Archive for ágúst, 2008

Akureyri

Sunnudagur, ágúst 24th, 2008

Þá er brottför í nánd. Þetta er búið að vera yndislegt sumar hér á Akureyri, við Bumbulína erum búnar að hafa það ofsalega gott. En ég hlakka ofboðslega til að komast heim í kotið mitt, fara að undirbúa hressilega fyrir komu gullmolans míns og hafa það gott heima.

Förinni er heitið á Eyrarbakka þar sem við fjölskyldan ætlum að hafa það gott í leti og afslöppun næstu viku og svo er áætluð för af landi brott á þriðjudaginn 2. september.

Takk kærlega fyrir mig og okkur, takk þeir sem ég náði að knúsa, knús á þá sem ég náði ekki að knúsa og hafið þið það öll yndislega súper gott áfram. Svo vona ég að ég nái að knúsa sem flesta fyrir sunnan áður en ég þarf að mæta í flug.

Bless kex,

Eyrún og Bumbulína

Vaglaskógur

Föstudagur, ágúst 15th, 2008

Við Lalli skelltum okkur í Vaglaskóg á mánudaginn á fína húsbílnum þeirra Ástu og Geira. Það var rosalega notalegt, við vorum bara í rólegheitum, þetta var lúxus útilega, við í hlýjunni inní húsbíl eða í hlýjunni og sólinni rétt fyrir utan húsbílinn en við gerðum ekki mikið meira. Ég prjónaði og prjónaði og Lalli las og svo spiluðum við scrabbl á kvöldin. Seinna kvöldið vorum við mjög góð í Scrabblinu og gerðum mörg fyndin orð. Svo þurfti Lalli að fara að vinna seinnipartinn á miðvikudaginn þannig að þá lulluðum við í bæinn aftur.

Það er svo notalegt að vera í útilegu, vakna þegar maður vill, kveikja á rás 2 og fá sér góðann morgunbita. Mest fannst mér samt notalegt að hafa Lalla með mér allann daginn. Ég var farin að sakna hans svo mikið því hann var búinn að vera að vinna svo mikið og líka allann daginn, farinn áður en ég vakna og kemur svo um 8, við borðum kvöldmat og náum um 2 tímum saman áður en hann lognast útaf. Ég er svo vön því að deila mestan partinn af deginum með honum og hafa hann hjá mér að þetta er hálf skrítið og erfitt að vera svona mikið í burtu frá honum. Hann er líka svo duglegur fyrir Bumbulínurnar sínar og vinnur og vinnur. Ég hlakka bara til þegar við förum aftur út og höfum september saman í fríi og undirbúningi.

En við hlustuðum mikið á útvarpið í útilegunni, eitthvað sem ég hef ekki gert mikið af seinasta ár. Ég hlusta eiginlega bara á útvarpið hér á Íslandi. En ég heyrði þá 2 ný lög sem eru svo flott, þau eru alveg á repeat hjá mér núna. Það er nýja lagið með Hjaltalín - Þú komst við hjartað á mér og nýja lagið með Coldplay - Viva la vida. Snilldar lög. Þarf eiginlega að hlusta meira á útvarpið úti til að heyra meira af nýrri tónlist, eða hafa kveikt á Gotv.

Við Lalli skráðum okkur í sambúð í gær, núna á ég ekki lengur heima heima hjá mér, heldur í Klettaborginni. En það er nú næstumþví heima. Við erum rosa glöð og sæl með það að vera offissíallí saman, en ég veit ekki alveg hversu mikið þetta breytir okkar tilvistí pappísheimum. Allavegana þarf Lalli þá ekki að borga mér meðlag þegar Bumbulína kemur í heiminn.

Ég kláraði samfestinginn sem ég var að prjóna fyrir Bumbulínu í gærkvöldi og keypti í næstu prjónaverkefni í gær. Núna er ég byrjuð á bleikri, sætri peysu:-). Það er verkefnið í dag, prjóna, horfa á Will og Grace og kíkja svo á tónleika í kvöld. Hljómar bara nokkuð vel.

