Þetta er allt að koma…..vonandi

Ekkert skeð enn, Bumbulína hefur það greinilega rosalega gott í bumbunni þrátt fyrir plássleysi. Henni langar að fá að stækka og bolla sig upp aðeins lengur og ekki get ég gert neitt nema bara sætt mig við það. Þannig að við bíðum bara, allt orðið tilbúið fyrir prinsessuna, góð IKEA ferð afstaðin þar sem rúmið, skiptiborðið og fleira nytsamlegt barnadót og annað dót var keypt. Mín er búin að fara í gegnum hreingerningargeðveikina, búin að snúa öllu á hvolf hér í Bandgasse og breyta og gera meira kósý og þrífa. Fann þessa gríðarlegu þörf hjá mér á meðan ég var að baka skonsur í gær að sjóða og þrífa allar kryddkrukkurnar okkar og skipuleggjað þær betur. Þannig að á milli þess sem skonsurnar voru í ofninum var ég að kroppa límmiða af soðnum krukkum, solltið beluð :-) En það er best að reyna bara að sjá skoplegu hliðina á þessu því þegar ég hugsa til þess að ég gæti þuft að bíða í meira en 20 daga í viðbót þá er mér eiginlega ekki hlátur í huga. Langar óstjórnlega að ljúka þessu af og fá að knúsa þá stuttu og loka þessu millibilsástandi.

Í dag á Þórný Linda afmæli, innilega til hamingju með það bestasta, vona að þú hafir það sem allra best í dag. Knús og kossar frá mér og Bumbulínu. Þetta væri nú góður dagur fyrir hana til að velja sér en hún er greinilega svolítil prímadonna og vill hafa sinn prívat dag…ef hann er þá til?

Austurríkismenn eru líka að kjósa nýja ríkisstjórn í dag. Allt í rugli, seinast var eins stjórn eins og við höfum á Íslandi í dag, stóri sósíalflokkurinn og stóri hægriflokkurinn voru saman í stjórn en gátu ómögulega komið sér saman um eitt né neitt þannig að seinustu 2 ár er ekkert búið að gerast í landinu og svo sprakk þetta allt saman í sumar og ákveðið var að kjósa aftur. Svo eru tveir öfga hægriflokkar hérna sem eru stórhættulegir en fá samt um 30% samanlagt og svo grænir sem fá í kringum 10%. Stóru flokkarnir fá svo sitt hvor ca. 30%. Þannig að eins og ég sé þetta, en ég er náttúrulega ekki sérfræðingurinn í þessu á heimilinu, þá er þetta erfið staða fyrir okkur vinsti fólk hér í Austurríki. SPÖ eða sósíalflokkurinn getur ekki farið í stjórn aftur með hægri flokknum ÖVP því það gekk svo hörmulega seinast, þeir leggjast ekki svo lágt að fara í stjórn með fasistum og græni flokkurinn nær ekki nógu góðu kjöri til að nægja í meirihluta. Þannig að þetta lítur alls ekki vel út. En mahl sehen, hvað gerist.

Við Lalli erum ekki búin að vera alveg þau duglegustu í því að taka myndir af Bumbulínu en við tókum okkur til í seinustu viku og smelltum nokkrum myndum af henni…

24 Sep 2008 mynd 0055 edited 1 copy

24 Sep 2008 mynd 0114 edited 1 copy

24 Sep 2008 mynd 0120 copy

mynd 30   g  . 2008 0089 edited 1

Eins og glögg augu hafa tekið eftir erum við búin að fjárfesta í einum Benjamín, húsmóðirin ætlar að gera sitt allra besta til að halda lífi í kornabarni og 2 plöntum í vetur….ég er alveg viss um að kornabarnið fær nóg af ást og umhyggju en ég er hrædd um að mínir ógrænu fingur eigi ekki eftir að vera nóg fyrir plönturnar….en það má alltaf reyna.

Vonandi verður Bumbulína ekki lengur Bumbulína þegar ég skrifa næst, ég er ekki búin að ákveða alveg hvernig þetta verður með síðuna og myndir þegar þær koma, en væntanlega verður myndasíðan læst, ekkert mál að fá lykilorðið þegar þar að kemur, bara senda emil á mig eða Lalla eða kommenta á síðuna.

