Allir í Bandgasse 19/17 með sömu síðu
Undarlegt hvað svona lítil kríli eru fljót að sameina foreldrana, bumbulína er ekki einu sinni kominn í heiminn og pabbinn og mamman komin með sömu bloggsíðu - vonandi tekst henni ekki að koma okkur í krumpugalla í stíl alveg strax.
Þar sem ég hef aldrei áður bloggað á svona flottri síðu á það eftir að taka mig tíma að aðlagast herlegheitunum, fluttur úr .blogspot.com kofaskrípli í privat-lénshöll.net. Það lýður nú e.t.v. samt ekki á löngu þar til ég breytist í lénsherra og umtruna öllu hérna, geri þetta svolítið strákalegra, hauskúpa hér, fótbolti þar og þessháttar. Og þó ætli það nokkuð? Hauskúpur teljast seint minn stíll. Annarrs ætti ég ekkert að ybba gogg, í krónískum hlýrabol eftir óvarlegt sólbað/skólabókarlestur og rauður eftir því.
En talandi um rautt. Ég hef verið að skoða síðu sem heitir freedocumentaries.org, þar sem maður getur horft á pólitískar heimildarmyndir ókeypis og með góðri samvisku þar sem að síðan passar að allt sé löglegt. Ég get ekki annað en beðið ykkur um að taka fyrst ca. 90 mínútur í að horfa á “The War on Democracy” og svo 53 mín. í að horfa á “Globalisation: The new Rulers of the World”. Báðar myndirnar eru gerðar af blaðamanninum John Pilger sem hikar ekki við að benda á það sem miður fer hjá ríku ríkjunum og hvernig það kemur niður á fátækara fólki heimins. Báðar þessar myndir eru þannig að ég tek bara loforð af ykkur að horfa á þær, en segi ykkur ekki frá þeim meira. Annað hvort styrkja þær ykkur í skoðunum ykkar eða umturna þeim, því þetta er ekki ódýr áróður heldur vel unnar heimildarmyndir, þarna er fjölmiðlamaður á ferð sem spyr spurninganna sem alltaf ætti að spyrja, að minnsta kosti þar sem þær eiga heima.
Nóg komið í bili, fyrsta blogg sem lénsherra er hér með lokið.
Hafið það gott.
Lalli