Myndaalbúm

desember 9th, 2008

Núna er ég búin að vera að tölvunördast aðeins, sá hvað Helga og Humi voru með flottar græjur í kringum myndirnar sínar af Snæfríði Eddu og varð öfundsjúk. Náði að mastera þessa tækni hjá þeim og er núna búin að herma. Vonandi verðið þið jafn ánægð og moi. En nú þarf ég að fara að sofa í hausinn á mér.

Fyrsta vikan

61 Photos

Önnur Vikan

14 Photos

Þriðja Vikan

17 Photos

1. mánaða

15 Photos

 

2.mánaða stelpa

desember 6th, 2008

26 Nov 2008 1254 edited 1Já stelpan okkar er sko orðin stór, varð 2. mánaða á fimmtudaginn og svo fæddist gíraffastelpan vinkona mín hún Snæfríður Edda bara daginn eftir þannig að það er næstum því upp á dag 2 mánuðir á milli okkar. Við hlökkum alveg ofsalega mikið til þess að fá að knúsa hana.

Við fórum á “afmælisdaginn” minn til læknisins í mjaðmasónar, þeir hérna eru voðalega stressaðir á mjöðmunum, eitthvað sem báðar ömmurnar kannast ekki við að heiman. En eins og við var að búast þá var allt í lagi með mjaðmirnar hennar Ásthildar. Svo var hún mæld og vigtuð og er orðin 57,5 cm og 4,67 kg. Rosalega dugleg stelpa.

Núna er hún líka orðin dugleg í að hreyfa sig, farin að sparka útí loftið og hreyfa hendurnar upp og niður, rosa hratt. Það virðirst líka vera mjög gaman og hjalar hún út í eitt á meðan, algjört krútt. Við Lalli getum ekki hætt að horfa á hana á meðan og fá að fylgjast með hvað hún þroskast hratt. Við fórum saman í bað í vikunni og það var sérstaklega gaman að sprikla í vatninu, hún gusaði og gusaði þannig að Lalli varð bara hálfblautur að reyna að taka upp myndband af herlegheitunum :)

Svo er stelpan orðin tilbúin í ferðalagið, komin með Neyðarpassa og allt svo að Bretarnir hleypi okkur nú heim til Íslands. Við þurftum að fara með hana í passamyndatöku og allt, kallinn var ekki alveg nógu ánægður með það að þurfa að taka mynd af svona lítilli stelpu, því hendurnar mega víst ekki sjást á myndinni af þeim sem heldur höfðinu uppi á svona litlu kríli, það er nú alveg sjálfsagt að þau geti nú bara haldið hausnum uppi sjálf…er það ekki? Solltið bilað.

Bara 10 dagar í heimkomu…

1. mánaða myndir

desember 3rd, 2008

Loksins komust myndir inn…ég skal segja ykkur það að eins yndislegt og það er að eyða tíma með henni Ásthildi minni þá gerir maður nú lítið annað þessa dagana. Þess vegna verðið þið víst að fyrirgefa mér biðina. En ég náði nokkrum inn núna.

Annars bíðum við spenntust eftir litla gíraffanum sem er væntanlegur hvenær sem er.

Innilegar samúðarkveðjur til ykkar allra sem voruð svo heppin að fá að kynnast þessum strák. Ég mun alltaf sakna þín og þú átt að eilífu pláss í hjartanu mínu sponsið mitt.

Eyrún

Varúð! Lalli er að klofna

nóvember 20th, 2008

Sá sem les þennan pistil gerir það á eigin ábyrgð, hann inniheldur lýsingar sem gætu fara fyrir brjóstið á fólk sem heldur að hagkerfi (hér eftir nefnt kerfið) sé skapað af mönnum vildu samfélaginu vel, það er skapa af mönnum sem með því vildu koma sínum hagsmunum að.

—–

Ég á eitthvað erfitt með að einbeita mér þessa dagana, það versta er að það er ekki bara litla pabbarósin sem að stelur athygli pabba síns, heldur hugsa ég of mikið um kreppuna, kapitalisma, úrlausnir, vandamál, ómálefnalegt tuð, gróusögur, ónýt bankakerfi, ónýt myntkerfi - því miður þá skiljið þið hvert ég er að fara. Það er svo sem ekkert nýtt að ég hugsi um það sem er í gangi í heiminum, stjórnmál, mannlegt samfélag - heimsmálin. Það væri nú óeðlilegt að vera í stjórnmálafræðinámi án þess að hafa áhuga á umhverfinu sínu.

