Vaglaskógur
Við Lalli skelltum okkur í Vaglaskóg á mánudaginn á fína húsbílnum þeirra Ástu og Geira. Það var rosalega notalegt, við vorum bara í rólegheitum, þetta var lúxus útilega, við í hlýjunni inní húsbíl eða í hlýjunni og sólinni rétt fyrir utan húsbílinn en við gerðum ekki mikið meira. Ég prjónaði og prjónaði og Lalli las og svo spiluðum við scrabbl á kvöldin. Seinna kvöldið vorum við mjög góð í Scrabblinu og gerðum mörg fyndin orð. Svo þurfti Lalli að fara að vinna seinnipartinn á miðvikudaginn þannig að þá lulluðum við í bæinn aftur.
Það er svo notalegt að vera í útilegu, vakna þegar maður vill, kveikja á rás 2 og fá sér góðann morgunbita. Mest fannst mér samt notalegt að hafa Lalla með mér allann daginn. Ég var farin að sakna hans svo mikið því hann var búinn að vera að vinna svo mikið og líka allann daginn, farinn áður en ég vakna og kemur svo um 8, við borðum kvöldmat og náum um 2 tímum saman áður en hann lognast útaf. Ég er svo vön því að deila mestan partinn af deginum með honum og hafa hann hjá mér að þetta er hálf skrítið og erfitt að vera svona mikið í burtu frá honum. Hann er líka svo duglegur fyrir Bumbulínurnar sínar og vinnur og vinnur. Ég hlakka bara til þegar við förum aftur út og höfum september saman í fríi og undirbúningi.
En við hlustuðum mikið á útvarpið í útilegunni, eitthvað sem ég hef ekki gert mikið af seinasta ár. Ég hlusta eiginlega bara á útvarpið hér á Íslandi. En ég heyrði þá 2 ný lög sem eru svo flott, þau eru alveg á repeat hjá mér núna. Það er nýja lagið með Hjaltalín - Þú komst við hjartað á mér og nýja lagið með Coldplay - Viva la vida. Snilldar lög. Þarf eiginlega að hlusta meira á útvarpið úti til að heyra meira af nýrri tónlist, eða hafa kveikt á Gotv.
Við Lalli skráðum okkur í sambúð í gær, núna á ég ekki lengur heima heima hjá mér, heldur í Klettaborginni. En það er nú næstumþví heima. Við erum rosa glöð og sæl með það að vera offissíallí saman, en ég veit ekki alveg hversu mikið þetta breytir okkar tilvistí pappísheimum. Allavegana þarf Lalli þá ekki að borga mér meðlag þegar Bumbulína kemur í heiminn.
Ég kláraði samfestinginn sem ég var að prjóna fyrir Bumbulínu í gærkvöldi og keypti í næstu prjónaverkefni í gær. Núna er ég byrjuð á bleikri, sætri peysu:-). Það er verkefnið í dag, prjóna, horfa á Will og Grace og kíkja svo á tónleika í kvöld. Hljómar bara nokkuð vel.
Nú ætla ég að halda áfram með peysuna, en ég ætla að skella nokkrum myndum inn í lokinn. Versegú.

Eyrún, Bumbulína og Húsbíllinn





ágúst 15th, 2008 at 7:45 pm
ógnarapar hahaha!!!
Gott að þið náðuð smá kósýstund
Knús og kossar frá okkur öllum í Andrésbrunninum, þ.e. okkar íbúð, veit ekki með hina…
Hanna.
ágúst 16th, 2008 at 6:01 pm
Vááá þið eruð sko næstum því of krúttleg!!
ágúst 17th, 2008 at 1:10 am
Til hamingju með þetta allt saman Eyrún mín og takk kærlega fyrir komuna á tónleikana.
Verst að ég gat ekki spjallað meira við þig, en afskaplega notalegt að sjá kunnugt andlit
Hafið það sem allra best
ágúst 20th, 2008 at 12:35 am
Ohhh hvað þú ert flott svona ólétt Eyrún, sætari en nokkru sinni!
Þetta fannst mér fyndið, ég og Bjarni spilum alltaf skrabble þegar við erum erlendis saman eða hérna heima á kvöldin, það er kósý. Nema þegar Bjarni slátrar mér;)
Ohh hvað ég vona að ég nái að sjá framan í þig áður en þú ferð heim til Vínar….plííííís.