Frí
Þriðjudagur, janúar 31st, 2006Við Lalli erum komin í frí, vúhú. Við erum á leiðinni til Þýskalands í heimsókn.
Heyrumst þegar við komum aftur.
Við Lalli erum komin í frí, vúhú. Við erum á leiðinni til Þýskalands í heimsókn.
Heyrumst þegar við komum aftur.
~Ég er þreytt, andlega. Það er verra en líkamlega. Ég veit svosem ekki afhverju, það er líka verra en að vita það.
~Ég er að fara í próf á morgun, ekki búin að læra nóg.
~Á föstudaginn fórum við Lalli í Badminton, ég vann.
~Í dag fórum við Lalli í Badminton, ég vann aftur.
~Ég bakaði vöfflur aftur í dag.
~Við fórum út á föstudagskvöldið á bar sem heitir Wunderbar, það var mjög skemmtilegt kvöld.
~Á laugardaginn vorum við þunn, keyptum okkur prentara og horfðum á Wetten dass og borðuðum pizzu.
~Ég plataði Lalla líka til að lita á mér hárið. Það er dökk brúnt.
~Við fórum Í bíó í kvöld með Jóni og Pétri.
~Ég hef ekkert meira að segja
Fyrsta prófið búið, fékk Gut og er bara nokkuð ánægð með það. Þar með er fyrsta prófið sem ég tek á þýsku búið, hihi. Annars hafa síðustu dagar mikið til snúist um að læra, skoða íbúðir á netinu og horfa á sjónvarpið.
Fór hinsvegar í píanó tíma í dag og fékk nýtt lag til að læra, preludium 1 eftir Bach. Jeijj. Það er meira að segja frægt. Og eftir smá tíma á ég eftir að geta spilað það. Úff ég hlakka til.
Hér í Vín er búið að vera rosalega kalt ein og annarsstaðar í Mið-Evrópu. Alla þessa viku hefur verið í kringum -15°C. Brrr, allt of kalt, en nýja Lobban sem ég fékk í jólagjöf kemur sér rosalega vel.
Á morgun fer ég í skriflegt próf í Musiktheori og hlustunarpróf í Solfeggio. Svo á Mánudaginn fer ég í píanóprófið fyrir Musiktheori og svo munnlegaprófið fyrir Solfeggio og þá er ég komin í FRÍ.
Svo eigum við Lalli 2. ára afmæli á miðvikudaginn. Víhí.
Þetta er búin að vera róleg helgi. Á föstudaginn fórum við Lalli og Jón í ræktina og gufu og svo heim í pizzu. Kíktum svo aðeins út á lífið og fórum í leiðinni í rosalega góðann göngutúr þannig að ég brenndi öllum bjórnum sem ég drakk ~ hihi.
Laugardagurinn var svo mjög fínn, ég og Lalli drusluðumst út í kringum tvö. Keyptum okkur Wayne’s World 1 og 2, vigt og rosalega flottann töfrasprota ~ víhí. Gerðum svo geggjaðann kjúkling í matinn og horfðum á Deutschland sucht den Superstar og Wayne’s world. Það var gott að vera heimakær.
Í dag var ég rosalega dugleg, ég bakaði vöfflur, þreif baðherbergið, skúraði alla íbúðina og lærði. Töfrasprotinn virkaði vel í deigið og rjómann. Svo eigum við líka alvöru rabbabarasultu sem gerði vöfflurnar himneskar ~ mmmm. Gerðum svo ennþá ljúffengara Lasanja (hvernig sem maður skrifar þetta, ég kann ekki mikið í ítölsku) og ég var svo að koma úr yndislegu baði.
~ Frábær helgi ~
Á fimmtudaginn fór ég í Söngtíma og átti bara að vera í hálftíma en fékk að vera í heilan klukkutíma sem var ótrúlega gaman. Það gekk ágætlega, er að læra ljóði núna sem ég þarf að æfa einn ákveðinn hlut í hverju ljóði. Í einu ljóðinu eru rosalega langar línur og ég er alltaf að kafna því ég á ekki nóg loft. Á föstudaginn fór ég svo í skólann og æfði mig og ég gat sungið allann frasann og get enn~ jeijjj
Gat líka sungið Non so piú í tímanum á fimmtudaginn ~ víhhí
~ Þetta eru búinir að vera ágætis dagar, vonandi verða næstu dagar eins ~
Dagurinn í dag er búinn að vera erfiður. Ég fór í skólann um 10 og kom ekki heim fyrr en hálf 7. Svo er ég búin að vera að læra í allt kvöld. Úff, ég er þreytt. Ég verð rosalega ánægð þegar prófin verða búin.