Umræðan á Íslandi finnst mér oft vera á svolítið lágu plani, fáir koma með hugmyndir og þeir sem koma með hugmyndir eru í raun og veru bara búnir að laga sínar hugmyndir um úrlausn kreppunnar að þeim hugmyndum sem þeir áttu fyrir krepppu. Sjálfstæðisfokkurinn vill starta kerfinu upp á nýtt, þessu sama sem kom okkur um koll, VG leggur til að við einangrum okkur og varar sérstaklega ESB og gjaldmiðilinum Evru, Framsókn reynir að eyðileggja sig og gengur bara nokkuð vel - enda er það ágætis lausn við ýmsum vanda þ.e. losna við Framsókn, Frjálslyndir þaga enda flytja útlendingar umvörpum úr landi og kreppan er ekki í sjávarútveginum. Hvað gerir Samfylkingin? Reynir að gera málamiðlanir, fara bil beggja og svo fara í ESB. Þar liggur klofningurinn í mér, sem situr í vegi fyrir því að ég vinni ritgerðir og nái fókus. Eigum við litla Ísland annað val en að gera málamiðlun, fá lán og reyna bara að gera betur í þetta skiptið? Vonandi hafa sem flestir sem þetta lesa séð Zeitgeist bæði fyrri og seinni myndina, kerfið sem að stjórnar þessu heimi er meingallað, ósanngjarnt og ósiðlegt. Ein besta og frumlegasta lausnin á vandamálinu væri án vafa að gerast tilraunasamfélag fyrir “The Venus Project”, en það er varla raunhæfur möguleiki, af ýmsum ástæðum eins og t.d. þeirri að ég ræð ekki einn og svo því að þeir sem ráða og eiga mikla peninga og þar af leiðandi hagsmuni að gæta í því samfélagi sem við nú búum í væru varla til í að fórna því bara til að leyfa hinum að líða betur - ef þeir vildu öllum vel væru þeir ekki svona valdamiklir og ríkir og fyrir löngu búnir að koma til móts við aðra. Samkeppni var lykilorðið og ef við pössum okkur ekki þá verður það ásamt græðgi aftur leiðarljós íslensk samfélags.

Ég er sem sagt að klofna, í mér eru tveir helmingar, þið ráðið hvorn þeirra þið teljið betri helminginn. Annar helmingur minn, þetta er líklega hvatvísi hluti minn, vill henda öllu því sem áður hefur verið, taka upp kerfi þar sem samvinna er leiðarljósið og raunverulegt jafnrétti, frelsi og systkinalag ræður ríkjum. Þessi helmingur vill róttæka breytingu, ekki bara lán eða einangrun í sama kerfi. Heldur umpólun, burtu með kerfið eins og það leggur sig. Hinn helmingurinn, e.t.v. sá leiðinlegri og jafnvel skynsamari, vill vegna þess að við erum bara peð stödd mitt í kerfi sem við ein getum ekki umturnað þó við myndum dissa það og búa til samfélag án gjaldmiðils þar sem fólk gerir hlutina vegna þess það vill gera þá en ekki þarf að gera þá. Vegna þess að við getum ekki ein og sér breytt lífi allra þeirra sem lifa í heiminum er skynsamlegra að vinna með þeim í að bæta þetta meingallaða kerfi sem sumir virðast halda að sé náttúrulögmál. Við vinnum í þessu meingallaðakerfi en breytum því innan frá, og vinnum saman með þeim sem þar eru og eru okkur sammála - þeir eru fleiri en margir vilja halda. Það er nefnilega svo sorglegt að meirihluti fólks fellur undir skilgreininguna sem almúgi: eignalaus og valdalaus vegna þess að fjármálakerfið endar alltaf þannig að örfáir græða meðan allir hinir aumingarnir tapa. Hversu margar kreppur það tekur fyrir fólk að skilja þetta er óvíst, en sem hluti af Evrópu erum við betur varin fyrir innlendum siðspilltum eiginhagsmunaseggjum og í fjöldanum er betra að vinna saman gegn kerfinu sem að kom okkur í þessa stöðu.

