Hlakkidíhlakk
Þriðjudagur, febrúar 28th, 2006úffípúff
Loksins er febrúar að verða búinn. Mér finnst það hálf leiðinlegt akkúrat í augnablikinu en í alvörunni mun ég ekkert sakna hans. Á morgun kemur betri tíð með sól í heiði og skóla, kórvinnu og öðru skemmtilegu. Að vísu er aftur orðið kalt úti en ég hef neitað að fara aftur í úlpuna mína og nota vettlinga. Það kom gott veður og þá á það að halda áfram. Ég sætti mig ekki við svona.
Ég og Lalli erum töluvert pirruð útí Austurríki núna, nákvæmlega þjónustufólk hérna. Þið getið lesið betur um það á síðunni hans Lalla. Fólki finnst það ekkert þurfa að gefa manni upplýsingar um hvernig allt virkar hérna og finnst mjög gaman að hlægja og benda á mann þegar maður er óvart svo vitlaus að gera eitthvað vitlaust eða vita ekki nákvæmlega allt virkar. Jæja jæja…pirr pirr.
Annars hlakka ég mikið til þegar allir fara að koma í heimsókn til okkar. Mamma og Pabbi Lalla, Mamma mín og Pabbi plús tvær systur. Það eina sem vantar er Skugga bestavin og Felix en af heilsufarslegum ástæðum mega hvorugir koma með. Felix gæti fengið fuglaflensu og Skuggi þarf að fara í sóttkví eftirá.
Ég hlakka annars mikið til að fá vor og ég vona að það komi bráðlega. Ég hlakka líka til að upplifa alvöru sumar þar sem ég á heima. Vera að kafna úr hita í skólanum og geta setið úti í fallegum garið án þess að þurfa að vera með teppi. Annars finnst mér það líka alveg sjarmó.
bless kex og veriði hress
