Komin “heim”
Við erum komin heim, reyndar fyrir margt löngu eða e.t.v. ekki löngu en a.m.k. nokkrum dögum. Við komum heim eftir ævintýra ferðalag a la Iceland Express, þar sem við fengum tölvupóst ca. 19 klst fyrir brottför sem sagði okkur frá því að við myndum ekki lenda Akureyri eins og fyrirhugað var heldur Egilstöðum og okkur yrði svo komið til Akureyrar með rútum. Það var nú ekkert stórmál, enda smá fórn fyrir lengingu flugbrautarinnar á Akureyri og bættar samgöngur á landsbyggðinni. Óneitanlega leiðinlegt að hafa þrisvar reynt að lenda á Akureyri og bara einu sinni tekist. Rétt um það bil hálftíma fyrir lendingu á Egilstöðum fengum við þær fréttir að annar hreyfill vélarinnar væri bilaður og því yrðum við að lenda á Keflavík. Ekki af öryggisástæðum heldur þeirri ástæðu að þar voru mennirnir sem gætu gert við vélina, en þessi viðgerð átti að taka 2-3 daga samkvæmt því sem flugþjónninn sagði okkur, síðan bætti hann því við að við myndum fá frekari upplýsingar inni í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Engar upplýsingar var þar að fá, aðeins bláir plastmiðar merktir “IGS Transfer ticket”, við reyndum allt hvað við gátum hringdum jafnvel í þjónustuver Iceland Express, en þar mætti manni hið ágæta viðhorf “kúnninn er asni sem segir já við bulli”. Eftir u.þ.b. 40 mínútur af bið í Leifsstöð kom tilkynning í kallkerfið að við mættum fá okkur að borða í Kaffiteríunni og brottför yrði eftir aðrar 40 mínútur. Þegar við höfðum snætt Sómasamlokur röltum við að hliði nr. 4 en þar var engann að finna, en fyrir utan stóð vél sem verið var að gera við. Aha! Þannig var þetta þá, við vorum flutt til Keflavíkur til þess að hægt væri að gera við bilunina og flytja síðan farþegana sem áttu pantað far til Danmerkur með sömu vél síðar. Einfalt og skiljanlegt, þó það sé leiðinlegt að bíða. En afhverju í andskotanum var einfaldlega ekki hægt að segja okkur þetta. Í staðin fyrir að búa til bull sögu um að þetta tæki nokkra daga og síðan segja okkur ekki neitt! Við kynntumst álíka skorti á upplýsingum að hálfu Flugleiða í vetur þegar við vorum veðurteppt í Frankfurt. Þá biðum við í einhverja 9 tíma og á tveggja tíma fresti var okkur sagt að þetta yrði skoðað, en með því að fara inn á netið á komumst við að því að flugið okkar hafði verið fellt niður vegna veðurs löngu áður. Við biðum og biðum eftir því að fá að vita hvort við Flugleiðir útveguðu okkur hótelherbergi, en á endanum létu starfsmenn flugleiða sig hverfa og við stóðum klukkan 21.00 í Frankfurt og vissum lítið sem ekkert. Þarna hefði verið frábært að fá að vita að þeir ætluðu sér aldrei að aðstoða okkur og fresta fluginu um 24 tíma.
Upplýsingar eru sem sagt gulls ígildi þegar kemur að samskiptum við flugfélög, en það er eins með upplýsingar flugfélaga og gull - það er ekki auðfinnanlegt.
Að öllu tuði slepptu þá er yndislegt að vera komin heim, Bumbulína dafnar og við Eyrún erum kát og hress. Ég er meira að segja búinn að veiða, sleppa og missa fisk og við búin að hafa það ljómandi fínt.
heyrumst, sjáumst og allt það,
Lalli