Það að umbylta Íslandi í flýti núna breytir heiminum að svo litlu leyti að það hefði ekki áhrif á heildarmyndina, en æ fleiri sjá nú hvernig veruleikinn er; lýðræðislega kjörnir fulltrúar fólksins reyna nú að bjarga risafyrirtækjum eins og bílaframleiðendum Þýskalands eða Simens hér í Austurríki. Bankar fá milljarða styrki í samfélögum þar sem ríkið hefur undanfarin ár dregið sig úr mörgum af sínum höfuðskyldum.

 Á meðan þurfum við að undirbúa okkur, vita hvað við viljum og vita að sama í hvaða dilkum sem við erum, hvort þeir heiti karl eða kona, Samfylking eða VG eða í þjóðernis og þjóðlanda dilka eins og Ísland, Austuríki eða Indland. Þá höfum við öll sömu vandamál og viljum öll það sama, réttlátt samfélag.

Hvunndagurinn wieder

nóvember 12th, 2008

Loksins er ég búin að koma mér í að skrifa smá inn hérna. Við erum búin að vera alveg á fullu með seinustu daga en mest bara í því að hafa það gott. Mamma og Margrét eru komnar og farnar en það var alveg yndislegt að hafa þær hjá okkur. Amman tók sig vel út með fyrsta barnabarnið og fannst Ásthildi alveg ofsalega gott að kúra hjá henni, eins og öllum hinum.

Ég vona að þið séuð ekki búin að gefast upp á okkur en ég tafðist líka svo því við erum búin að taka svo margar myndir af krúsinni að það var svo erfitt að velja og vinna myndirnar. Við fjölskyldan fengum nefninlega snemmbúna jólagjöf sem var Canon 1000D myndavél eins og þessa

bild tcm83 528923 1

Þegar við sáum hvað Geiri tók flottar myndir af Ásthildi og hversu mikill munur var á myndunum þá fundum við þá lausn á “vandamálinu” og settum bara saman jólagjafapeningana okkar og afmælispeningana mína. Svo var akkúrat þessi myndavél á tilboði þannig að þetta smellpassaði í böddjettið. Okkur fannst nú hálf erfitt samt að kaupa okkur svona dýrann hlut í miðri kreppu en gátum huggað okkur við að vera búin með jólagjafapakkann handa okkur. Svo við vorum í rauninni að spara….hmm…eða hvað?

En ég er búin að ná að setja nokkrar myndir inn frá viku fjögur sem eru teknar á nýju vélina. Það eiga enn eftir að koma fleiri myndir inn í viku þrjú því þar setti ég svo fáar inn í flýti. Svo eru fullt af myndum enn í vélinni sem ég er ekki byrjuð að skoða einu sinni þannig að þið eigið gott í vændum í sárabót fyrir þessa löngu bið. Ég ætla ekki að lofa að láta ykkur ekki bíða svona lengi aftur því ég er ekki viss um að ég geti staðið við það en ég skal reyna mitt besta.

Við erum búin að panta flug heim og lendum í Keflavík kl 4 þann 16. des. Víhhí, ég kemst semsagt heim fyrir afmælið mitt. Við erum að pæla að fara ekki með hana í 3 flug sama daginn. Hanna frænka var búin að lofa okkur að gista hjá sér og erum við að pæla í að þiggja það góða boð. Fara svo norður fyrir 19. Jeijj ég er farin að hlakka til. Við eigum svo flug aftur til Vínar 12. jan þannig að við verðum alveg í góðann tíma heima og náum að knúsa alla mikið og fast.

 

29 Okt 2008 0777 edited 1Annars segjum við bara ofsalega gott, Ásthildur litla er alltaf jafn dugleg og góð. Hún gaf mömmu sinni stórt bros áðan sem bræddi hana alveg. Úff hvernig á maður eftir að geta verið “vond góður” við hana og sagt nei? Sem betur fer þarf ekki að láta reyna á það alveg strax. Svo er kreppan búin að hafa þau góðu áhrif á mig að ég bakaði tvöfalda uppskrift af pabbasnúðum í gær og gerði rice krispies kökur svo ekki þurfi að eyða peningum í bakaríið. Svo keyptum við líka um 2,5 kíló af hakki á tilboði í búðarferðinni okkar á mánudaginn og húsmóðirin tók sig til og gerði kjötfars úr helmingnum og frysti. Nú þarf ég bara að finna rabbabara og gera sultu og þá get ég eldað kjötbollur með brúnni sósu með rabbabarasultu og kartöflumús, mmmm ég fæ alveg vatn í munninn við tilhugsunina.

