrir löngu búnir að koma til móts við aðra. Samkeppni var lykilorðið og ef við pössum okkur ekki þá verður það ásamt græðgi aftur leiðarljós íslensk samfélags.
Ég er sem sagt að klofna, í mér eru tveir helmingar, þið ráðið hvorn þeirra þið teljið betri helminginn. Annar helmingur minn, þetta er líklega hvatvísi hluti minn, vill henda öllu því sem áður hefur verið, taka upp kerfi þar sem samvinna er leiðarljósið og raunverulegt jafnrétti, frelsi og systkinalag ræður ríkjum. Þessi helmingur vill róttæka breytingu, ekki bara lán eða einangrun í sama kerfi. Heldur umpólun, burtu með kerfið eins og það leggur sig. Hinn helmingurinn, e.t.v. sá leiðinlegri og jafnvel skynsamari, vill vegna þess að við erum bara peð stödd mitt í kerfi sem við ein getum ekki umturnað þó við myndum dissa það og búa til samfélag án gjaldmiðils þar sem fólk gerir hlutina vegna þess það vill gera þá en ekki þarf að gera þá. Vegna þess að við getum ekki ein og sér breytt lífi allra þeirra sem lifa í heiminum er skynsamlegra að vinna með þeim í að bæta þetta meingallaða kerfi sem sumir virðast halda að sé náttúrulögmál. Við vinnum í þessu meingallaðakerfi en breytum því innan frá, og vinnum saman með þeim sem þar eru og eru okkur sammála - þeir eru fleiri en margir vilja halda. Það er nefnilega svo sorglegt að meirihluti fólks fellur undir skilgreininguna sem almúgi: eignalaus og valdalaus vegna þess að fjármálakerfið endar alltaf þannig að örfáir græða meðan allir hinir aumingarnir tapa. Hversu margar kreppur það tekur fyrir fólk að skilja þetta er óvíst, en sem hluti af Evrópu erum við betur varin fyrir innlendum siðspilltum eiginhagsmunaseggjum og í fjöldanum er betra að vinna saman gegn kerfinu sem að kom okkur í þessa stöðu.
Það að umbylta Íslandi í flýti núna breytir heiminum að svo litlu leyti að það hefði ekki áhrif á heildarmyndina, en æ fleiri sjá nú hvernig veruleikinn er; lýðræðislega kjörnir fulltrúar fólksins reyna nú að bjarga risafyrirtækjum eins og bílaframleiðendum Þýskalands eða Simens hér í Austurríki. Bankar fá milljarða styrki í samfélögum þar sem ríkið hefur undanfarin ár dregið sig úr mörgum af sínum höfuðskyldum.
Á meðan þurfum við að undirbúa okkur, vita hvað við viljum og vita að sama í hvaða dilkum sem við erum, hvort þeir heiti karl eða kona, Samfylking eða VG eða í þjóðernis og þjóðlanda dilka eins og Ísland, Austuríki eða Indland. Þá höfum við öll sömu vandamál og viljum öll það sama, réttlátt samfélag.
nóvember 21st, 2008 at 2:25 pm
Hæ hæ!!
Það er alltaf gaman að lesa pælingarnar þínar lalli minn og oft vekja þær mann til umhugsunar. En ég ætla að bíða með umræðuna þar til við hittumst, þá verður þú líka búinn að kynnað þér kosti og galla The Venus Project ef ég þekki þig rétt
Annars á Torfi Geir gamlar tátiljur í stær 27-28 sem eru orðnar of litlar, hann ætlar að gefa Ásthildi þær
Sá verður hissa þegar hann fær hana í fangið og sér hversu ogguponsupínulítil hún er
Knús og kossar frá mér og mínum!
Hanna.
nóvember 29th, 2008 at 12:01 pm
Lalli þú hefur vissulega margt fram að færa, en öll kreppa og pólitík virðist lítilfjörlegt í samanburði við að sjá nýjar myndir af Ástinni ykkar?!!!
Mig þyrstir í meira….
nóvember 29th, 2008 at 2:21 pm
hæhæ..bara aðeins að láta vita af okkur.
Lalli er búinn að vera svo duglegur að læra seinustu viku, hann er búinn að sitja við tölvuna öllum stundum að skrifa 3 ritgerðir sem hann skilaði í dag:) Þannig að húsfrúin er ekkert búin að komast í það að vinna myndir. En úr því verður bætt á morgun, en í dag er tiltekt, smákökugerð og glöggkvöld í Bandgasse…
Heyrumst fljótt
Eyrún
desember 7th, 2008 at 1:48 am
Já skemmtilegt að lesa pistilinn þinn, Lalli. Þú ert skemmtilegur penni og kemur þessu vel frá þér. Legg til að þú sendir inn pistla í Fréttablaðið undir “Bakþankar”, væri gaman að sjá þig þar, les þá oft. Annars er Þetta nú ekkert einföld staða sem við erum komin í.
Magnea Ásta er orðin mjög spennt að hitta ykkur um jólin. Hún er að prjóna sokka á Ásthildi, myndarleg stóra frænka
Góða ferð heim.
kv Heiða
desember 8th, 2008 at 1:13 am
Takk Heiða:) Við Ásthildur getum varla beðið eftir að knúsa frændur okkar og frænkur, það verður gaman að sjá hvernig hún bregst við því að hitta loksins önnur börn. Hún verður án vafa ánægð með sokkana sem stóra frænka hennar er að prjóna (krútt:))