Nú ætla ég að halda áfram með peysuna, en ég ætla að skella nokkrum myndum inn í lokinn. Versegú.

IMG 1437
Lalli Grillmeistari

IMG 1439
Eyrún, Bumbulína og Húsbíllinn

IMG 1440
Eyrún og Bumbulina með sólina í augunum

IMG 1447
Skötuhjúin

IMG 1466
Scrabblið góða

IMG 1470
Við offissíallí saman í sambúð :-)

Skvísufréttir

Laugardagur, ágúst 9th, 2008

Það er búið að vera margt í gangi hjá okkur Bumbulínu þessa dagana. Við fórum fjölskyldan saman í mæðraskoðun á fimmtudaginn og ljósmóðirin varð rosalega skotin í Bumbulínu, sagði að hún væri fyrirmyndarbarn og passleg í alla staði. Við vissum það nú áður en við fórum í skoðunina en það er alltaf gott að fá staðfestingu á því frá “fagmanni” í svoleiðis málum :-) Við fórum svo seinna um daginn í sónar og Ragnheiður læknir var líka rosalega ánægð með Bumbuskottið okkar, sagði að hún væri alveg eins og hún á að vera á þessum tíma. Hún var líka alveg viss um að Bumbulína er stelpa þannig að ég þori nokkurnveginn að prjóna bleika peysu fyrir hana. En auðvitað er okkur alveg sama um hvort þetta er Bumbulína eða Bumbus, bara að það komi heilbrigt út úr bumbunni, það er fyrir öllu.

Svo er ég búin að vera að reyna að skrá mig á atvinnuleysisbætur því það eru ekki til neinar bætur fyrir konur sem eru óléttar/ófrískar/þungaðar/barnshafandi/vanfærar (við íslendingar eigum svo frábær orð yfir þetta ástand) og eru orðnar þreyttar en ekki veikar, geta svosem alveg unnið en það er ekki alveg optimal. Þannig að svo við færum ekki alveg á kúpuna þá ætla ég að reyna að fá smá pening frá ríkinu til að hjálpa okkur að brúa þessa 2 mánuði þangað til að ég fæ fæðingarorlof. Það er bara að reynast flóknara og erfiðara en mér hefði órað, vegna þessa að ég er námsmaður þá á ég eiginlega bara ekki rétt á neinu og má bara lifa á loftinu ef ég fæ ekki vinnu á sumrin. Reglurnar eru semsagt þannig að til að fá 100% bætur þá þarftu að vera búinn að vera í 100% í 1 ár. En þar sem ég er námsmaður og búin að vera það frá því að ég varð 6 ára þá á ég hvergi á lífsleiðinni ár þar sem ég var í 100% vinnu og hvað þá á seinustu 36 mánuðum. Maður má semsagt geyma “bótaréttinn” í 36 mánuði ef maður er námsmaður. Þannig að ég réttsvo næ að skrapa saman 12 vikum á seinustu 3 árum þar sem ég var samfellt nota bene í 100% vinnu, maður má ekki nota nokkar vikur þetta ár og setja saman við vikurnar sem maður vann árið á undan. Þessar 12 vikur gefa mér 25% bótarétt sem er eitthvað í kringum 1000 kall á dag. Víhhí. Ef ég ætti ekki heima hjá mömmu og pabba og ætti ekki svona duglegann mann þá yrði ég held ég að læra að ljóstillífa.

Ég held að það sé alveg ljóst að það er ekki hægt að lifa á sósíalnum á Íslandi. Þetta er ekki alveg hræðilegt fyrir mig því að ég á góða að en hugsa sér fyrir þá sem hafa það ekki svo gott og nú þegar bankarnir eru búinir að loka búðinni hjá sér þá get ég vel skilið að fólk nái ekki endum saman. Hmm erum við ein af ríkustu þjóðum í heimi og förum svona með námsmennina okkar og litla mannin?

