Ítalska
Miðvikudagur, janúar 24th, 2007Ítölskuprófið gekk alveg ágætlega, enda hjálpaði kennarinn okkur nokkuð mikið en ruglaði mig líka svolítið. Hann er svo ruglingslegur, hann er týpískur Ítali segir oftast svona 50 sinnum mamma mia! og madonna!í tímanum. Hann kann ekkert rosalega góða þýsku þannig að hann útskýrir ekkert mjög vel og mest af tímunum skil ég ekkert hvert hann er að fara. Hann segir oft einhverja setningu við okkur og við eigum að svara. Oftast skil ég ekkert hvað hann er að segja og get því ekki myndað svar við spurningu sem ég veit ekki hver er, svo hef ég engann orðaforða til að mynda svarið til að byrja með. Arg!
Svo lét ég hann alveg rugla mig í dag, prófið var sko þannig að við áttum fyrst að klára 10 setningar sem voru skrifaðar á blað og var það að beyja sagnirnar rétt og setja rétta forsetningu við. Svo áttum við að fara með eitt lítið ljóð á ítölsku fyrir hann. Í tímanum á undan prófinu sagið hann að sögnin uscire sem þýðir að fara út (ausgehen) væri alltaf með forsetningunni da nema þegar maður væri að fara að heiman þá væri það di casa. Ok ekkert mál, á prófinu kom sögnin uscire og ég setti strax da við og pældi lítið í því meira því hann sagði að það væria alltaf svoleiðis. Neinei þá var setningin þannig: ég fer út með vini mínum og þar af leiðandi átti það auðvitað að vera con eða með. En hann bara kann ekki nógu góða þýsku til að segja að uscire er alltaf með da þegar meint er að fara út en ekki fara með. Ég veit ekki hvort er hægt að skilja þetta hjá mér en ég verð bara aðeins að fá að pirra mig yfir þessum kalli. En þetta var eina villan sem ég var með því að hann leiðrétti eina hjá mér í prófinu og sagði mér hvað ætti að vera þar. En svo kunni ég ljóðið ekki nógu vel og þurfti alltaf að stoppa á milli til að muna hvað kæmi næst og bar það örugglega ekki alveg rétt fram eins og maður gerir bel canto eða eitthvað þannig að ég fékk 2. En ég er alveg ánægð með það, mest ánægð með það að ég á bara 3 annir eftir með þessum gæja, samt er það alltof mikið.
Núna er það bara Musiktheori madness og Tónheyrn, ég verð syngjandi 5undir, 6undir og 7undir næstu daga:)
Bæ á meðan,
Eyrún