Archive for júní, 2008

Af stálrisum og jóðlandi dvergum

Laugardagur, júní 28th, 2008

Við Eyrún erum bæði búin í prófunum, já og Bumbulína líka sem hjálpaði mömmu sinni í sínum prófum og gaf pabba sínum kraft til að klára 4 próf á 2 dögum. Núna tekur við rólegheita tími í Vínarborg með afslöppun, Sveinn kemur til okkar og tekur við íbúðinni í sumar og passar hana fyrir okkur. Rólegheitin byrja nú samt ekki fyrr en á mánudaginn, fyrst er eftir eitt stykki úrslitaleikur í EM í fótbolta; Spánn vs. Þýskaland. Algjör draumaúrslitaleikur - borgin verður full af syngjandi kátu fólki. Stemningin í borginni hefur verið góð þá daga sem leikirnir í Vín hafa verið, sérstaklega þegar austurríska liðið lék sína leiki, fólk kom hægt og bítandi út úr skelinni sinni og þorði að sýna tilfinningar og hveta sína menn. Hámarki náði það þegar allir biðu eftir sigri á Þjóðverjum í síðasta leiknum, jafnvel fjölmiðill eins og Der Standard sem venjulega er bara kaldhæðinn gagnvart þjóðarstolti og þessháttar hlutum birti grein á forsíðunni sem einfaldlega “warum wir gewinnen” minnir mig. En fyrir lítinn munn austurrískra var þýskt stál of stór biti. Þrátt fyrir það var fólk ánægt með sitt lið, a.m.k. að mestu leiti og fólk stóð á bak við “strákana sína” - sem er nýlunda í austurrískri fótboltamenningu, a.m.k. þess tíma sem við höfum verið hér.

Skemmtilegasta stemningin var samt þegar Tyrkir og Króatar áttust við í 8-liða úrslitum, ég man ekki hvernig hlutföll þessara þjóðarbrota eru, hvort að í borginni séu 50.000 Króatar og 40.000 Tyrkir. Innflytjendur af 1.-3. kynslóð sem óku um götur bæjarins flautandi og veifandi fánum, en komu svo saman í hverfinu þar sem flest þeirra búa 16. hverfi. Ég fæ alltaf einhverja jákvæða tilfinningu þegar fólk eins og þessir innflytjendur fá tækifæri til að gleðjast og vera miðpunktur jákvæðrar athygli í fjölmiðlum.

En úrslitaleikurinn er eftir og ekkert annað hægt að gera samgleðjast þeim sem komust í úrslit og vona að Spánn vinni! Austurríkismenn taka því illa ef að Þjóðverjar (Piefke!) verða Evrópumeistar í Vínarborg, rígurinn á milli stál risans og jóðlandi dversins er óneytanlega til staðar. Þeir austurrísku kunna ekki alveg að vera litla landið, á meðan að Þjóðverjar eru 90. milljónir eru Austurríkismenn aðeins 9. milljónir og þrátt fyrir það hafa þeir ekki áttað sig á íslenska “miðað við höfðatölu” trixinu - heldur reyna þeir að rífa kjaft og verða svo fúlir ef þeir tapa. Á þýsku sjónvarpsstöðinni ZDF-dokukanal var í gær, mynd sem hét Schweiz und Österreich A-Z, þar var talið upp allt það jákvæða um Svissarana og svo þegar röðin kom að Austurríki var fjallað um sjálfsmorðstíðni og skellt fram tilvitnunum frægs fólks sem flestar tóku á því neikvæða/kaldhæðnislega um Austurríki. Tvær þeirra voru nokkuð góðar, fyrst ein frá Beethoven þar sem hann sagði að Austurríkismenn myndu aldrei gera uppreisn ef þeir ættu bjór og pylsur! En svo kom líklega skíringin á því afhverju Þjóðverjum líkar svona “illa” við jóðlandi smá-granna sinn. Austurríkismönnum tókst nefnilega að gera Beethoven í augum sögunnar að Austurríkismanni en Hitler að Þjóðverja - og þar liggur hundurinn grafinn.

 Kveðjur úr Vín,

Lalli

Prófin, hitinn og allt sem því fylgir

Fimmtudagur, júní 26th, 2008

Nú er sko orðið almennilega heitt, ég var búin að gleyma hvað það er óþægilegt. Hér sit ég varla í fötum með viftuna á fullu og er að kafna. Ég ætti líka að vera að læra en ég bara get ekki hugsað í þessum hita. Prófin eru samt búin að ganga ágætlega, Stilkunde eða Stílfræðin er tæp en ég get tekið prófið bara aftur eftir ár ef ég fell. Lalli er búinn að standa sig frábærlega eins og við er að búast af honum. Fullt að gera, hiti, EM en tekur 4 próf á 2 dögum eins og að drekka vatn…hehe vá tók mig rosalega langann tíma að finna þessa asnalegu líkingu. Það er gott að við förum heim eftir viku, íslenskan er orðin frekar einhæf.

