Archive for maí, 2007

Tilkynningar

Fimmtudagur, maí 17th, 2007

Til að byrja með langar mig að tilkynna það hér að ég hef fengið inngöngu í Listasumar 2007 á Akureyri og mun halda ljóðatónleika, í hádeginu, 27. júlí og verða þeir í Ketilhúsinu. Á dagskrá verða ljóð eftir Schubert, Brahms og Wolf auk valinna íslenskra ljóða. Það myndi gleðja mig mjög ef sem flestir gætu séð sér fært um að koma.

Það næsta á dagskrá er það að mig langar að auglýsa íbúðina okkar Lalla til leigu í sumar gegn sanngjörnu verði. Íbúðin okkar er 2. herbergja, ca. 70 fermetrar með svefnaðstöðu fyrir 4-6 (hjónarúm í svefnherbergi, tvíbreiður svefnsófi í stofu og 2 dýnur). Sjónvarp og internet innifalið einnig 2 hjól og 2 hjálmar, bækur um Vínarborg á ensku, flygill og þvottavél. Íbúðin er í 8. hverfi í Vínarborg sem liggur upp að 1. hverfi eða miðborginni þannig að göngutími niður í miðbæ er um 15 mínútur og um 10 mínútur að aðalverslunargötunni. 8. hverfi er besta hverfið í borginni, minnsta líka, og forsetinn á heima í því. Hann neitaði að flytja úr hverfinu í forsetavilluna svo gott er hverfið. Íbúðin er laus frá 5. júlí til lok september. Áhugasamir endilega hafið samband, msn: eyrunamer@hotmail.com, email: eyrunamer@gmail.com.

Kosningabömmer

Þriðjudagur, maí 15th, 2007

Jæja þá eru kosningar yfirstaðnar og júró líka. Jafn dapurlegar voru niðurstöðurnar í hjá báðum.

Það er mér ótrúlegt hversu mörg atkvæði sjálfstæðið fær aftur og aftur. En það munaði litlu núna og það er greinilegt að fólk er orðið þreytt, allavegana meiri en helmingur því að stjórnin er ekki einu sinni með helming þjóðarinnar á bak við sig. Mér þykir eiginlega hlægilegt að gáfað og þroskað fólk (sem ég geri nú ráð fyrir að sé í báðum þessum flokkum en kannski er það barnalegt af mér að gera ráð fyrir því) sjái ekki ruglið í því að reyna að stjórna landi með 1 manns meirihluta og 48,3 % á bak við sig. Það sem ég vona núna er eiginlega að þeir haldi áfram þessu rugli, framsókn ennþá svo veik að hún þorir ekki að taka neina afstöðu og missir enn meiri trúverðugleika og stjórnin falli eftir eins stuttan tíma og mögulegt er og það verði kosið aftur. Þá látum við sjallana heyra það að við viljum ekki þessa endalausu eiginhagsmunasemi og peningagræðgi.

Hvað er stjórnin búin að gera fyrir ungt fólk á leið útí lífið? Allavegana eins og staðan er í dag er ég ofboðslega ánægð yfir því að vera að læra hér úti í Vínarborg því hér fæ ég allavegana nægilega framfærslu á mánuði. Er það eðlilegt að land sem stærir sig af því að vera með ríkustu löndum í heimi styðji námsmenn sína aðeins með lánum? Peningum sem þú þarft að borga til baka en samt máttu ekki fá eins mikið og þú þarft á mánuði. Þannig að í ofan á lag að vera í fullu námi sem þú verður að verður að vera í til að fá lán, þarft að ná 75% af því námi til að fá eitthvað borgað, þá verðuru að vinna fyrir þér í hlutavinnu til að ná endum saman og enda ekki með mörg hundruð þúsund króna yfirdrátt eftir háskólanám. Frábært nesti útí lífið…vera með ca. 3 milljónir á bakinu í námslán eftir þriggja ára nám + feitann yfirdrátt. Svo er það spurningin um húsnæði, ekki komast allir að á stúdentagarða og hvað er þá í stöðunni? Leiguverðið á Landinu er nú ekki það hagstæðasta þannig að margir fara út í það að taka 100% lán á fyrstu íbúðinni og eru þá komin með nokkuð góða greiðslubyrði á mánuði. En þetta þykir sjálfstæðinu algjörlega eðlilegt og langar meira að segja að setja á skólagjöld svo að við fátæku námsmennirnir getum haldið lífeyrissjóðnum þeirra uppi.

Framlög ríkisins til skólanna hafa verið stóraukin en til að ná árangri dugar það ekki eitt og sér. Til þess að það takist þurfa nemendur að taka í auknum mæli þátt í kostnaði við nám sitt. Öflugt menntakerfi þarf að vera sameiginlegt verkefni ríkis, nemenda og atvinnulífs. Landsfundur bendir á mikilvægi þess að lánastofnanir veiti lán fyrir skólagjöldum enda er nám ekki einungis fjárfesting samfélagsins heldur einnig einstaklinga.
(tekið 14.5.07 af http://www.xd.is/xd/2007/landsfundur/?ew_news_onlyarea=&ew_news_onlyposition=3&cat_id=53459&ew_3_a_id=276450 )  

Svona er staðan eftir 12 ára stjórnarsamstarf framsóknar og sjálfstæðisins. Ég held að þeir sem kunna að reikna og prófa við þetta dæmi að þá sjái þeir fljótt að það gengur ekki upp. Enda hefur stjórnin ekki verið að styðja við fólkið í landinu heldur fáa vini kvótakerfisins og ríka fólkið. Ég er mjög svekkt og gæti skrifað hér fleiri fleiri dæmi um hvers vegna ég er ósátt við ríkisstjórnina, til dæmis Landsbyggðarpólitík, endalausa höfuðborgarstefnu í þessu landi, það er auðvitað bara óþarfi og algjör fásinna að vestfirðingar vilji fá malbikaða vegi og hvað þá tvíbreitt malbik og landsbyggðin er endalaust að breka um einhver göng. En höfuðborgarbúar verða auðvitað ekkert nema fúlir ef þeir komast ekki á undir hálf tíma útí náttúruna og þá á sko líka að vera allt til staðar, en engum dettur í huga að fólk þurfi að búa þarna allt árið um kring. Svo má líka ræða um Jafnréttismál, er eðlilegt að árið 2007 séu týpísk kvennastörf ennþá verr metin fjárhagslega en týpísk karlastörf (þá meina ég þau störf þar sem hlutfallslega fleiri konur eru í stéttinni en karlar). Þar finnst mér karlar eigi að taka persónulega á sig ábyrgðina því að enn þann dag í dag eru það karlar sem sitja við stjórnvölinn (og ef það er kona sem reynir að fá að stjórna þá er endalaust grafið undan trúverðugleika hennar meira en öðrum stjórnendum (körlum), sem dæmi má taka Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur) og leiðrétta þetta ójafnvægi í eitt skipti fyrir öll.

Úff…Mig langar ekki að svekkja mig lengur á svona stjórnunarháttum. Eitt að lokum…vissuð þið að græðgi er ein af 7 dauðlegu syndunum, en umhyggja og samhyggð eru hjá flestum flokkaðar sem dyggðir.

Frelsi, jafnrétti og systralag í stað eiginhagsmunasemi. Samfylkingin lengi lifi.