Jæja ég ætla ekki að hafa þetta lengra núna, takk allir fyrir innlitin og kommentin. Gaman að sjá að þið fylgist með okkur.

Þangað til næst,

Eyrún

Þriggja Vikna

október 25th, 2008

Það er búið að vera mikið um að vera hjá okkur hér í Bandgasse seinustu viku, þess vegna höfum við ekki skrifað mikið. Amma og Afi í Klettaborg komu til okkar í heimsókn og eru búin að vera í viku, það er að segja amman. Afinn þurfti að vinna og fór þess vegna til Ítalíu á fimmtudaginn. Það er mikið búið að vera að dást að litlunni og taka svolítið af myndum. Afi Geiri fór nefninlega á námskeið í því að taka myndir á fínu myndavélina og náði alveg ótrúlega flottum skotum af stelpunni. Það er alveg ómetanlegt að eiga svona fallegar myndir af þessum tíma. Annars er hún Ásthildur bara að stækka, þroskast og dafna vel. Við erum komnar í mjög gott jafnvægi með brjóstagjöfina og hún er voðalega dugleg að drekka. Svo erum við búin að fara á hverjum degi í smá göngutúr og Ásthildur er búin að fara á fullt af kaffihúsum í Vínarborg. Alltaf ef við tökum hana upp úr vagninum á kaffihúsunum spyr einhver hversu gömul hún eiginlega er og dáist að henni og hvað hún er lítil. Mér sem finnst hún vera svo stór. Eina vesenið hérna í Vín með að setjast einhverstaðar niður er að það er svo mikil reykingastybba á flest öllum kaffihúsum Vínarborgar. Maður er sjálfur alveg að kafna og hættir sér varla þarna inn, hvað þá með svona lítinn gullmola. Ég held að við stundum bara Starbucks, eins kanalegt og það er en þeir eru þá allavegana með mjúka sófa og reyklaust.

Við erum búin að fá peninga…veiveivei. Nú er ég bara að bíða eftir Margréti og Mömmu svo við getum kíkt aðeins saman í búðir. Svo kláraði ég Arnald Indriða á þýsku, var að lesa Napóleonsskjölin eða Gletschers Grab. Ég skildi samt ekki plottið í henni :-( En ég ætla að reyna aftur að lesa krimma á þýsku svo ég fór í gær og keypti 2 sænskar bækur eftir Cammillu Läckberg - Ísprinsessuna og Predikarann held ég. Ég hlakka til að lesa þær. En núna þarf ég að fara á fætur og fylgja Ástu á flugvöllinn. Vonandi hafið þið það gott hvar sem þið eruð. Fleiri fréttir seinna.

Hlustið svo á þetta lag, það er ótrúlega fallegt. Ég er að ná í þessa mynd og vona að hún sé jafn falleg og þetta lag.

 

Eins vikna

október 14th, 2008

Jæja, þá er meira en ein vika liðin frá því að Bumbulína kom út úr bumbunni og við sáum Ásthildi okkar í fyrsta skipti. Allt gengur alveg ofboðslega vel, stelpan sefur vel og drekkur mikið og er algjör engill. Ljósmóðirin okkar ætlar að koma á morgun og vigta hana í fyrsta skiptið eftir fæðinguna og þá fáum við að sjá hvort að hún sé nú ekki alveg örugglega að fá nóg að drekka hjá mér.

Við fórum í fyrsta skiptið með hana út að labba í fína vagninum seinasta laugardag. Það var alveg yndislegt, við fórum nú ekki langt en mikið var gott að komast út eftir viku inniveru. Vagninn er alveg geggjaður, ekkert smá þægilegt að keyra hann. Ég hlakka til þegar við verðum komin með pening og við getum keypt okkur lestarkort því þá verðum við Ásthildur útum allar trissur að hafa það gott í Vínarborg á meðan Lalli er í skólanum.

