Archive for október, 2008

Þriggja Vikna

Laugardagur, október 25th, 2008

Það er búið að vera mikið um að vera hjá okkur hér í Bandgasse seinustu viku, þess vegna höfum við ekki skrifað mikið. Amma og Afi í Klettaborg komu til okkar í heimsókn og eru búin að vera í viku, það er að segja amman. Afinn þurfti að vinna og fór þess vegna til Ítalíu á fimmtudaginn. Það er mikið búið að vera að dást að litlunni og taka svolítið af myndum. Afi Geiri fór nefninlega á námskeið í því að taka myndir á fínu myndavélina og náði alveg ótrúlega flottum skotum af stelpunni. Það er alveg ómetanlegt að eiga svona fallegar myndir af þessum tíma. Annars er hún Ásthildur bara að stækka, þroskast og dafna vel. Við erum komnar í mjög gott jafnvægi með brjóstagjöfina og hún er voðalega dugleg að drekka. Svo erum við búin að fara á hverjum degi í smá göngutúr og Ásthildur er búin að fara á fullt af kaffihúsum í Vínarborg. Alltaf ef við tökum hana upp úr vagninum á kaffihúsunum spyr einhver hversu gömul hún eiginlega er og dáist að henni og hvað hún er lítil. Mér sem finnst hún vera svo stór. Eina vesenið hérna í Vín með að setjast einhverstaðar niður er að það er svo mikil reykingastybba á flest öllum kaffihúsum Vínarborgar. Maður er sjálfur alveg að kafna og hættir sér varla þarna inn, hvað þá með svona lítinn gullmola. Ég held að við stundum bara Starbucks, eins kanalegt og það er en þeir eru þá allavegana með mjúka sófa og reyklaust.

Við erum búin að fá peninga…veiveivei. Nú er ég bara að bíða eftir Margréti og Mömmu svo við getum kíkt aðeins saman í búðir. Svo kláraði ég Arnald Indriða á þýsku, var að lesa Napóleonsskjölin eða Gletschers Grab. Ég skildi samt ekki plottið í henni :-( En ég ætla að reyna aftur að lesa krimma á þýsku svo ég fór í gær og keypti 2 sænskar bækur eftir Cammillu Läckberg - Ísprinsessuna og Predikarann held ég. Ég hlakka til að lesa þær. En núna þarf ég að fara á fætur og fylgja Ástu á flugvöllinn. Vonandi hafið þið það gott hvar sem þið eruð. Fleiri fréttir seinna.

Hlustið svo á þetta lag, það er ótrúlega fallegt. Ég er að ná í þessa mynd og vona að hún sé jafn falleg og þetta lag.

 

Eins vikna

Þriðjudagur, október 14th, 2008

Jæja, þá er meira en ein vika liðin frá því að Bumbulína kom út úr bumbunni og við sáum Ásthildi okkar í fyrsta skipti. Allt gengur alveg ofboðslega vel, stelpan sefur vel og drekkur mikið og er algjör engill. Ljósmóðirin okkar ætlar að koma á morgun og vigta hana í fyrsta skiptið eftir fæðinguna og þá fáum við að sjá hvort að hún sé nú ekki alveg örugglega að fá nóg að drekka hjá mér.

Við fórum í fyrsta skiptið með hana út að labba í fína vagninum seinasta laugardag. Það var alveg yndislegt, við fórum nú ekki langt en mikið var gott að komast út eftir viku inniveru. Vagninn er alveg geggjaður, ekkert smá þægilegt að keyra hann. Ég hlakka til þegar við verðum komin með pening og við getum keypt okkur lestarkort því þá verðum við Ásthildur útum allar trissur að hafa það gott í Vínarborg á meðan Lalli er í skólanum.

Þeir sem heyrðu aðeins í Lalla í útvarpinu á laugardaginn vita það að við eigum engann pening vegna þess hvernig ástandið hefur verið heima, en vonandi fer færsla af stað til okkar á morgun. Þá getum við aðeins farið að lifa lífinu aftur, maður er búinn að vera að rýna í hvert einasta cent seinustu tvær vikur. Auðvitað þarf maður að fara sparlega með peninga á svona tímum en það er alveg ömurlegt að eiga engann pening.

