Fyrstu Einsöngstónleikarnir
Föstudagur, ágúst 3rd, 2007Tónleikarnir tókust frábærlega, við slóum aðsóknarmet í sumar og það komu um 110 manns á tónleikana. Það var yndisleg stemmning og ég vil þakka öllum þeim sem sáu sér fært að koma innilega fyrir. Eftir tónleikana fórum við fjölskyldan, amma og afi, Helga Bryndís, Geiri, Hanna og Maja á Friðrik V í yndislega sjávarréttasúpu og brauð. Það var alveg frábært að setjast niður í rólegheitum eftir tónleikana og leyfa stressinu og spenningnum að líða úr sér með góðum mat og yndislegum félagsskap. Takk aftur fyrir það.
Svo voru rólegheitin í fyrirrúmi yfir daginn en dýrindis grillveisla hjá pabba og mömmu um kvöldið þar sem Jóni kom og borðaði með okkur. Við alveg röðuðum í okkur krásirnar og veigarnar og héldum svo út eftir að hafa verið lengi að spjalla við mömmu og pabba.
En því miður var enginn í bænum sem við þekktum nema hann Óli Sindri sem reddaði kvöldinu. En kvöldið varð frekar dapurlegt eftir þetta og fórum við því bara snemma heim því Lalli þurfti líka að mæta í vinnu daginn eftir.
Daginn eftir kom svo áfallið, sem maður er enn að jafna sig á. En það kemur hægt og bítandi. Ég er viss um að allt fari vel og held sterkt í þá von. En mikil óvissa ríkir samt framundan og það er alltaf óþægilegt að vera svona í lausu lofti.
En Ásta og Geiri eru núna á ferðalagi um Evrópu þannig að við Lalli látum fara vel um okkur í Klettaborginni, með pottinn og þvottavélina og þurrkarann innan seilingar. Mmm algjör lúxus.
Svo er það bara vinna vinna vinna yfir helgina og svo aftur komin ljúft frí fram á föstudag.
Kveðja,
Eyrún