Archive for júlí, 2006

Grillin glamra

Sunnudagur, júlí 9th, 2006

Bara klukkutími eftir og þá fæ ég grillmat..mmmm…er alveg að verða búin að vinna.
Kvöldið er svo hugsaði í pottferð og sjónvarpsgláp. Ég hlakka til.

Veriði hress
Eyrún

Ísland farsælda frón

Laugardagur, júlí 8th, 2006

Er komin heim. Það hafðist á endanum þó að ég hafi verið orðin efins á tíma. Við lögðum af stað frá Kupkagasse um 5 um morguninn á fimmtudeginum og komum heim í Eyrarlandsveginn um 2 um nóttina eða 4 á okkar tíma. Var alveg að missa þolinmæðina á tímabili á Kastrup þegar ég var búin að reyna eftir bestu getu að sofna á ömurlegum stólum. Svo náði flugkallinn ekkert að lenda á Akureyri. Sussubía.

En ég er komin heim í heiðardalinn. Það er bara ekki hægt að lýsa því hvað mér finnst það vera notalegt. Að vísu byrjaði ég að vinna kl hálf 9 á föstudagsmorguninn og er að vinna alla helgina. Verð að vinna á Slysó og Lyfjadeildinni í sumar þannig að ég fæ slatta af vinnu. Verð að vinna einhverjar helgar líka en fríhelgarnar ætla ég að reyna að nota sem best. Svo verðum við Jón nú að fara að plana eitthvað þessa tónleika sem við ætlum að halda.

Annars þarf maður að fara að koma sér í að upplifa íslensku stemminguna og borða og drekka allt sem maður hefur saknað.

Eyrún

Partypeople

Mánudagur, júlí 3rd, 2006

Laugardagskvöldið var hresst. Við Lalli héldum smá partý fyrir hresst fólk og allir voru hressir. Það var óhemju mikið af bjór drukkið og smá gin og tónik og líka caipi. Ölvun var mikil en allir rosalega glaðir. Við fórum að vísu aðeins of seint út því það var bara svo rosalega góð stemmning hjá okkur. Fórum eins og góðum íslendingum sæmir á karókíbar enn einu sinni og stóðum okkur með prýði. Við enduðum kvöldið á Karlsplatz með rónunum að bíða eftir að lestirnar færu að ganga aftur því ég nennti sko ekki að labba heim. Það var líka gaman, Lalli splæsti í einn mythos og kebap og ég fór með gamanmál. Var alveg óhemju hress og með algjöran svefngalsa. Hef seint skemmt mér svona vel allt kvöldið. Krakkar takk fyrir að koma í partý til okkar og takk fyrir kvöldið. Þið eruð frábær.

Það er gaman að vera að fara og leiðinlegt. Hef kynnst svo mörgum frábærum krökkum hérna og sérstaklega upp á síðkastið. Hlakka rosalega til að koma aftur í haust og kynnast þessum krökkum ennþá betur. Svo verður bara svo gott að koma aftur og þekkja allt og vera komin alveg inní námið og borgina. Wunderbar.

Bara 3 og 1/2 dagur.

Eyrún