Eins vikna

Jæja, þá er meira en ein vika liðin frá því að Bumbulína kom út úr bumbunni og við sáum Ásthildi okkar í fyrsta skipti. Allt gengur alveg ofboðslega vel, stelpan sefur vel og drekkur mikið og er algjör engill. Ljósmóðirin okkar ætlar að koma á morgun og vigta hana í fyrsta skiptið eftir fæðinguna og þá fáum við að sjá hvort að hún sé nú ekki alveg örugglega að fá nóg að drekka hjá mér.

Við fórum í fyrsta skiptið með hana út að labba í fína vagninum seinasta laugardag. Það var alveg yndislegt, við fórum nú ekki langt en mikið var gott að komast út eftir viku inniveru. Vagninn er alveg geggjaður, ekkert smá þægilegt að keyra hann. Ég hlakka til þegar við verðum komin með pening og við getum keypt okkur lestarkort því þá verðum við Ásthildur útum allar trissur að hafa það gott í Vínarborg á meðan Lalli er í skólanum.

Þeir sem heyrðu aðeins í Lalla í útvarpinu á laugardaginn vita það að við eigum engann pening vegna þess hvernig ástandið hefur verið heima, en vonandi fer færsla af stað til okkar á morgun. Þá getum við aðeins farið að lifa lífinu aftur, maður er búinn að vera að rýna í hvert einasta cent seinustu tvær vikur. Auðvitað þarf maður að fara sparlega með peninga á svona tímum en það er alveg ömurlegt að eiga engann pening.

Jæja þetta blogg var lengi að fæðast, annað en hún Ásthildur mín, því ég er búin að borða, gefa henni að drekka 2 sinnum og baða hana frá því að ég byrjaði að skrifa þessa færslu. Ég er líka orðin alveg andlaus á meðan þannig að ég læt þetta bara gott heita núna.

Kveðja,

Eyrún

P.s. Komnar fleiri myndir í báðar vikurnar….

3 Responses to “Eins vikna”

  1. Þórný Linda Says:

    oooo hún er allveg yndisleg! Og rosalega breytist hún hratt. Elsku ljúfan, allgjör engill. Mér finnst hún svo stór…þangað til ég sá hana í fanginu á þér Eyrún! Mikið rosalega hlakka ég til að sjá ykkur um jólin. Mér hefur verið svo mikið hugsað til ykkar undanfarið og kíki a.m.k 5 sinnum á dag á þessa síðu! Þetta er nú meira kreppuástandið, og ekki sérlega auðvelt fyrir okkur íslensku útlendingana. Það er vonandi að það verði opnað fyrir millifærslurnar sem fyrst. En það er samt greinilegt að ásthildur finnur ekki fyrir því og að það vanti ekki upp á hamingjuna á heimilinu:) stórt knús á ykkur öll

  2. Lára Says:

    Hlakka til að lesa nýtt blogg um lífið í Bandgasse. Knús á línuna :)

  3. Lilja Guðmundsdóttir Says:

    Mig er alveg farið að þyrsta í meira!
    Hvernig gengur, hvað er að gerast?

    Ástarknús til ásthildar og ykkar:)

Leave a Reply