 

nokia e65Ég tók upp á því að skoða nýtt símafyrirtæki um helgina því samningurinn minn var útrunnin hjá því gamla og það var ekki alveg að gera sig með nýjustu tækni og flotta síma. Svo finnur maður sér alltaf eitthvað annað til að gera þegar maður á að vera að læra (t.d. að blogga). En ég semsagt skipti yfir til drei og fékk nýjann síma sem er gríðarlega tæknivæddur. Það á mjög vel við tæknisjúku Eyrúnu:) En númerið mitt er alveg það sama þannig að þið þurfið ekkert að hafa áhyggjur af því að ná ekki á mér. Ég er í rosalega góðu sambandi núna.

En nú verð ég að fara að taka mig á og læra.

Bið að heilsa ykkur í bili

Eyrún

Myndir og EM

Mánudagur, júní 16th, 2008

Ég fattaði loksins hvernig ég kem nýjustu myndunum okkar inn á netið, gamla myndasíðan er ekki að virka eftir að við fengum okkur nýja tölvu. En núna er ég bara búin að setja upp nýja undirsíðu þar sem þið getið skoðað myndirnar okkar. Hanna og Dóri voru hjá okkur seinustu viku og við tókum að sjálfsögðu myndir. Þið getið séð þær hér.

Svo er mikilvægasti leikur EM í kvöld, Austurríki - Þýskaland. Við styðjum okkar menn að sjálfsögðu fram í rauðann dauðann, ætlum að hitta Kristínu og kannski einhverja fleiri og horfa á leikinn saman. Held að við treystum okkur ekki inn á FanZone því það verður örugglega pakkað og kannski ekki svo sniðug stemming hvernig sem leikurinn fer. Það er líka oft svo erfitt að komast inn fyrir svona bumbulínu eins og mig. Allir að troðast og ýta. Lalli var alveg að drepast í fótunum að halda öllum brjálæðingunum frá bumbulínu seinast þegar við fórum inn. Að vísu nýtti ég mér kerfið í eitt skipti og fékk að fara inn um fatlaða innganginn :) Kallinn spurði mig að vísu hvort maður væri nokkuð fatlaður þegar maður væri ófrískur og ég neitaði því auðvitað en hann hleypti mér í gegn. En það verður allavegana stemming hjá okkur hvar sem við verðum.

Wien wird Cordoba lalalalala……immer wiiiieder immer wiiiiieder immer wiiiieder österreich…..jetzt gehts los:)

Eyrún

immer wiieeder immer wiieeder immer wiieeder österreich!

Sunnudagur, júní 8th, 2008

Fyrstu leikirnir í EM 2008(TM) búnir, Portúgalar sýndu hvað í þeim býr, en það er auðvitað ekki hægt að dæma alveg um hvernig liðin eru fyrr en í næstu umferð. Þegar að varnarliðin Sviss og Tékkland mæta sókndjarfari Tykjum og Portúgölum, þá sér maður þetta betur.

 Í dag leika Austurríkismenn sinn fyrsta leik á móti Króötum, miðað við hvað maður les heima trúa því fæstir að Austurríki nái að gera nokkurn skapaðan hlut. En lið sem kemst 3:0 yfir gegn Hollandi getur ekki verið alslæmt, ég trú því að mínir menn stríði hinum liðunum og geti jafnvel komist í átta liða úrslit. Það er samt fyndið að lesa hvað íslenskir fjölmiðlamenn skrifa um austurríska liðið, á visir.is stóð að liðið treysti á Rene Aufhauser og Joacim Standfest. Ok, Aufhauser er “tudda”-miðjumaðurinn þeirra og öflugur í loftinu, en það er langt því frá að liði treysti sérstaklega á Standfest, í vörninni eru það frekar Stanzl hjá Spartak Moskau, Emanuel Pogatetz hjá Middlebrough og svo 20 ára gamli Sebastian Prödl. En fyrst og fremst treystir liðið á Andreas Ivanschitz sem er fyrirliðinn þeirra 25 ára “Spielmacher” þ.e. sá sem liðið treystir til að byggja upp skyndisóknir og taka föst leikatriði. Svo vona ég að Ümit Korkmaz og Erwin Hoffer sýni hvað í þeim býr, ungir og snöggir gaurar sem gætu strítt gömlum varnarmönnum eins og t.d. hjá Króatíu.

Við skellum okkur niður á Fan Zone í miðborg Vínar á eftir og fylgjumst með leiknum, íklædd rauðu og hvítu.

