Sólardagur í Vínarborg
Það var yndislegur dagur í Vínarborg í dag, sól og sumarylur. Alveg á mörkunum að ég myndi ekki bara stikna í þessum hita en við fórum í Billa og keyptum okkur hádegisbita og settumst niður í Volksgarten en sátum bara í skugganum sem var alveg akkúrat passlegt fyrir mig. Það var ekkert smá notalegt að kúldrast þar á teppi og lesa og hafa það notalegt.
Svo tókum við nokkar myndir á leiðinni heim hjá rósunum fallegu í garðinum. Hér koma nokkar
Smá bumba komin:) tekið í dag, komin 21 viku og 4 daga.
Önnur bumbumynd á júróvisjónkvöldinu fræga þegar við komumst áfram loksins, komin 20 vikur og 2 daga.
Svo ein til samanburðar, tekin 23. mars 2008, komin 11 vikur og 5 daga.
En núna þarf ég að fara að hjálpa Lallanum að búa til Laugardagspizzuna. Vonandi hafið þið það gott líka, og takk fyrir öll kommentin, gaman að sjá að það eru nokkrir að fylgjast með þessari síðu.
Kveðjur úr Bandgasse.




júní 2nd, 2008 at 7:16 pm
Hæ þið sætu.
Gaman að sjá myndir af fallegu bumbulínunni, held að ég hafi bara ekki séð betri myndir af þér Eyrún mín, geislandi alveg hreint
Hlökkum til, nú styttist og styttist jeyjjjjj!!!
Bestu kveðjur,
Hanna og co.
júní 3rd, 2008 at 2:51 pm
Ohh sæta sæta, þetta fer þér svona líka glimrandi vel!
júní 3rd, 2008 at 10:41 pm
vá hvað þú ert falleg, eyrún. þetta er yndislegt alveg hreint.
hlakka til að sjá ykkur í sumar!
júní 3rd, 2008 at 11:25 pm
Hvað þið eruð heil og geislandi.. ótrúlega gaman að sjá svona bumbumyndir.. hlakka til að sjá ykkur í sumar..
júní 11th, 2008 at 8:34 am
Æji elsku Eyrún æðislegt að sjá myndir af þér…þó geislar allveg og ert svo sæt með bumbulínu:) Ég er að fara í síðasta prófið mit núna eftir korter og hjóla í skólann með bros á vör eftir að hafa séð þesar sætu myndir. Hlakka tilað sjá ykkur í sumar. Knus