Það var yndislegur dagur í Vínarborg í dag, sól og sumarylur. Alveg á mörkunum að ég myndi ekki bara stikna í þessum hita en við fórum í Billa og keyptum okkur hádegisbita og settumst niður í Volksgarten en sátum bara í skugganum sem var alveg akkúrat passlegt fyrir mig. Það var ekkert smá notalegt að kúldrast þar á teppi og lesa og hafa það notalegt.
Svo tókum við nokkar myndir á leiðinni heim hjá rósunum fallegu í garðinum. Hér koma nokkar
Smá bumba komin:) tekið í dag, komin 21 viku og 4 daga.
Önnur bumbumynd á júróvisjónkvöldinu fræga þegar við komumst áfram loksins, komin 20 vikur og 2 daga.
Svo ein til samanburðar, tekin 23. mars 2008, komin 11 vikur og 5 daga.
En núna þarf ég að fara að hjálpa Lallanum að búa til Laugardagspizzuna. Vonandi hafið þið það gott líka, og takk fyrir öll kommentin, gaman að sjá að það eru nokkrir að fylgjast með þessari síðu.
Það var náttúrulega æðislegt að við komumst loksins í úrslitin og rosalega gaman að geta haft smá stemmingu á úrslitakvöldinu. Við buðum íslensku krökkunum til okkar og það var rosa stuð hjá okkur. Leiðinlegt bara hvað það var sjaldan sem við fengum stig, en við stóðum okkur samt rosalega vel, það er bara erfitt að keppa við austrið. En það er kannski allt í lagi, afhverju mega þau ekki standa sig vel? Uppáhaldslagið mitt fyrir utan íslenska var lagið frá Úkraínu, var frekar fúl að það hefði ekki bara unnið. Mér fannst lagið frá Rússunum ekki svo fínt. Úff ég er að hlusta á rússalagið núna á youtube frá undanúrslitunum og metrókallinn er nú bara nokkuð vel falskur. En jæja það er nú ekki hægt að gráta þetta meira, við verðum bara að halda áfram að taka þátt og vera með stemmarann á lofti. ÁFRAM ÍSLAND.
Annars er ég ennþá kvefuð og fór þess vegna ekki með í vorferðina hjá Íslendingafélaginu í dag. Mega fúlt, en ég fæ að fara í kvöld og hitta Önnu Bryndísi vinkonu mína og knúsa hana aðeins í staðinn. Ég ætla bara að hafa það notalegt í dag og prjóna. Ég er orðin alveg handavinnu óð, kláraði húfuna í gær og nú er það bara að byrja á treflinum. Ég ætla svo að taka myndir af þessu og setja hérna inn. Þetta er bara svo gaman, líka í fyrsta skipti sem ég er að gera eitthvað sem ég get svo hugsað mér að nota.
Ég hugsa að það stefni samt allt í það að ég geti ekki farið í skólann á morgun:( ég get lítið sungið með svona stíflað nef. Þó svo að það sé nú voðalega lítið á röddinni.
En við fórum á föstudaginn í 20.vikna skoðunina og þá leit allt svona glimrandi vel út. Sónarkallinn var bara rosa skotinn í krúttinu okkar sem við vorum líka, við brostum alveg hringinn allann daginn eftir skoðunina. Ohh þetta er svo góð tilfinning, ég get bara varla beðið eftir því að fá barnið í hendurnar. En tíminn er nú búinn að vera fljótur að líða hingað til og hann verður örugglega áfram fljótur að líða, Hanna og Dóri fara að koma til okkar, svo eru bara prófin og svo förum við heim. Svo verður tíminn örugglega ekki lengi að líða heima, alltaf svo margt að gera og gott fólk til að vera í kringum. Svo kemur september og þá er bara mánuður til stefnu og við höfum fullt að gera þá að undirbúa komu erfingjans. Víhhí.
En ég ætla að koma mér vel fyrir uppí sófa og horfá Gilmore og prjóna.
Hann var uppáhaldið mitt, og mér finnst þetta geggjað flott hjá honum. Hann er bara með svo geggjaða rödd. Mmmm ég fæ alveg gæsahúð. En hinn David var líka góður.
Annars er 20 vikna skoðun á morgun alveg eldsnemma. Það verður gaman að fá að sjá Bumbus aftur. Sjá hvað hann er búinn að stækka mikið. Ég vona bara að allt verði eins og það eigi að vera. Mér finnst bumban samt ekkert stækka, og ég er ekki búin að taka neina alvöru bumbumynd fyrir utan eina sem við tókum þegar ég var gengin ca. 12 vikur og þá var engin “alvöru” bumba. Við förum nú vonandi að bæta úr því og þá skelli ég einni hérna inn. Mér finnst samt ótrúlegt að ég sé hálfnuð, þetta líður rosalega fljótt og áður en við vitum af verðum við orðin þrjú. Úff ég get eiginlega ekki beðið, það á eftir að vera svo notalegt.
En ég er hins vegar að verða eitthvað smá lasin, með illt í hálsinum og þreytt. Ég er samt heppin því að það er frídagur í dag og ég ætla þess vegna að leggjast upp í sófa núna og klára teppið handa bumbusi og horfa á eitthvað skemmtilegt. Kannski að maður leggji sig svo bara á framhaldi af því:) Mmmm bara lúxus. Svo er auðvitað Júrópartý í kvöld og maður mætir auðvitað eins og sannur íslendingur til að styðja sitt fólk. Áfram Júróbandið!!!
Það er vitleysa að segja að það sé sárt að sakna, það er e.t.v. vont gott, en það er samt gott. Ég var núna á myspace-ferðalagi, eitthvað sem ég geri sára sjaldan, en það var ljúft og ég saknaði þess að geta ekki vitleysast með strumpum af fróni. Ef ég hefði ekki saknað þeirra hefði ég aldrei kíkt á síðurnar og brosað yfir því hvað þeir eru töff og miklir nördar.
Svo er líka gott að eiga hjá mér hérna úti besta vin, unnustu og tilvonandi barnsmóður í sömu manneskjunni. Jámm, fyrir þá sem ekki voru búnir að frétta af því þá eigum við Eyrún von á bumbusi í heiminn, eða núna er viðkomandi Bumbus, en verður svo sjálfstæður, lítill og sætur einstaklingur í byrjun október. Sem sagt spennandi tímar framundan.
-
Síðustu mánuði hef ég verið við og við skrifað greinar á politik.is, ekkert nema gott um það að segja - enda á maður að taka þátt í umræðunni ef maður hefur áhuga á henni.
En ég er oft í erfiðleikum með að setja greinarnar í rétt form, þær verða stundum hálf þurrar og leiðinlegar. En það kemur allt með æfingunni - áður en þið vitið af verð ég meistari!