Archive for maí, 2006

Frí og kosningar

Sunnudagur, maí 28th, 2006

ég og lalli 

Ég er ekki duglegur bloggari.

Annars hef ég það gott, nema að ég er með heimþrá. Vaknaði með heimþrá á föstudaginn held ég. Það væri gott ef maður gæti bara skroppið heim eins og maður vildi, og það tæki bara 2 klukkutíma. Það er hæfilega langur tími, ekki of stutt þá væri það ekkert sérstakt að koma heim, og ekki of lengi því þá er það ekkert skrepp.

Það verður gaman fyrstu dagana þegar við erum komin heim, því þá er allt svo sérstakt. Maður þarf að gera allt þetta skemmtilega aftur sem maður er búinn að sakna svo. Ég ætla að fara í göngutúr með Skugga besta á Gáseyri um kl 11 að kvöldi. Vera úti í fjörunni, fá sjávarloftið beint í æð og horfa á sólina enn á lofti og ef ég er heppin þá get ég kannski séð hana setjast. Séð fallegu litina sem hún gerir á fjörðinn og himininn. Svo ætla ég líka að fara í göngutúr í Kjarna og fá mér svo Brynjuís á eftir. Æjæjæjj ég ætla að gera svo marga hluti í sumar, ég vona bara að ég geri þá.

Ég er eins og spælt egg í dag. Borðaði tvær falafelpítur í dag, algjör hámari. Svo sofnaði ég yfir sjónvarpinu, sem ég er næstum búin að gera á hverjum einasta degi í fríinu okkar. Núna erum við bráðum að fara að borða, svo held ég að við horfum nú bara á sjónvarpið í kvöld. Við fórum á vídjóleigu í gær til að eiga spólur fyrir kvöldið þar sem það er lokað á sunnudögum eins og allt annað. Við tókum Broken Flowers með Bill Murray og svo Collateral með Tom Cruise. Ég sofnaði yfir Broken Flowers svo ég get lítið sagt um hana en við erum búin að sjá Collateral og hún er góð.

lalliSvo vorum við rosalega spennt yfir kosningasjónvarpinu í gær, að vísu kíktum við áður á pubbinn hérna niðri í húsinu okkar til að drepa tímann þangað til sjónvarpið byrjaði. Við vorum aðeins of lengi og ég var orðin ansi hress þegar við komum okkur svo upp til að horfa á netinu. Ég nennti nú ekki að vaka eins lengi og Lalli sem vakti til að verða fimm. Ég steinsofnaði uppí rúmi. En það verður fróðlegt að sjá hvernig þetta endar á Akureyri, hverjir enda í meirihluta og hver verður bæjarstjóri.

Þessir frídagar eru hinsvegar búinir að vera fljótir að líða og ég get ekki alveg annað sagt en að ég nenni eiginlega ekkert rosalega mikið í skólann á morgun. Við erum búin að hafa það gott í hjólatúrum og skemmtilegheitum með vinum. Áttum mjög súrt kvöld með Jóni, Sigga, Bryndísi og Gilla á miðvikudagskvöldið og er eiginlega ekkert hægt að segja meira um það.

Svo koma Hanna og krakkarnir til okkar á morgun. Við hlökkum til.

Eyrún

p.s var að setja nýjar myndir inn á myndasíðuna okkar

Hjól, Krems og Júróvísjón

Þriðjudagur, maí 16th, 2006

ég og hljólÉg og Lalli keyptum okkur hjól í dag. Þau eru ekkert smá flott og best og voru barasta ekkert svo dýr miðað við að við keyptum þau alveg ný með bögglaberara, standara, ljósum og öllum græjum. Ég fékk líka svona dömuhjól eins og mig langaði svo í og fékk líka körfu til að setja framan á það. Ég er barasta alveg í skýjunum núna, en samt voðalega þreytt í löppunum og rassinum.

Við hjóluðum heim þegar við vorum búin að ná í hjólin, fórum út og keyptum okkur smá hádegismat. Svo var lagt strax af stað aftur, allar græjur gerðar klárar, hjálmar, lásar og karfan mín og haldið út. Það er alveg svolítið flókið að hjóla hérna ef maður þarf að hjóla á svona litum-stórum götum sem eru með strassenbahn og svoleiðis. Því maður má náttla ekkert hjóla á gangstéttinni. Þá er maður stundum fyrir og veit ekki alveg hvort að það sé einstefna og allskonar. En við náðum að koma okkur á hringinn og hjóluðum og hjóluðum eins og brjálæðingar, þar er sko sér hjólastígur og ljós fyrir hjólin og svoleiðis sem er mjög þægilegt. Við hjóluðum að vísu aðeins of langt og villtumst aðeins en það reddaðist á endanum. Á heimleiðinni eftir um klukkutíma hjólogspól komum við við í búðinni okkar og keyptum inn fyrir vikuna, hjóluðum svo með það á bakinu heim. Úff, þetta tók alveg vel á og núna er ég þægilega þreytt. Að vísu átti ég samt að vera í skólanum í allann dag, en þegar veðrið er svona gott og maður er nýbúinn að fá splunkunýtt hjól þá verður maður nú að fá að prófa, er það ekki?

hestarAnnars erum við búin að vera nokkuð hress bara, fórum á laugardaginn til Krems á fínann hestabúgarð sem er með 70 íslenskum hestum. Þangað fór íslendingafélagið saman og auðvitað var vel drukkið og sungið, enduðum meira að segja á karoke bar og fórum ekki heim fyrr en um 2 um nóttina. Það er nú ekkert svo seint en við vorum búin að vera í stanslausu stuði síðan um 8 um morguninn þannig að við vorum orðin nokkuð þreytt. En þetta var alveg æðislegur dagur og skemmtilegt að nýta hann með svona skemmtilegu fólki.

Við erum farin að hlakka rosalega mikið til júróvísjón, erum að vísu ekki búin að finna undankeppnina á neinni stöð hérna, en við höldum enn í vonina. Það væri alveg ömurlegt að við getum ekki horft á hana. Þá verður Silvía bara að standa sig og komast í úrslitin. Hvað haldið þið? kemst hún áfram? Ég er ekki alveg viss sko, ég vona það en fólk kannski fattar ekki alveg djókinn á bak við þetta, eða finnst þetta barasta ekkert fyndið. Æji maður verður bara að bíða og sjá.

Svo fer bara að styttast í sumar og heimkomu, það verður gott að koma heim en ég ætla líka að njóta þessa tíma sem við höfum hérna alveg í botn því það er svo gott að vera hér í Vín. Hanna og krakkarnir eru líka að koma í heimsókn til okkar bráðum. Það verður ekkert smá gaman.

Jæja segi þetta gott í bili

Eyrún

Jahrgangskonzert og Afmæli

Fimmtudagur, maí 4th, 2006

t  nleikar

Tónleikarnir/prófið í söngnum fyrir þetta ár var núna á þriðjudaginn. Hér er þetta nebbla svoleiðis að hver árgangur er með tónleika á sumarönninni þar sem hver syngur eina aríu og eitt ljóð. Allir prófessorarnir mæta og hlusta og svo eftir tónleikana tala þeir saman og ræða stöðuna hjá hverjum og einum. Svo eftir 2 ár er fyrsta diplómaprófið sem er þá alvöru “próf” og svo líka eftir 4 ár.

(meira …)