Ciao,

Lalli

Allir í Bandgasse 19/17 með sömu síðu

Þriðjudagur, júní 3rd, 2008

Undarlegt hvað svona lítil kríli eru fljót að sameina foreldrana, bumbulína er ekki einu sinni kominn í heiminn og pabbinn og mamman komin með sömu bloggsíðu - vonandi tekst henni ekki að koma okkur í krumpugalla í stíl alveg strax.

Þar sem ég hef aldrei áður bloggað á svona flottri síðu á það eftir að taka mig tíma að aðlagast herlegheitunum, fluttur úr .blogspot.com kofaskrípli í privat-lénshöll.net. Það lýður nú e.t.v. samt ekki á löngu þar til ég breytist í lénsherra og umtruna öllu hérna, geri þetta svolítið strákalegra, hauskúpa hér, fótbolti þar og þessháttar. Og þó ætli það nokkuð? Hauskúpur teljast seint minn stíll. Annarrs ætti ég ekkert að ybba gogg, í krónískum hlýrabol eftir óvarlegt sólbað/skólabókarlestur og rauður eftir því.

En talandi um rautt. Ég hef verið að skoða síðu sem heitir freedocumentaries.org, þar sem maður getur horft á pólitískar heimildarmyndir ókeypis og með góðri samvisku þar sem að síðan passar að allt sé löglegt. Ég get ekki annað en beðið ykkur um að taka fyrst ca. 90 mínútur í að horfa á “The War on Democracy” og svo 53 mín.  í að horfa á “Globalisation: The new Rulers of the World”. Báðar myndirnar eru gerðar af blaðamanninum John Pilger sem hikar ekki við að benda á það sem miður fer hjá ríku ríkjunum og hvernig það kemur niður á fátækara fólki heimins. Báðar þessar myndir eru þannig að ég tek bara loforð af ykkur að horfa á þær, en segi ykkur ekki frá þeim meira. Annað hvort styrkja þær ykkur í skoðunum ykkar eða umturna þeim, því þetta er ekki ódýr áróður heldur vel unnar heimildarmyndir, þarna er fjölmiðlamaður á ferð sem spyr spurninganna sem alltaf ætti að spyrja, að minnsta kosti þar sem þær eiga heima.

Nóg komið í bili, fyrsta blogg sem lénsherra er hér með lokið.

Hafið það gott.

Lalli

 

Ný www.eunnarsdottir.net/blog

Mánudagur, júní 2nd, 2008

Eins og þið kannski sjáið höfum við fengið liðsauka hingað til okkar á síðuna, en núna verðum við fjölskyldan saman með þessa síðu. Hér getið þið þá lesið hvað á daga okkar drífur og allskonar þankaganga. Víhhí við Bumbulína erum rosalega ánægðar að Lalli hefur ákveðið að vera með okkur í bloggheimum. En ég er búin að vera rosa dugleg að bæta öllu við fyrir Lalla og setti líka nokkar af gömlu færslunum hans hingað inn. Svo verður hann að hanna þetta betur fyrir sig, setja inn tengla og svoleiðis. Svo gerði ég undirsíður fyrir okkur öll sem þið sjáið uppi, og þar eru nokkar myndir af Bumbulínu sem við eigum á hennar síðu.

Svo hef ég verið að reyna að klippa niður upptökuna af 3. Jahrgangskonzert sem var að vísu í apríl….(soldið sein) en það er ekki alveg að virka hjá mér, ætla að athuga eitt annað forrit sem kannski hjálpar mér.

Við fórum aftur í gær í Volksgarten en fengum til okkar liðsauka því hún Anna Bryndís kom og var hjá okkur í smá tíma meðan mamma hennar og pabbi fóru á dansnámskeið. Það var alveg ofboðslega notalegt enda er hún með eindæmum yndislegt barn.

IMG 1024

Anna Bryndís og Lalli

IMG 1057

Við öll saman

Held að ég sé búin að ná að klippa upptökurnar svo að hér koma þær:

Eyrún Unnarsdóttir - Vergiftet sind meine Lieder

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Eyrún Unnarsdóttir - Erbarme dich

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Fyrra ljóðið er eftir Franz Liszt og seinni arían er eftir J. S. Bach. Þetta er tekið upp á 3. Jahrgangskonzert sem voru haldnir þann 15. apríl 2008.

Svo fórum við aftur í dag í Volksgarten, alveg að njóta þesss að vera úti í sólinni og niðrí bæ þangað til að allur skríllin kemur hingað á Evrópumótið. Voksgarten verður lokaður að því ég best veit þannig að við verðum að finna okkur einhvern annan garð til að flatmaga í og lesa, við vorum nefninlga ekki bara að hafa það notalegt, vorum líka að læra..:) Mjög duglegir krakkar. Við skulum nú fá eina mynd til að staðfesta það.

IMG 1077

Annars óska ég ykkur góðrar viku og ég þarf að drífa mig í bólið svo ég verði ekki þreytt á morgun.

Eyrún