Þangað til næst

Eyrún

6 Responses to “Þetta er allt að koma…..vonandi”

  1. Láran Says:

    æjh hvað þið eruð sæt. OFsalega hlakka ég til, enda bara 9 dagar til stefnu!!!

  2. Þórný Linda Says:

    Kærar þakkir fyrir afmæliskveðjuna:) Ég reyndi nú smá að senda góða strauma til bumbulínu í gær…en þeir hafa ekki náð til Vínarborgar! En það er jú skemmtilegra að eiga sinn “eigin dag”. Og kærar þakkir fyrir smá fréttir og myndir, það er alltaf svo gaman.

    Mikið rosalega eru þið sæt og skvísan er nú aldeilis búin að stækka. Ég get ekki ímyndað hvernig þessi bið er, en það er gott að þú haldir þér aktívri til að fá tímann til að líða.

    Ég átti voða góðan afmælisdag og veislu. Selma og Arna dögg komu. Hún var jú bumbubúi í veislunni minni fyrir ári. Þá var Selm man ég orðin annsi þreytt á biðinni. Hún verður eins árs á föstudaginn. Tíminn er fljótur að líða…

    Ég sendi mínar bestu kveðjur til ykkar allra (og lífsbaráttukveðjur til plöntunnar;)
    Knús

  3. soffía snædís Says:

    Ha ha… vona að Benni lifi af veturinn.

    Annars kemur þetta allt með kalda vatninu, reyndu bara að mjólka þetta í botn (góð æfing fyrir mjaltirnar) og láttu Lalla stjana við þig. (Svo máttu endilega senda mér lykilorðið, mér var mjög hugsað til þín í gær og dreymdi þig, þú áttir samt strák í draumnum, rauðhærðan og sætan, og við vorum að plana framtíð hans og Emilíu ;) )

    Vona að allt gangi vel og þú hafir það got síðustu dagana.

    Kv. Soffía Snædís

  4. Helga Says:

    Elsku elsku Eyrún

    Trúi því varla að það sé bara um vika í settan dag.
    Vávává. Þetta er æðislegt og ég er svo spennt!
    Á morgun eru svo bara tveir mánuðir í Gíraffadaginn mikla,
    hvort sem hún ákveður að láta sjá sig á settum degi eður ey veður að koma í ljós.
    Vildi helst fá hana við nkl. 38 vikur -> 16. nóvember
    … þá ætti hún afmæli sama dag og Jónas.. ég er lúði.. hehe.

    Bíð ískurspennt eftir frekar fréttum og sendi góða strauma upp á meginlandið.
    Knús kram og Humi biður að heilsa
    Helga + gíraffi

  5. Svala Says:

    úff, til að svara þessu kommenti frá Soffíu þá hef ég ákveðið fyrir löngu að eignast tvo stráka, dökkhærða og myndarlega þannig að ég er löngu komin með tilvonandi eiginmenn dætra ykkar.. :oP

    ég er alveg að skilja þessa hreingerningargeðveiki í þér sæta mín, það á allt að vera sterileserað :) get ekki beðið eftir að komast heim í dag og þrífa.. og ég er ekki ólétt.. LOFA..

    já ég hef sko fundið út að það er best að vera bara með kaktus, þá þarf maður ekkert að hugsa neitt rosalega mikið um þá.. Benjamín er ekkert smá stór.. hann þarf að fá fullt að drekka svo að bara þegar bumbulína fær sopa.. þarf Benni að fá sopa.. svona sirka..
    hahah..

    Guð blessi þig og gangi þér vel á næstu vikum.. get ekki beðið eftir að fá að heyra meira..

    ástarkveðja
    svalan þín..

  6. Baddý Says:

    hæ hæ, gangi ykkur svaka vel næstu dagana. ég hlakka til að heyra og vona að bumbulína láti sjá sig fljótt. Ekki hika við að hafa samband ef ykkur vantar eitthvað. við erum líka með bíl (sem er nánast ónotaður hérna í stórborginni), þannig að ekki hika við að hringja ef þið þurfið skutl eða eitthvað.

Leave a Reply