Hvunndagurinn wieder
Loksins er ég búin að koma mér í að skrifa smá inn hérna. Við erum búin að vera alveg á fullu með seinustu daga en mest bara í því að hafa það gott. Mamma og Margrét eru komnar og farnar en það var alveg yndislegt að hafa þær hjá okkur. Amman tók sig vel út með fyrsta barnabarnið og fannst Ásthildi alveg ofsalega gott að kúra hjá henni, eins og öllum hinum.
Ég vona að þið séuð ekki búin að gefast upp á okkur en ég tafðist líka svo því við erum búin að taka svo margar myndir af krúsinni að það var svo erfitt að velja og vinna myndirnar. Við fjölskyldan fengum nefninlega snemmbúna jólagjöf sem var Canon 1000D myndavél eins og þessa
Þegar við sáum hvað Geiri tók flottar myndir af Ásthildi og hversu mikill munur var á myndunum þá fundum við þá lausn á “vandamálinu” og settum bara saman jólagjafapeningana okkar og afmælispeningana mína. Svo var akkúrat þessi myndavél á tilboði þannig að þetta smellpassaði í böddjettið. Okkur fannst nú hálf erfitt samt að kaupa okkur svona dýrann hlut í miðri kreppu en gátum huggað okkur við að vera búin með jólagjafapakkann handa okkur. Svo við vorum í rauninni að spara….hmm…eða hvað?
En ég er búin að ná að setja nokkrar myndir inn frá viku fjögur sem eru teknar á nýju vélina. Það eiga enn eftir að koma fleiri myndir inn í viku þrjú því þar setti ég svo fáar inn í flýti. Svo eru fullt af myndum enn í vélinni sem ég er ekki byrjuð að skoða einu sinni þannig að þið eigið gott í vændum í sárabót fyrir þessa löngu bið. Ég ætla ekki að lofa að láta ykkur ekki bíða svona lengi aftur því ég er ekki viss um að ég geti staðið við það en ég skal reyna mitt besta.
Við erum búin að panta flug heim og lendum í Keflavík kl 4 þann 16. des. Víhhí, ég kemst semsagt heim fyrir afmælið mitt. Við erum að pæla að fara ekki með hana í 3 flug sama daginn. Hanna frænka var búin að lofa okkur að gista hjá sér og erum við að pæla í að þiggja það góða boð. Fara svo norður fyrir 19. Jeijj ég er farin að hlakka til. Við eigum svo flug aftur til Vínar 12. jan þannig að við verðum alveg í góðann tíma heima og náum að knúsa alla mikið og fast.
Annars segjum við bara ofsalega gott, Ásthildur litla er alltaf jafn dugleg og góð. Hún gaf mömmu sinni stórt bros áðan sem bræddi hana alveg. Úff hvernig á maður eftir að geta verið “vond góður” við hana og sagt nei? Sem betur fer þarf ekki að láta reyna á það alveg strax. Svo er kreppan búin að hafa þau góðu áhrif á mig að ég bakaði tvöfalda uppskrift af pabbasnúðum í gær og gerði rice krispies kökur svo ekki þurfi að eyða peningum í bakaríið. Svo keyptum við líka um 2,5 kíló af hakki á tilboði í búðarferðinni okkar á mánudaginn og húsmóðirin tók sig til og gerði kjötfars úr helmingnum og frysti. Nú þarf ég bara að finna rabbabara og gera sultu og þá get ég eldað kjötbollur með brúnni sósu með rabbabarasultu og kartöflumús, mmmm ég fæ alveg vatn í munninn við tilhugsunina.
Jæja ég ætla ekki að hafa þetta lengra núna, takk allir fyrir innlitin og kommentin. Gaman að sjá að þið fylgist með okkur.
Þangað til næst,
Eyrún

nóvember 12th, 2008 at 10:21 pm
Ooo yndislegt! Þúsund þakkir fyrir að skrifa smá fréttir og deila myndum með okkur sem erum allt of langt í burtu frá ykkur! Ég allveg hrópaði upp yfir mig þegar ég sá að það væri komnar nýjar myndir.
Til hamingju með nýu myndavélina, þið hafið aldeilis tekið fínar myndir og hún mun án efa koma að góðum notum. Fyrsta myndin af ykkur mæðgum er svo falleg. Ásthildur breytist svo hratt en er alltaf jafn fín. Vá hvað það hefur iljað að fá svona fínt bros:)
Og þú ert greinilega að standa þig í húsmóðurhlutverkinu í bakstri og eldamennsku! Ég hef nú alltaf verið góð í að kaupa hluti á tilboði, og nú kemur það mér að gagni á krepputímum. Ég er líka komin með tvær vinnur, svo það er nóg að gera. Var samt í helgarferð í Köben hjá Möggu sem var notalegt. ég verð að slá á þráðinn aftur fljótlega…
Hlakka svo rosalega mikið til að sjá ykkur öll um jólin…ég kem norður morgunin 21. des og þið neyðist til að hitta mig þá. Ég á ekki eftir að geta beðið;)
Sendi fullt af knúsum til Bandgasse
nóvember 13th, 2008 at 1:05 pm
rosalega falleg mynd af asthildi, skil af hverju tid fjarfestud i myndavel.
Spurning, hvar kaupid tid sirop? vanilludropa?
Tvi eg get ekki fundid tad
endilega verum i bandi
knus,
Anna C
nóvember 13th, 2008 at 9:18 pm
Takk fyrir nýjar myndir, takk!