Í dag er vika í brottför heim á leið. Ég get alveg sagt að ég hlakka alveg ofboðslega til. Satt að segja hugsa ég um fátt annað. Get ekki hugsað mér að hugsa eitthvað um skólann og hvað þá læra eða æfa mig.
Í dag ætlum við að kúrast í jólastemmingu hér í Vín og kíkja í mannmergðina í bænum. Við þurfum að klára að versla nokkrar jólagjafir. Erum samt búin að vera nokkuð dugleg og eigum bara nokkrar eftir.
Úff það er ekkert til að segja eiginlega…
Við eða mest megnis ég var þunn í gær sökum gríðarlegs partýs í skólanum hennar Kristínar þannig að við settumst niður í Burggarten og borðuðum gulrætur og drukkum vatn. Hljómar ekki vel við þynnku en virkar..belívjúmí. Annars var um 15 stiga hiti hér í Vín í gær þannig að okkur varð ekkert kalt. Svo fórum við á bestasta kaffihúsið og ég fékk mér hátíðarsparikaffi. Það er espresso með rjóma og pínu sykri..úff..algjört nammigott. Við fórum líka á Naschmarkt og fengum okkur sushi með Kristínu. Það var gott.
Svo vorum við bara róleg og gerðum jólakort í gærkvöldi. Ég skal ná að senda út þessi jólakort þetta ár. Úff þetta er alveg merkilegt hvað ég ætla mér alltaf að skrifa jólakort og senda þau en hef held ég aldrei gert það. Í ár mun það vonandi takast.
æjihh það er ekki miklu að segja frá, eins og þið vitið eru jólin að koma og ég hlakka til að knúsa alla heima á íslandi
Kveðja,
Eyrún