Ég er voðalega andlaus eitthvað, veit ekkert hvað ég á að segja. Ég skrifa alltaf um það sama, því lífið mitt snýst bara um skólann núna. Og ekki skemmtilegustu partana, það er að vísu mjög gaman það sem ég er að gera í söngtímum núna. Það er líka samt rosalega erfitt líka og eftir tímann í gær fannst mér ég vera hálf ómöguleg. Það er svo erfitt þegar maður fær alveg runu af hlutum sem mega betur fara. Það er auðvitað gott að fá gagnrýni en stundum er maður ekki alveg tilbúinn til að taka við henni rétt og þá fer maður bara beint í að hugsa illa um sjálfan sig. Úff. Ég bara vona að allt þetta erfiði sé til einhvers, þannig að ef ég verð einhverntímann búin að læra nóg til að geta staðið á eigin fótum að ég hafi þá eitthvað að gera og sé nógu góð til að komast áfram.
Langar til að verða góð..
Veihh loksins komin af stað aftur, þó að mér finnist það nú ekkert rosalega skemmtilegt. Ég var orðin nokkuð á eftir í Musiktheori og Solfeggio og fer í próf úr því eftir rúma viku, úffípúff. Þarf að vera alveg gígantískt dugleg að læra næstu daga. Ég var alveg að bugast í dag, hugsaði um að hætta þessu veseni bara.
Mamma á afmæli í dag, Til hamingju með afmælið elsku mamma mín.
Áðan gerði ég jóga, það var alveg rosalega gott. Ég er að hugsa um að reyna að halda því bara áfram reglulega. Langar líka alveg rosaleg í DVD diskinn með Guðjóni Bergmann. Ahh ætli maður láti ekki duga það sem ég á til að byrja með. En þetta var alveg rosalega gott. Svo fann ég ekki langt í burtu frá okkur svona jógamiðstöð þar sem hægt er að prófa einn tíma. Ég er að hugsa um að fara strax og ég er búin með prófin þegar ég hef tíma til. Þangað til geri ég bara jóga heima.
Spitzer bað mig um að vera með í Juliette sem óperudeildin er að fara að segja upp í mars. En það vantaði í kórinn sem eru að vísu aðeins 6 Dömur. En ég hlakka bara til, held að þetta verði gaman. Þarf bara að muna að ná í nóturnar á morgun.
Jæja best að fara uppí rúm og lesa, við Lalli erum búin að ákveða að fara fyrr að sofa og vakna fyrr…úff ég veit ekki hvort það tekst. Vonandi
Sakna allra heima svolítið og gef öllum sem mér þykir vænt um hvar sem er í heiminum knús ef þeir vilja.
ég er búin að vera að baxa við síðuna mína í allt kvöld, líka búin að reyna að fatta eitthvað hvernig ég á að nota þetta forrit. Ef einhver kann á Dreamweaver og langar að kenna mér á það má hann endilega kommenta. Ég veit ekki hvort að mér tekst einhverntímann að læra á það, mig langar bara svo að geta gert síðuna aðeins meira svona kúl. Kannski tekst það einhverntímann en núna verð ég að fara að sofa.
Fyrst ætla ég samt að segja aðeins frá deginum, sem var nú ekki viðburðarríkur. Ég vaknaði um 10, drattaðist fram úr um 11 en ekki lengra en í sófann og stóð uppúr honum um hálf 12. Ég og Lalli fórum í göngutúr, stuttan því ég var hálf þreytt. Fór svo að læra og horfa á sjónvarpið. Nennti því ekki lengur um kvöldmatarleytið og hef verið að vinna í þessu síðan. Ég er orðin þreytt núna og ætla að leggjast upp í rúm og lesa góðar bækur.
Ég er búin að vera hálf skrítin í dag, lítið búin að fara út og svona. Ætli sunnudagar séu bara svoleiðis. Ég hlakka og kvíði fyrir að fara í skólann á morgun. Það verður æðislegt að fara í Söngtíma en ég er hrædd við Musiktheori og Solfeggio því að það er svo langt síðan ég mætti seinast. Svo fer ég bráðum í próf og ég er alveg að pissa á mig úr hræðslu yfir þeim. Jæja ætla nú ekki að fara að hafa áhyggjur af þeim núna. hvernig var þetta nú aftur: Ég læt hverjum degi nægja sína þjáningu.
Ég sakna Íslands, mér fannst rosalega notalegt að vera heima um jólin. Einlega bara útaf öllu fólkinu mínu sem ég náði að eyða miklum tíma með. Svo er það líka bara svo auðvelt, þar kann maður á allt. Mér finnst það eitthvað svo þægilegt núna. Svo á morgun finnst mér kannski æðislegt að búa hér og upplifa nýja hluti á hverjum degi. Kannski. En núna á ég ekki eftir að koma heim í um 6 mánuði. Það finnst mér erfitt að hugsa um. Ég ætla þá bara að reyna að hugsa sem minnst um það.