Þeir sem heyrðu aðeins í Lalla í útvarpinu á laugardaginn vita það að við eigum engann pening vegna þess hvernig ástandið hefur verið heima, en vonandi fer færsla af stað til okkar á morgun. Þá getum við aðeins farið að lifa lífinu aftur, maður er búinn að vera að rýna í hvert einasta cent seinustu tvær vikur. Auðvitað þarf maður að fara sparlega með peninga á svona tímum en það er alveg ömurlegt að eiga engann pening.

Jæja þetta blogg var lengi að fæðast, annað en hún Ásthildur mín, því ég er búin að borða, gefa henni að drekka 2 sinnum og baða hana frá því að ég byrjaði að skrifa þessa færslu. Ég er líka orðin alveg andlaus á meðan þannig að ég læt þetta bara gott heita núna.

Kveðja,

Eyrún

P.s. Komnar fleiri myndir í báðar vikurnar….

Nýjar myndir

október 8th, 2008

Var að setja inn fleiri myndir í albúmið Fyrsta vikan. Njótið vel og ekki hugsa um kreppu.

Lifum í ljósi en ekki kreppu….eða var það lukku og fjósi..hmm :-)

Eyrún

Hamingja

október 6th, 2008

IMG 2050Kæru vinir, takk kærlega fyrir öll fallegu skilaboðin til okkar. Okkur þykir ótrúlega vænt um sjá hvað hún Ásthildur á marga vini sem hugsa til hennar og okkar. Litla prinsessan sefur og drekkur til skiptis og á stundum reynir hún að gera bæði í einu, á meðan hún vakir skoðar hún mömmu og pabba með stóru augunum sínum og hjalar fyrir þau - einhver hefur gefið henni ótrúlega fallega rödd.

Þetta fór allt af stað um klukkan 07 á laugardaginn, vatnið byrjaði að leka og ég hringdi upp á fæðingarstofu, þar var okkur ráðlagt að koma strax svo að við hringdum á sjúkraflutningamenn sem mættu galvaskir og fluttu okkur upp á Semmel Weiss Klinik. Á stofu 15 fékk Eyrún rúm og var skoðuð í bak og fyrir af ljósmóður og lækni: allt eðlilegt og rólegt. Klukkan 10 var Eyrún með 1 í útvíkkun en samdrættirnir enn frekar óreglulegir, um klukkan 11 var Eyrún með 2 í útvíkkun og komin regla á samdrættnina milli 11 og 12 fór allt af stað og klukkan 12.30 var Eyrún komin inn á fæðingarstofu með 8 í útvíkkun og klukkan 14.27 var Ásthildur komin í fangið á hetjunni henni mömmu sinni, sem vegna þess hversu allt gerðist hratt fékk enga deyfingu eða verkjalyf. Hratt og örugglega kom Ásthildur í heiminn og hratt og örugglega komumst við líka heim í kotið okkar, 12 klukkustundum eftir að allt fór af stað sátum við í stofunni heima og horfðum hálf-orðlaus á þessa litlu sætu stelpu.

Mig langar að segja ykkur svo ótalmargt um hana Ásthildi og það er alveg satt hjá ykkur hún er ótrúlega falleg - hún er eiginlega svo falleg að orðin sem maður skrifar um hana ná bara að lýsa broti af því hvernig hún er. Við eigum eftir að taka margar myndir af henni og setja inn á síðuna okkar og segja frá öllu sem hún gerir - en hún er alveg ótrúlega snjöll.

En enn og aftur takk fyrir hlýjar og fallegar kveðjur, takið þær bara líka til ykkar heim í kreppuna og hugsið frekar um hana Ásthildi litlu - hún veit ekki einu sinni hvað kreppa er og er engu að síður ótrúlega hamingjusöm. En kanski er það þess vegna, því það eru aðrir hlutir í heiminum mikilvægari.

 

Kossar og knús frá okkur öllum í Bandgasse.

Nýjar Myndir

október 5th, 2008

Búin að setja saman smá myndaalbúm fyrir ykkur af gærdeginum og deginum í dag. Ég læsti albúminu þannig að þeir sem vilja skoða sendið mér emil á eyrunamer@gmail.com

Hérna er hægt að nálgast myndirnar

Svo koma fréttir seinna.

En takk enn og aftur fyrir kveðjurnar, þið eruð yndisleg öllsömul.

Knús og kossar,

Eyrún