Afmæli og uppskriftir

Mamma og PabbiÍ dag á hann pabbi besti afmæli, hipp hipp húrra. Til lukku og hafðu það sem allra best í dag og njóttu afmælisgjafarinnar vel í sumar.

Við hjónaleysin erum búin að taka saman nokkrar af uppskriftunum hans Lalla og setja þær hér inn á vefinn. Í kvöld gerði Lalli alveg dýrindis gúllash sem smakkaðist alveg ofboðslega vel. Ég mæli eindregið með því. En frá kokkinum fylgja þau skilaboð að uppskriftirnar eigi aðeins að nota til hliðsjónar því að hver fylgir eiginlega alltaf alveg uppskriftinni ég bara spyr?

Segið okkur endilega frá ef þið prófið, hvað ykkur fannst og hvað má bæta.

En njótið vel og lengi.

2 Responses to “Afmæli og uppskriftir”

  1. Hanna Says:

    Hæ hæ, vá þetta er orðið ekkert smá flott hjá þér :)
    Og ég get tvímælalaust mælt með uppskriftunum, sniðug hugmynd að setja þær hér inn!
    K&K Hanna og co.

  2. Skotta Says:

    Vá hvað nýja síðan þín er flott! Til hamingju með hann pabba þinn, sæta, og haltu áfram að vera myndarleg og syngjandi húsmóðir.

Leave a Reply