Langar að knúsa alla fjölskylduna mína heima, væri svo til í það. Ef þið væruð hjá mér núna eða ég hjá ykkur myndi ég pottþétt knúsa ykkur. Ohh..ég er svo væmin.
P.S hvernig finnst ykkur nýja lúkkið?
í dag vöknuðum við seint, alltof seint en fórum samt út að labba. Lalli er byrjaður að gera rosalega góða pizzu og ég er að læra/blogga. Held að ég ætli nú bara að vera heima í kvöld. Vorum rosalega róleg í gær til kl 10, kíktum þá aðeins út og hittum Jón og Pétur. Þeir voru alveg rosalega hressir.
Ég hlakka svo til þegar prófin eru búin og ég fæ að fara í frí í heilan mánuð. Þá ætla ég svo að hafa það gott: fara í óperuna, út að labba með ipodinn minn, skoða góða tónlist, fara í ræktina, lesa góðar bækur, gera jóga, fara í badminton með Lalla og fleira og fleira skemmtilegt. Mmmm hlakka til:)
Ég tók þetta af síðunni hennar Margrétar systur, ég skal gera mitt besta við að svara öllum en ég held að ég sé alveg hrikalega léleg í þessu. Ég er svo gleymin.
Ef að þið kvittið í comment, þá mun ég:
1. Segja þér eitthvað handahófskennt um þig
2. Segja þér hvaða lag/mynd minnir mig á þig
3. Segja þér hvaða bragð minnir mig á þig
4. Segja þér eitthvað sem meikar bara sens fyrir mig og þig
5. Segja þér fyrstu ljósu minninguna mína af þér
6. Segja þér á hvaða dýr þú minnir mig
7. Spyrja þig að einhverju sem ég hef velt lengi fyrir mér um þig
Núna erum ég og Lalli komin aftur til Vínar. Ég náði mér að vísu í hettusótt áður en við fórum þannig að ég er búin að vera hálf lasin síðustu daga og ekkert búin að fara í skólann. Hettusóttinni fylgja alveg gríðarlegar eitlabólgur, allavegana hjá mér, og ég var voðalega lítið búin að geta borðað síðustu daga. Ég hélt að ég væri búin að ná mér og ætlaði í skólann í dag þá vaknaði ég í morgun með hrikalega bólgin munnvatnskirtill þannig að ég frestaði snarlega för minni í skólann fram yfir helgi eftir að mamma sagði að ég ætti að vera heima. Það er alveg hrikalega furðulegt að vera lasin og hafa enga mömmu til að hugsa um mann og segja hvað maður eigi að gera.
Jólafríið var alveg yndislegt. Það var ekkert betra en að hanga heima hjá mömmu og pabba, horfa á sjónvarpið í lazy-boy sófanum þeirra með Lalla, Láru og Margréti. Horfðum á Nonna og Manna í tilefni þess að Nonni er orðinn rosalegur óperusöngvari:) Svo var jafn yndislegt að vera heima hjá Lalla með öllum krökkunum, stórum sem litlum, og hafa það gott og spjalla. Það var líka gott að hitta allar stelpurnar, þótt að ég hafi ekki hitt sumar eins mikið og mig langaði.
Ég tók rosalega mikið eftir því þegar ég kom aftur til Akureyrar hvað þetta er virkilega lítill bær. Hann er frábær en samt alveg rosalega lítill. Mér líkar vel að vera hér í stórborginni, þá fellur maður inn í fjöldann og má vera alveg eins og maður er í alvörunni. Það gerir engin grín af manni eða horfir asnalega á mann. Allir eru bara að hugsa um sig.
Sjálf Jólin voru góð. Ég, Lára, Lalli og Margrét fórum í messu og hlustuðum á Pabba syngja. Mamma var á kvöldvakt þannig að við hittum hana ekki fyrr en kl 12. Það var skrítið að hafa enga mömmu við jólaborðið en þetta er víst sem maður þarf að upplifa þegar mamma manns vinnur vaktavinnu. Rjúpurnar voru alveg sérstaklega góðar, allt var bra einu orði sagt frábært. Fékk mikið af fallegum gjöfum til dæmis frábæra ullarpeysu sem mamma prjónaði handa mér, 3 óperur, 3 góðar bækur, ekta silfur hníf, gaffal og skeið og allskonar fallega hluti.
Áramótin voru líka æðisleg, þá vorum við heima hjá Lalla og fengum frábæran Kalkún og sprengdum fullt af sprengjum. Árið 2005 var barasta ágætisár, held að ég hafi lært nokkuð margt á þessu ári, batnandi manni er best að lifa er það ekki?
jæja þá er ég búin að skrifa um jólin og fríið og get byrjað aftur að skrifa um líðandi stund. Skrifa fljótt aftur
Eyrún