Archive for mars, 2006

Flutningar og fleira

Fimmtudagur, mars 30th, 2006

PICT1515Við erum flutt. En ekki langt því að við fluttum bara í betri íbúð í Vín.

Það er margt búið að gerast á seinustu dögum, Flutningarnir gengu eins og í sögu, en ég hafði miklar áhyggjur af þessu hvernig þetta myndi nú reddast. Það er skrítið að vera hérna tvö þar sem við höfum enga fjölskyldu til að hjálpa okkur. Það að flytja hefði nú ekki verið neitt mál heima á Akureyri því þá hefði pabbi bara hringt í hann “Dodda” og hann hefði bara skroppið við til að flytja þvottavélina okkar. Við hefðum líka fengið öll húsgögnin hjá fjölskyldunum, gamla sófa og borð þannig að það hefði verið ódýrara. En hér gengur það ekkert, við vissum lítið sem ekkert hvernig við ættum að gera þetta, redda bíl, kaupa húsgögn (Guði sé lof fyrir IKEA) og allir hinir smáhlutirnir sem okkur vantaði. En við gátum þetta allt sjálf, það er að segja skipulagninguna. Svo fengum við mikla hjálp hjá tveimur ungum og hraustum strákum, þeim Jóni og Gilla. Næstum öll húsgögnin voru komin saman um kvöldið.

(meira …)

Fréttir

Mánudagur, mars 13th, 2006

Ég er ekki búin að skrifa lengi. Hér kemur það sem hefur gerst á seinustu dögum og það sem er á döfinni

~ Við flytjum á laugardaginn 18. mars
~ Við erum búin að kaupa fullt í IKEA til að eiga eitthvað inn í nýju íbúðina okkar
~ Nýja íbúðin okkar er frábær, í gömlu húsi, notaleg, í betra hverfi og það besta er að seinustu leigendur hafa verið íslenskir söngvarar, þar á meðal hún Sigríður Aðalsteinsdóttir gamli söngkennarinn minn. Tilviljun?
~ Mamma og Pabbi Lalla koma í næstu viku í heimsókn
~ Fjölskyldan mín kemur um páskana í heimsókn.
~ Ég fæ ipodinn minn aftur í vikunni. Betra er seint en aldrei.
~ Ég og Jón ætlum að halda tónleika á Akureyri í sumar
~ Juliette verður frumsýnd 24. mars
~ Lalli er enn að bíða eftir svari frá háskólanum
~ Klassenabendið mitt er 6. Apríl
~ 1. Jahrgangskonzert er 2. maí
~ Er búin að ná mér í fullt af nýjum nótum á bókasöfnunum, þar á meðal Cosi, Hans og Grétu, Dido and Aeneas, Rakarann og fleira skemmtilegt. Ætla að fara aðeins að skoða:)

Það er margt í gangi í augnablikinu, mikið að gera í skólanum og svo erum við líka að flytja. Það verður notalegt þegar allt verður komið í fastar skoður aftur.

Hef lítið annað að segja, ég er þreytt

Gettu Betur

Fimmtudagur, mars 2nd, 2006

óléóléóléólé óléóléóléólé
ma hott hott hott vúú
ma hott hott hott vúú

þetta var nú aldeilis skemmtilegur endir á skemmtilegri keppni.
Annars voru tvær spuringar sem tengdust Vínarborg og við Lalli vorum með þær alveg á hreinu.
Hver veit ekki að höfuðstöðvar alþjóða kjarnorkumálastofnunarinnar eru í Vín og að María Theresa átti fullt af börnum og ein af þeim var María Antoinette sem var hálshöggvin í frönsku byltingunni..svona er ég vel að mér.

Annars er ég hress…allt er að fara á fullt með óperuna Juliette sem verður frumsýnd 24. mars. Ég er í kórnum. Það verður held ég mjög skemmtilegt en líka erfitt.

Hef lítið annað að segja í augnablikinu annað en áfram MA…