Jæja þetta blogg var lengi að fæðast, annað en hún Ásthildur mín, því ég er búin að borða, gefa henni að drekka 2 sinnum og baða hana frá því að ég byrjaði að skrifa þessa færslu. Ég er líka orðin alveg andlaus á meðan þannig að ég læt þetta bara gott heita núna.

Kveðja,

Eyrún

P.s. Komnar fleiri myndir í báðar vikurnar….

Nýjar myndir

Miðvikudagur, október 8th, 2008

Var að setja inn fleiri myndir í albúmið Fyrsta vikan. Njótið vel og ekki hugsa um kreppu.

Lifum í ljósi en ekki kreppu….eða var það lukku og fjósi..hmm :-)

Eyrún

Hamingja

Mánudagur, október 6th, 2008

IMG 2050Kæru vinir, takk kærlega fyrir öll fallegu skilaboðin til okkar. Okkur þykir ótrúlega vænt um sjá hvað hún Ásthildur á marga vini sem hugsa til hennar og okkar. Litla prinsessan sefur og drekkur til skiptis og á stundum reynir hún að gera bæði í einu, á meðan hún vakir skoðar hún mömmu og pabba með stóru augunum sínum og hjalar fyrir þau - einhver hefur gefið henni ótrúlega fallega rödd.

Þetta fór allt af stað um klukkan 07 á laugardaginn, vatnið byrjaði að leka og ég hringdi upp á fæðingarstofu, þar var okkur ráðlagt að koma strax svo að við hringdum á sjúkraflutningamenn sem mættu galvaskir og fluttu okkur upp á Semmel Weiss Klinik. Á stofu 15 fékk Eyrún rúm og var skoðuð í bak og fyrir af ljósmóður og lækni: allt eðlilegt og rólegt. Klukkan 10 var Eyrún með 1 í útvíkkun en samdrættirnir enn frekar óreglulegir, um klukkan 11 var Eyrún með 2 í útvíkkun og komin regla á samdrættnina milli 11 og 12 fór allt af stað og klukkan 12.30 var Eyrún komin inn á fæðingarstofu með 8 í útvíkkun og klukkan 14.27 var Ásthildur komin í fangið á hetjunni henni mömmu sinni, sem vegna þess hversu allt gerðist hratt fékk enga deyfingu eða verkjalyf. Hratt og örugglega kom Ásthildur í heiminn og hratt og örugglega komumst við líka heim í kotið okkar, 12 klukkustundum eftir að allt fór af stað sátum við í stofunni heima og horfðum hálf-orðlaus á þessa litlu sætu stelpu.

Mig langar að segja ykkur svo ótalmargt um hana Ásthildi og það er alveg satt hjá ykkur hún er ótrúlega falleg - hún er eiginlega svo falleg að orðin sem maður skrifar um hana ná bara að lýsa broti af því hvernig hún er. Við eigum eftir að taka margar myndir af henni og setja inn á síðuna okkar og segja frá öllu sem hún gerir - en hún er alveg ótrúlega snjöll.

En enn og aftur takk fyrir hlýjar og fallegar kveðjur, takið þær bara líka til ykkar heim í kreppuna og hugsið frekar um hana Ásthildi litlu - hún veit ekki einu sinni hvað kreppa er og er engu að síður ótrúlega hamingjusöm. En kanski er það þess vegna, því það eru aðrir hlutir í heiminum mikilvægari.

 

Kossar og knús frá okkur öllum í Bandgasse.

Nýjar Myndir

Sunnudagur, október 5th, 2008

Búin að setja saman smá myndaalbúm fyrir ykkur af gærdeginum og deginum í dag. Ég læsti albúminu þannig að þeir sem vilja skoða sendið mér emil á eyrunamer@gmail.com

Hérna er hægt að nálgast myndirnar

Svo koma fréttir seinna.

En takk enn og aftur fyrir kveðjurnar, þið eruð yndisleg öllsömul.

Knús og kossar,

Eyrún

Ásthildur Lárusdóttir

Laugardagur, október 4th, 2008

bara egeyrun asthildur