Myndir og EM
Ég fattaði loksins hvernig ég kem nýjustu myndunum okkar inn á netið, gamla myndasíðan er ekki að virka eftir að við fengum okkur nýja tölvu. En núna er ég bara búin að setja upp nýja undirsíðu þar sem þið getið skoðað myndirnar okkar. Hanna og Dóri voru hjá okkur seinustu viku og við tókum að sjálfsögðu myndir. Þið getið séð þær hér.
Svo er mikilvægasti leikur EM í kvöld, Austurríki - Þýskaland. Við styðjum okkar menn að sjálfsögðu fram í rauðann dauðann, ætlum að hitta Kristínu og kannski einhverja fleiri og horfa á leikinn saman. Held að við treystum okkur ekki inn á FanZone því það verður örugglega pakkað og kannski ekki svo sniðug stemming hvernig sem leikurinn fer. Það er líka oft svo erfitt að komast inn fyrir svona bumbulínu eins og mig. Allir að troðast og ýta. Lalli var alveg að drepast í fótunum að halda öllum brjálæðingunum frá bumbulínu seinast þegar við fórum inn. Að vísu nýtti ég mér kerfið í eitt skipti og fékk að fara inn um fatlaða innganginn
Kallinn spurði mig að vísu hvort maður væri nokkuð fatlaður þegar maður væri ófrískur og ég neitaði því auðvitað en hann hleypti mér í gegn. En það verður allavegana stemming hjá okkur hvar sem við verðum.
Wien wird Cordoba lalalalala……immer wiiiieder immer wiiiiieder immer wiiiieder österreich…..jetzt gehts los:)
Eyrún
júní 17th, 2008 at 11:28 am
Sætar myndirnar af ykkur! Ég hef auðvitað ekki hugmynd um hvernig leikurinn fór svo veit ekki hvort ég eigi að segja til hamingju eða ekki;) Vona allaveganna að þið hafið skemmt ykkur vel yfir honum. Og vona að þið haldið áfram að vera duglega við að setja myndir og skrifa fréttir af ykkur litlu fjölskyldunni…knús frá Danmörkunni
júní 18th, 2008 at 1:19 pm
ég vil mynd af bumbulínu….takk!
júní 19th, 2008 at 2:17 pm
Sæl og blessuð,
Bara að kvitta fyrir innlitið, kíki allt of sjaldan á ykkur. Vildi einnig óska ykkur til hamingju með bumbulínuna
Kveðjur af klakanum