1. Diplom

Þá er það yfirstaðið, prófið fór vel fram snemma á þriðjudagsmorguninn eða réttara sagt kl 10. Þetta var alveg svolítið erfitt, var svo stressuð daginn áður, mikið til útaf því að ég var búin að ákveða að vakna kl 6 til að ég yrði almennilega vöknuð í röddinni. Til að vakna svona snemma varð ég náttúrulega að fara snemma að sofa. Var komin upp í rúm um 9 - hálf 10 en gat engann veginn róað mig niður. Hjartað hamaðist og sama hvað ég gerði þá varð ég ekki einu sinni syfjuð. Ég hlustaði á hugleiðslu, ég hlustaði á slökun með Guðjóni Bergmann og ég hlustaði á Harry Potter bók Audiobook nr. 6. Lalli sagði mér sögu um litlu bláu flugvélina, en ekkert gerðist. Hann meira að segja las fyrir mig úr Harry Potter sem hann er að lesa en ég náði ekki að sofna. Seinast þegar ég man var kl orðin hálf 1 og ég orðin ennþá meira stressuð því núna fengi ég svo stuttan svefn. En þetta hafðist einhvernveginn, ég náði að sofna og vaknaði eldhress kl 6 um morguninn.

Ég gleymdi krananum á þegar við fórum út og við vorum komin út á lestarstöð þegar ég fattaði það og Lalli greyið þurfti að hlaupa heim til að slökkva á honum. Sem betur fer fór ekkert uppúr en það munaði litlu.

Ég var svo númer 4 í röðinni. Söngurinn gekk vel, veit samt alveg vitleysurnar mínar og var ekkert rosalega ánægð með dýptina mína, svona snemma á morgnana er dýptin mín ekki sú besta, oftast meira loft einhvernveginn. En allavegana gekk þetta alltsaman, ég söng 1 aríu og 2 ljóð. Úff var alveg rosalega fegin þegar þetta var búið en upptakan klikkaði, batteríið var búið þrátt fyrir að ég hafi skipt um batterí um morguninn,hef tekið ónýtt batterí í staðin fyrir nýtt…arg! :)

Við vorum 7 sem tókum þetta próf í ár, þannig að þetta var ekki svo langt. Eftir prófið ráðfæra prófessorarnir sig saman, en allir söngprófessorarnir eru að dæma í prófinu. Hver og einn gefur hverjum nemanda einkunn sem er svo sett saman í eina einkunn. Svo fær maður bara að vita strax hvað maður fékk í einkunn.

Ég fékk 1 eða Sehr gut eða hæstu mögulegu einkunn á 1. diplómaprófinu mínu.

Ég er auðvitað alveg rosalega ánægð með það og ég er að gera mér meira og meira grein fyrir því með tímanum sem líður. Það er alltaf gaman að vera að standa sig vel í því sem maður tekur sér fyrir hendur.

Við vorum tvö sem fengum 1, ég og Pauli sem er tenór frá Tirol og er mjög hress. Hann og Jóni eru miklir vinir og Jóni er alltaf að kenna honum skemmtilega íslensku og hann hefur mikinn áhuga á því að læra. Hann segir til dæmis alltaf við mig þegar við hittumst eða þegar hann hefur samband við mig í gegnum sms eða síma: Heyrðu gamla. Og í smsinu var það skrifað herdö gamla sem var krúttlegt og ekki fjarri lagi. En hann átti einkunnina vel skilið. Hinir fengu á bilinu 2 - 3 held ég og allir náðu sem var mjög gott og ánægjulegt.

Svo er hún Lára besta komin til okkar í heimsókn og við erum búin að reyna að hafa það gott miðað við hrikalega hitann sem er hérna. Það er klárlega ekki íslenskt veðurfar hér á meginlandinu og við íslendingar erum ekki hannaðir fyrir svona mollu. En við látum það nú ekki aftra okkur…verðum þá bara í sundi eða að flatmaga í grasinu.

Annars eru það bara tæpar 2 vikur í lendingu á Akureyrinni góðu.

Veriði hress, ekkert stress, bless.

Eyrún

 

One Response to “1. Diplom”

  1. Margrét Brynjars Says:

    Innilega til hamingju (aftur)!
    Þú ert líka svo flott í tauinu, þetta hafði ekki getað klikkað ;)
    Hlakka til að sjá þig elskulegust.

Leave a Reply