Júróvisjón
Það var náttúrulega æðislegt að við komumst loksins í úrslitin og rosalega gaman að geta haft smá stemmingu á úrslitakvöldinu. Við buðum íslensku krökkunum til okkar og það var rosa stuð hjá okkur. Leiðinlegt bara hvað það var sjaldan sem við fengum stig, en við stóðum okkur samt rosalega vel, það er bara erfitt að keppa við austrið. En það er kannski allt í lagi, afhverju mega þau ekki standa sig vel? Uppáhaldslagið mitt fyrir utan íslenska var lagið frá Úkraínu, var frekar fúl að það hefði ekki bara unnið. Mér fannst lagið frá Rússunum ekki svo fínt. Úff ég er að hlusta á rússalagið núna á youtube frá undanúrslitunum og metrókallinn er nú bara nokkuð vel falskur. En jæja það er nú ekki hægt að gráta þetta meira, við verðum bara að halda áfram að taka þátt og vera með stemmarann á lofti. ÁFRAM ÍSLAND.
Annars er ég ennþá kvefuð og fór þess vegna ekki með í vorferðina hjá Íslendingafélaginu í dag. Mega fúlt, en ég fæ að fara í kvöld og hitta Önnu Bryndísi vinkonu mína og knúsa hana aðeins í staðinn. Ég ætla bara að hafa það notalegt í dag og prjóna. Ég er orðin alveg handavinnu óð, kláraði húfuna í gær og nú er það bara að byrja á treflinum. Ég ætla svo að taka myndir af þessu og setja hérna inn. Þetta er bara svo gaman, líka í fyrsta skipti sem ég er að gera eitthvað sem ég get svo hugsað mér að nota.
Ég hugsa að það stefni samt allt í það að ég geti ekki farið í skólann á morgun:( ég get lítið sungið með svona stíflað nef. Þó svo að það sé nú voðalega lítið á röddinni.
En við fórum á föstudaginn í 20.vikna skoðunina og þá leit allt svona glimrandi vel út. Sónarkallinn var bara rosa skotinn í krúttinu okkar sem við vorum líka, við brostum alveg hringinn allann daginn eftir skoðunina. Ohh þetta er svo góð tilfinning, ég get bara varla beðið eftir því að fá barnið í hendurnar. En tíminn er nú búinn að vera fljótur að líða hingað til og hann verður örugglega áfram fljótur að líða, Hanna og Dóri fara að koma til okkar, svo eru bara prófin og svo förum við heim. Svo verður tíminn örugglega ekki lengi að líða heima, alltaf svo margt að gera og gott fólk til að vera í kringum. Svo kemur september og þá er bara mánuður til stefnu og við höfum fullt að gera þá að undirbúa komu erfingjans. Víhhí.
En ég ætla að koma mér vel fyrir uppí sófa og horfá Gilmore og prjóna.
Bestu kveðjur frá Vínarborg
Eyrún og Bumbulína
maí 25th, 2008 at 10:30 pm
Hæ elsku skvísa…rosalega er gaman að heyra hvað allt gengur vel og þú ert hamingjusöm, þrátt fyrir kvefið. Við mamma sitjum hérna á sófanum og höfum það huggulegt. Mamma og pabbi eru í helgarferð hjá okkur, æðislegt að hafa þau. Við hjóluðum út um allt í góða veðrinu í dag og elduðum svo góðan mat þegar við komum heim.
Við hlökkum svo rosalega til að sjá þig í sumar og ykkur öll. Bestu kveðjur til ykkar Lalla og litlu bumbulínu:)
maí 26th, 2008 at 8:08 pm
Hæ hæ, takk fyrir síðast. Alltaf jafn gaman að horfa á júróvision…þótt við vinnum aldrei
Sjáumst vonandi á miðvikudaginn
maí 28th, 2008 at 3:47 pm
Vei ég er með brosið fast framan í mér. Hlakka svo til að sjá bumbu!
maí 29th, 2008 at 2:15 am
Hey hey!
Til hamingju bæði tvö,
æðislegt að heyra að allt gengur vel hjá ykkur
Kveðja,
Anna
maí 31st, 2008 at 12:24 pm
Bara kasta kveðju…gott að allt gengur vel! væri ofsalega gaman að fá að sjá bumbumynd
knús og kossar