Jæja áfram með smjörið, ég er nefninlega búin að brasa margt meira á seinustu 2 dögum. Ég fór loksins í sjónmælingu og komst að því að ég er komin með - 0,75 og -1. Það hlaut að koma að þessu, hélt kannski að ég yrði svarti sauðurinn eða gyllta svínið forever í þessari fjölskyldu og fengi aldrei gleraugu. En ég er búin að velja mér þessi fínu gleraugu með glimmeri á hliðunum :-) Það fer að styttast í myndastund hér á vefnum þannig að ég skelli þá kannski nokkrum myndum inn af gripnum.

Það er nú ekki margt fleira sem við vorum að brasa við stelpurnar, ég var aðeins að ýkja hérna áðan, ég fór bara í klippingu í gær og er orðin rosalega fín.

Nú er bara málið að hvíla sig í dag og prjóna, kannski hlusta aðeins á Fritz Wunderlich syngja Im wunderschönen monat mai e. Schumann. Ég mæli með því á svona fallegum degi.

Ísland, fagra Ísland.

Miðvikudagur, ágúst 6th, 2008

Þá er helmingurinn af Íslandsdvölinni okkar þetta sumar liðinn. Ég og Bumbulína erum búnar að vera duglegar að vinna á Lyfjadeildinni með Mömmu/Ömmu. Núna erum við að reyna eftir bestu getu að vera sem rólegastar svo við fáum alveg örugglega ferðaleyfi heim í september. Ég hef nú samt alveg nóg af verkefnum, þarf að vera dugleg að prjóna heimferðarfötin fyrir Bumbulínu, lesa allar íslensku jólabækurnar sem ég get ekki tekið með mér út, blogga, sofa því ég býst ekki við því að sofa mikið á næstunni og njóta lífsins. Lalli er búinn að vera rosalega duglegur að vinna og er eiginlega alltaf í vinnunni eða að hjálpa í Klettaborginni eða Eyrarlandsveginum.

Við erum búin að hafa það gott í júlí, Lára, Hrafnkell, Margrét og Daníel komu öll norður helgina sem við komum og við höfðum það gott saman fjölskyldan. Svo var ættarmót í fjölskyldunni hans Lalla eina helgina í júlí, þar voru allir afkomendur Ömmu Hönnu samankomnir. Það var alveg æðislega gaman að hitta alla og vera saman þá helgi. Helga og Ragnar komu eitt kvöldið til okkar í kaffiboð og við bumburnar fengum að blaðra og blaðra um allt og ekkert sem tengist því að vera með bumbuskott í bumbunni, úff hvað það var notalegt. Svo er Þórný komin til landsins og það er búið að vera yndislegast í heimi að dandalast með henni, fara í flottasta kaffiboð sem ég veit um til hennar og blaðra um allt sem við höfum verið að gera seinustu árin. Svo gott að koma aftur í Eikarlundinn sem var nú hálfgert annað heimili mitt þegar ég var yngri.

Planið fyrir ágúst er að hvíla mig og klára öll verkefnin mín, fara svo suður 23. ágúst með mömmu og eyða seinustu vikunni í ágúst á Eyrarbakka með Mömmu og Pabba og vonandi einhverjum fleirum úr fjölskyldunni, svo koma allir allavegana á föstudeginum og við ætlum að vera saman aftur fjölskyldan helgina áður en við fljúgum út. Svo er brottför heim 2. september.

Nú er ég búin að brjóta ísinn aftur og á þá vonandi auðveldara með að blogga meira. Þarf að setja eina góða bumbulínumynd hérna inn fljótlega.

Til hamingju með afmælið besta besta stóra systir, vonandi hefuru það gott í dag bestasta. Hlakka til að sjá þig næst.

Kv, Eyrún og Bumbulína