Hamingja

IMG 2050Kæru vinir, takk kærlega fyrir öll fallegu skilaboðin til okkar. Okkur þykir ótrúlega vænt um sjá hvað hún Ásthildur á marga vini sem hugsa til hennar og okkar. Litla prinsessan sefur og drekkur til skiptis og á stundum reynir hún að gera bæði í einu, á meðan hún vakir skoðar hún mömmu og pabba með stóru augunum sínum og hjalar fyrir þau - einhver hefur gefið henni ótrúlega fallega rödd.

Þetta fór allt af stað um klukkan 07 á laugardaginn, vatnið byrjaði að leka og ég hringdi upp á fæðingarstofu, þar var okkur ráðlagt að koma strax svo að við hringdum á sjúkraflutningamenn sem mættu galvaskir og fluttu okkur upp á Semmel Weiss Klinik. Á stofu 15 fékk Eyrún rúm og var skoðuð í bak og fyrir af ljósmóður og lækni: allt eðlilegt og rólegt. Klukkan 10 var Eyrún með 1 í útvíkkun en samdrættirnir enn frekar óreglulegir, um klukkan 11 var Eyrún með 2 í útvíkkun og komin regla á samdrættnina milli 11 og 12 fór allt af stað og klukkan 12.30 var Eyrún komin inn á fæðingarstofu með 8 í útvíkkun og klukkan 14.27 var Ásthildur komin í fangið á hetjunni henni mömmu sinni, sem vegna þess hversu allt gerðist hratt fékk enga deyfingu eða verkjalyf. Hratt og örugglega kom Ásthildur í heiminn og hratt og örugglega komumst við líka heim í kotið okkar, 12 klukkustundum eftir að allt fór af stað sátum við í stofunni heima og horfðum hálf-orðlaus á þessa litlu sætu stelpu.

Mig langar að segja ykkur svo ótalmargt um hana Ásthildi og það er alveg satt hjá ykkur hún er ótrúlega falleg - hún er eiginlega svo falleg að orðin sem maður skrifar um hana ná bara að lýsa broti af því hvernig hún er. Við eigum eftir að taka margar myndir af henni og setja inn á síðuna okkar og segja frá öllu sem hún gerir - en hún er alveg ótrúlega snjöll.

En enn og aftur takk fyrir hlýjar og fallegar kveðjur, takið þær bara líka til ykkar heim í kreppuna og hugsið frekar um hana Ásthildi litlu - hún veit ekki einu sinni hvað kreppa er og er engu að síður ótrúlega hamingjusöm. En kanski er það þess vegna, því það eru aðrir hlutir í heiminum mikilvægari.

 

Kossar og knús frá okkur öllum í Bandgasse.

2 Responses to “Hamingja”

  1. Svala Says:

    vá hvað er gott að lesa um að þetta hafi allt gengið vel, mér finnst eyrún alger hetja að gera þetta án deyfingar og svona vel og öruglega.. þið sem eruð búnar að ganga í gegnum þetta úr 4.bekk U virðist bara anda ykkur í gegnum þetta hratt og ákveðið.. það er bara glæsilegt ;)

  2. Anna Rósa Says:

    Innilega til hamingju með prinsessuna, hún er dásamleg!
    Gangi ykkur vel og hafiði það gott! :)
    Kærar kveðjur
    Anna Rósa

Leave a Reply