Archive for apríl, 2006

Afmæli og uppskriftir

Sunnudagur, apríl 30th, 2006

Mamma og PabbiÍ dag á hann pabbi besti afmæli, hipp hipp húrra. Til lukku og hafðu það sem allra best í dag og njóttu afmælisgjafarinnar vel í sumar.

Við hjónaleysin erum búin að taka saman nokkrar af uppskriftunum hans Lalla og setja þær hér inn á vefinn. Í kvöld gerði Lalli alveg dýrindis gúllash sem smakkaðist alveg ofboðslega vel. Ég mæli eindregið með því. En frá kokkinum fylgja þau skilaboð að uppskriftirnar eigi aðeins að nota til hliðsjónar því að hver fylgir eiginlega alltaf alveg uppskriftinni ég bara spyr?

Segið okkur endilega frá ef þið prófið, hvað ykkur fannst og hvað má bæta.

En njótið vel og lengi.

Rigning og Vídjó

Sunnudagur, apríl 30th, 2006

PICT1712Í dag var ekkert svo spennandi veður í Vín, þannig að ég og Lalli höfðum það bara gott heima. Ég vaknaði ekki fyrr en um hádegi og fékk mér kókópöffs í morgunmat..mmm.

En við erum nýbúin að finna geggjaða vídjóleigu hérna rétt hjá okkur. Þar er hægt að leigja allt á milli himins og jarðar, og í gærkvöldi leigðum við Madagaskar og Brokeback Mountain. Þær eru báðar alveg ótrúlega góðar en auðvitað mjööög ólíkar. Við náðum hinsvegar ekki að horfa á báðar í gærkvöldi þannig að við horfðum á Brokeback í dag. Meira að segja tvisvar því hún er svo góð. Hún er samt svo skrítin en hún skilur svo mikið eftir sig. En þetta var alveg rosalega notalegur dagur.

(meira …)

Tölvunörd

Miðvikudagur, apríl 26th, 2006

Ég er komin með vöðvabólgu því ég er búin að sitja svo lengi við tölvuna og fikta. Og ég get auðvitað ekki slitið mig frá þessu því þetta er svooo gaman. Er að bíða núna eftir því að myndasíðuforritið öpplódist á serverinn (ohh ég er svo mikið nördípörd).

Annars er búið að vera alveg rosalega gott veður hérna í Vín, alveg eins og bestustu sumardagarnir heima, og það er bara vor hérna núna. Úff hvernig á þetta eftir að vera þegar sumarið kemur svo.

Ég fór í píanótíma í dag og Alice kom ekki í sinn tíma þannig að minn tími varð að tvöföldum tíma sem er einn og hálfur tími. Það er alveg rosalega gaman í píanótímunum því að Schmidtmayer veit svo rosalega mikið um tónlist og eiginlega allt sem við kemur henni og maður lærir alveg gígantískt mikið í einum tíma. En hausinn minn var alveg að springa af of miklum upplýsingum í dag. Svo fór ég líka í söngtíma sem var mjög góður og fór lika í Mudra (Musikdramatische Grundausbildung) sem er leiðinlegasti tíminn og er kenndur af manni sem ég fíla barasta ekki. En það var samt furðulegt í dag í tímanum því að hann sagði okkur að honum hefði verið sagt upp og myndi kenna út önnina en ekkert meira. Ég er svo búin að ergja mig á þessum tímum og þessum manni því ég er ekki alveg að fíla þennan tíma og mér finnst eins og hann sé ekki alveg heill í því sem hann er að kenna. Æji ég veit ekki, það allavegana passar ekki eitthvað hjá þessum manni en í dag vorkenndi ég honum eiginlega og sá eftir því að hafa fundið tímarnir svona leiðinlegir.

En þið megið endilega segja mér hvernig ykkur lýst á nýju síðuna.

Eyrún

fyrsta bloggið á “nýrri” síðu

Þriðjudagur, apríl 25th, 2006

ég er búin að standa í stórræðum og hef hér með ákveðið að nota svona fínt forrit fyrir síðuna mína. Akkúrat núna er ég að vinna í þessu öllu saman og mun það örugglega taka einhvern tíma að betrumbæta útlitið og gera það nær því eins og það var á hinni síðunni. En þetta er allt mikið mikið betra.

skrifa fljótt aftur