Það er ekki neitt rosalega margt búið að gerast síðan seinast. Það er bara búið að vera heitt og það er alveg fáránlegt að reyna að læra eða gera eitthvað af viti í þessum hita. Ég fúnkera barasta alls ekki og er greinilega íslendingur í húð og hár. Ég hlakka mjög til að koma heim í kuldann og geta bara klætt á mig hitann. Þetta er líka svo praktískt því maður getur bara notað sömu fötin, sleppir bara peysunni og gammó yfir sumartímann.
En nóg af tuði, ég er búin að taka eitt próf og á þrjú eftir. Svo verður bara gott að fá smá frí frá skólanum, er alveg farin að þrá frí og smá breytingu. Enda “á” maður að vera löngu kominn í frí, er ekki enn orðinn vön þessu tempói hérna. En skólinn klárast í næstu viku og ætlum við Lalli að nota síðustu dagana vel og hanga í sundi og borða góðann mat sem við fáum ekki heima. Það eru nokkrir íslendingar svo að taka próf inn í skólann í ár, þar á meðal hún Lilja mín. Ég er þegar búin að hitta tvær stelpur, þar á meðal Rannveigu sem ég var með í Lundarskóla. Það var gaman.
Svo var nú 17. júní um seinustu helgi og hittum við Íslendingana sem var eins og alltaf mjög gaman. Vorum alveg hress á Heurigen frá 3 til að verða 11 um kvöldið og kíktum svo nokkur í karíókí og brilleruðum alveg. En þar sem skólinn er svona langt fram á sumar hérna þá komst ég auðvitað ekki á 16. júbíleringuna, sem mér fannst rosalega leiðinlegt. Svo voru margar vinkonur mínar líka að útskrifast og ekki gat ég fagnað með þeim. En ekki örvænta, þið fáið eitthvað fallegt þegar ég kem til baka:)
Svo var Bush í Vínarborg í dag og við Lalli og Jón vorum rosa hress og fórum í mótmælagöngu. Það var gaman og skrítið, því það er alltaf líka svo skrítið fólk í svona göngum, eins og stríplíngarnir sem við sáum. En það var bara hressandi, er það ekki?
Ég kem bráðum heim…
Eyrún